Vikan - 08.06.1972, Qupperneq 36
FULLKOMIÐ MORti
Framhald af bls. 13.
aftur. Og það er svona:
Hann gekk aftur yfir gólfið og
haltraöi. Allt i einu rétti frú
Finch úr sér i stólnum og glennti
upp augun, steinhissa.
— Nú, en fótatakið var bara
ekki svona!
— Nú? sagði Merlin. —Hvernig
var það þá?
— Hann haltraði alls ekki neitt!
Nú kóm vandræðasvipur á
andlitið á henni. — Þaðvaralveg
eins og hjá venjulegu fólki. Hann
haltraði alls ekki neitt!
Merlin gekk þegjandi til sætis
sins, fleygði vindilstubbnum i
eldinn og kveikti sér i nýjum.
— Þetta datt mér aldrei i hug,
sagði frú Finch. — Hvernig gat
mér dottið i hug, að það væri ekki
hann? En nú finnst mér ég vita,
að hann haltraði alls ekki.
— En hvernig gat nokkur
maður komizt inn? Hvernig gat
hann komizt inn, hvern
morguninn eftir annan og stikað
fram og aftur i svefnherberginu
hans'hr. Homes?
— Þér vitið, hver þetta var,
hr. Merlin. Hver var það, sem
gekk svona fram og aftur á
hverjum morgni?
— Ég veit það ekki enn, sagði
Merlin, — en ég skal fá að vita
það. En ennþá veit ég ekkert. Og
hlustið þér nú á, frú Finch — þér
fáið sjálfsagt lögreglumann
hingað. Segið honum, hvernig hr.
Home fór að heiman.
— En segiö honum ekkert um
heltina. Látið mig um það. Ef
lögreglan þarf eitthvað að vita,
skal ég segja henni það. En ég
held ég geti útvegað yður
atvinnuna, sem ég lofaði yður,
fyrihafnarlitið. Ég læt yður vita.
Viljið þér þá fara að eins og ég
segi?
— Auðvitað vi! ég það, svaraði
hún. Þetta er allt svo erfitt, að
það er gott að hafa mann eins og
yður til að sjá um það...
Næst fórum við til Vennants.
Frá Vindmyllunni mátti sjá
hlöðurnar og korngeymslurnar á
bæ Vennants, sem stóðu uppi á
hól, en akrarnir teygðu sig alla
leið að dekkra bletti, sem
kallaður var Veiðihnifsskógurinn.
Viögengum forargötuna upp að
húsinu, og þegar Vennant sá
okkur vera að stika yfir pollana i
heygarði sfnum, opnaði hann
dyrnar fyrir okkur.
— Komjð inn, sagói hann. —
Voruð þið yfir i Vindmyllu?
Við fylgdum honum inn i
skuggalega stofu þar sem var
lágt undir loft. F’rú Vennant sat
við arininn og var aö prjóna. Við
heilsuðum henni, og hún svaraði
okkur i einhverjum
kæruleysislegum örvæntingartón
— svo þreytulegum, að ég leit á
hana aftur.
Augu hennar voru grunsamlega
rauð. Það var á henni einhver
vesældarlegur uppgjafarsvipur
og þreytu, enda þótt nokkrar
leifar væru enn eftir af
æskufegurð hennar.
Ég vissi, að i þorpinu voru
sagðar ljótar sögur af meðferð
Vennants á konu sinni, en ekki
höfðu nú þorpsbúar alltaf rétt
fyrir sér.
— Ég er búinn að tala við
lögregluna, sagði Vennant, — og
hún er búin að senda West
fulltrúa á vettvang. Kannski
kemur hann og talar við yður.
Hvað lizt yður um þetta?
— Það er sjálfsagt bara
sjálfsmorð, sagði Merlin.
— Það litur út fyrir það,
samþykkti Vennant. — En það er
nú samt aldrei að vita. Hann var
klókur refur.
— Það er ekki sjálfsmorð! greip
kona hans fram i. — Hann færi
aldrei að fremja það. George
Home var aldrei neinn heigull!
Hann þorði að horfast i augu við
hvað sem var. Það var ekki til
hugrakkari eða betri maður.
Vennant hleypti brúnum.
— Reyndu að halda þér saman!
sagöi hann. — George Home er
búinn að vera. Hann verður
aldrei til framar.
— Svona geturðu talað um
mann, sem var eins góður vinur
þinn og nokkur getur verið, sagði
konan. - Maðurinn, sem......
— Ég skal tala betur við þig
seinna, frú min, sagði Vennant
harkalega, og það var greinileg
ógnun i málrómnum. Hún sneri
sér undan, andvarpaði, og tók
aftur til við prjónana.
— Það var allt i lagi með Home,
sagði Vennant, svo sem til
útskýringar. —Hann var mér
góður vinur og ekki hef ég neitt á
móti honum. Við vorum saman i
skóla og þá var hann allt öðruvisi.
Hann var snarastur og
sterkastur allra i héraðinu, miðað
við stærð.
— Já, sagði Merlin. — Ég
þekkti hann nú aldrei á yngri
árum hans. Hann hefur alltaf
verið litill og feitur, þann tima,
sem ég hef þekkt hann.
— Nú, það? sagði Vennant. —
Það stafaði nú bara frá fætinum á
honum. Þér hafið sjálfsagt tekið
eftir þvi, að hann var haltur. Ég
veit nú aldrei, hvað að fætinum
gekk, hvort hann hefur snúið sig
eða eitthvað þessháttar.
— Það varð fyrir eitthvað
þremur árum og þá fór hann að
hreifa sig minna, þvi að hann var
ekki eins léttur á fæti og áður. Og
þá fór hann að fitna. Hann hlýtur
að hafa bætt við sig einum sjö
kilóum á þessu eina ári.
— Jæja, sagði Merlin, — þetta
‘r leiðindamál, Vennant. Ég vil
ekki tefja yður lengur. Ef ég
frétti eitthvað, skal ég láta yður
vita. Verið þér sælir, verið þér
salar frú Vennant.
Hún svaraði engu.
Við gengum þegjandi yfir
heygarðinn. Þegar við komum út
á veginn, tók Merlin vindil úr
veskinu sinu og stakk honum i
brjóstvasa minn, en þetta var ein
af einkennilegum aðferðum hans
við að gefa mér að reykja. Og
þegar ég dró vindilinn úr
vasanum og bjóst til að kveikja i
honum, sagði hann:
— Vitið þér það, Murray, að
mér er farið að detta ýmislegt
skritilegt i hug. Ýmislegt skritið
og flókið....
Hann vildi ekki útskýra þetta
frekar. Og næstu tvo dagana
virtisthann helzt hafa misst allan
áhuga á málinu.
Það var á öðrum degi, að West
fulltrúi kom að finna Merlin.
Honum var visað inn i
bókastofuna, þar sem við biðum
hans. Þetta var ungur fulltrúi
með ofurlitinn skeggtopp á
efrivör og hann var sýnilega
hrifinn af hinni miklu iandareign
Merlins og virðulegi i
1 æ r d ó m s m e n n s k u , sem
bókastofan bar með sér.
— Fáið yður að drekka, fulltrúi,
sagði Merlin. — Viski...eða viljið
þér kannski heldur eitthvað
annað?
— Þakka yður fyrir, viski helzt.
Merlin rétti honum glas, flösku
og sódavatnsflösku og dró fram
stól.
Fulltrúinn spurði hann, og án
sýnilegs áhuga, fjölda spurninga
og skrifaði niður svörin i
vasabókina sina. Að þvi loknu
lokaði hann bókinni. stakk henni i
vasa sinn, hægt og virðulega og
seildist eftir glasinu til þess að
ljúka við löggina. sem eftir var i
þvi.
— Þér eruð ekkert sérstaklega
að flýta yður? spurði Merlin og
þreifaði á flöskunni.
— Nei, svaraði hinn. — Ekki
næstu tiu minúturnar eða svo.
. — Mér þa-tti gaman að heyra
eitthvað meira um þetta, sagði
Merlin, — en einkum þó frá
manni með yðar reynslu.
Fulltrúinn brosti hæversklega. —
Vitið þér nokkuð ákveðið, enn
sem komið er?
— Ég er hræddur um, að það sé
.engum vafa bundið, að þetta sé
sjálfsmorð, sagði
lögreglumaðurinn.
Hjálpi mér! sagði Merlin,
sem var annars vanur að gefa frá
sér karlmannlegri upphrópanir
en þessa.
— Já, ég er hræddur um það,
get ég sagt ykkur i trúnaði. Það
er nú ekki á almanna vitorði enn,
og mér þætti vænt um, að þér
létuö það ekki fara lengra: Við
höfum fundið fötin hans. Þau
lágu samanbrotin við pyttinn i
grjótnámunum.... Skvrtan,
vestið, jakkinn...og allt. Og hafi
hann ekki drekkt sér, er hann
einhversstaðar allsnakinn á ferli.
\— Það virðist nú heldur
ótrúlegt, sagði Merlin. Hafið þið
slætt pyttinn?
— Tvisvar. Og það er verið að
þvi enn. En það er erfitt að slæða
þennan pytt — kannski þekkið þér
hann?
— Hann er tvær milur frá
Vindmyllunni. Þetta var
grjótnáma, einhverntima i
fyrndinni, og þarna var lækur,
sem hafði breytt um farveg og
runnið ofan i hana.
Skömmu eftir strið urðu þarna
mikil skriðuföll, svo að hæðin
þarna fór næstum i tvennt og
lokaði fyrir grjótnámuna, svo að
hún hefur siðan verið full af vatni
úr læknum.
— Botninn er alþakinn hvössum
klettum og grjóti og bakkarnir
eru snarbrattir, alla leið niður að
vatninu, og þaðan eru fjörutiu fet
niður i botn.
— Og ef likið liggur þarna niðri i
grjótinu, fæ ég ekki séð, hvernig
við getum náð þvi upp, nema með
þvi að senda kafara þangað niður.
— Það er leiðinlegt, sagði
Merlin. — En það er þó lán i
óláninu, að málið er orðið
uppvist. Hafið þér nokkra
hugmynd um ástæðuna til þess
arna?
— Liklega hafa það verið
fjármálin. Hann var eitthvað
búinn að yfirdraga
bankareikninginn sinn. Við
höfum komizt að þvi, að hann var
eitthvað farinn að braska i
koparhlutabréfum — sem voru
vafasöm eign, er mér sagt. Þetta
hófst fyrir þremur árum, og siðan
hefur hann alltaf verið að tapa.
iBankinn hefur þegar neitað
honum um frekari fyrirgreiðslu.
Svo að þetta virðist liggja ljóst
fyrir.
— Það er hætt við þvi, sagði
Merlin. Við getum orðið
fulltrúanum samferða út,
Murray, þvi að mig langar að tala
betur við hana frú Finch. Og viö,
megum ekki tefja réttvisina frá
störfum.
Við gengum út á garðhjallann.
A malargötunni beið
lögreglumaður á vélhjóli með
hliðarvagni yfirmanns sins.
En áður en ekillinn fékk komið
hjólinu i gang, kom Vennant allt I
einu eftir stignum og reið hart.
Hann sveiflaði sér af baki og
snerist að okkur, ögrandi á svip
og i tilburðum.
Það var nokkur knæpuþefur af
honum, og ég vissi, að þorpsbúar,
sem stundum hafa á réttu að
standa, héldu þvi fram, að hann
væri drykkjurútur.
— Það er þá komið i ljós, sagði
hann. —Já, ég er búinn að frétta
það. Hann hefur drekkt sér. Það
er leiðinlegt, en það er bara
ekkert við þvi að gera. Eruð þið
búnir að slæða hann upp ennþá?
— Ekki enn, sagði fulltrúinn.
— Jæja,finniðþiðhannþá! æpti
36 VIKAN 23.TBL.