Vikan - 08.06.1972, Qupperneq 44
Ecligu kariánná 'urðu tryllings-
legri en nokkru sinni fyrr og
danskvæðið steig og magnaðist.
Loksins eftir langan dans og
söng, fleygði síðasti dansarinn
skyndilega frá sér trumbunni
og allt datt í dúnalogn.
Menn sátu hljóðir og taug-
arnar í hálsinum voru slakar.
Söngur þeirra var þagnaður og
líka magnaður sláttur trumb-
unnar. Næst var að fara í leiki.
Þetta voru fjölskylduleikir,
hópleikir, óskiljanlegir öðrum
en þeim, sem höfðu haft þá
fyrir augunum í mörg hundruð
ár. Táknrænir leikir, frum-
stæðir og grófir, en samt list-
rænir og fólkið skemmti sér
mjög vel. Þetta voru æsandi
leikir, sem voru rökrétt fram-
hald af trumbudansinum, þeg-
ar hann hafði náð hámarki og
spenna hans hafði náð að hrífa
fólkið. Skyndilega reis einhver
upp og veifaði hendi. Það var
slökkt á kolunum og berir fæt-
ur læddust yfir gólfin og það
datt á þögn. Aðeins lágt fliss
og kumr og lágir brestir, þegar
fólkið lagðist í bálkana til að
elska úr sér leikinn. Það elsk-
aði lengi og hávært í myrkrinu
og húsið fylltist unaði og ást, og
þegar eldur var aftur sleginn,
hafði friður sezt í sál þess og
það hafði færzt nær hvort öðru.
Eldurinn var borinn í einn
lampann af öðrum og það varð
aftur svo bjart og eldurinn
kastaði geislum sínum á eir-
rauða húðina. Menn þögðu
lengi, en tóku síðan upp lág-
vært skraf og kvöldið leið í
hljóðum friði.
Flestir voru með verk í hendi.
Menn unnu að seingerðum
verkfærum og vopnum af því-
líkri elju, er ein dugir til að
forma bein og tönn. Öðru
hverju skiptu menn sætum og
berir fæturnir strukust hljóð-
lega yfir steingólfið. Menn ráð-
færðu sig við öldunga um form
vopna og gripa, svo þeir mættu
duga sem bezt, en konur keppt-
ust við að sauma og sumar
tuggðu hami og skinn. Eftir
langa vöku og iðjusama, eftir
að börnin voru sofnuð, gekk
íólkið svo til sængur og ljósin
slökkt, og húsið svaf í auðnar-
firði og þeir myndu róa kná-
lega út í stórísinn nokkru fyrir
birtingu.
Helztu heimildir þessa kafla
eru; auk munnlegra jrásagna:
Grönlands Historie, Linden-
gárd. Myter og sagn, Knud
Rassmussen. Fra Hundavakt til
hundeslæde, Eijnar Mikkelsen
og Bogen om Grönland. Pole-
tikens forlag. ☆
VIÐ OG BÖRNIN
OKKAR
Framhald af bls. 15.
ég á tilfinningunni að hann
missi strax áhuga á þessu orð-
bragði, það er ekki lengur
spennandi.
BARNASÁLFRÆÐINGURINN
SEGIR:
• Við höfum áður komið
okkur saman um að þrjózka sé
mjög eðlileg smábörnum. Það
er tilraun til að þjálfa sjálfs-
meðvitund og koma ákvörðun-
um sínum í framkvæmd.
• Um fram allt mega foreldr-
ar ekki láta sjá á sér hneyksl-
un, þegar lítil börn viðhafa ljót
orð. Þau vita sjaldan hvað þau
eru að segja. Þau vita að þetta
er eittthvað sem er „bannað“
og reyna oft að nota þau til að
vekja á sér athygli. Ef þau taka
upp á því að tvinna saman
biótsyrði og ljót orð, til dæmis
við matborðið, þá er um að
gera að láta sem ekki sé tekið
eftir því í fyrstu atrennu. En
ef þetta endurtekur sig, þarf að
skýra það fyrir barninu hvað
þessi orð þýði og að þau séu yf-
irieitt ekki notuð.
• Ég ræð eindregið frá því að
gera börnin hrædd. Ég þekki
eina móður, sem sagði lítilli
dóttur sinni, þegar hún ákallaði
„fiandann", að fjandinn væri sá
ljóti sjálfur og að hann myndi
koma og hirða hana. ef hún
væri að kalla á hann. Það voru
eðlileg viðbrögð hjá barninu að
hún stillti sér udd fyrir framan
suegil og endurtók áköllun sína
æ ofan í æ. til að sjá hvað skeði.
En enginn kom til að taka hana
og bá sá telDan að móðir henn-
ar hafði ekki sagt satt. Eins og
ég hefi sagt áður, þá getur of
mikil bvingun haft sjúkleg
áhrif á barnið. ☆
ARKITEKTAR
Framhald af bls. 28.
skólasjónarmiðum og eru því
ekki í heimavistinni, nema
gesta- og sjúkraherbergi.
— Og þá skólinn sjálfur?
— Skólabyggingin er tveggja
hæða. Aðalinngangur er frá
skólatorginu, auk þess er inn-
angengt í hann frá heimavist-
um eins og áður segir. Bygg-
ingin er jafnlöng á hvern kant.
f miðju hennar á efri hæð er
bókasafn — mediatek — en út
frá því eru kennslustofur og
stjórnunardeild. Á neðri hæð-
inni er fyrirlestrasalur í miðju
byggingárinnar en umhverfis
hann eru kennslustofur, leik-
svið og fleira. Hægt er að opna
kennslustofur inn að miðju og
fást þannig misstór kennslu-
rými. Kennslustofurriar geta
verið misstórar, tuttugu og
fimm, fimmtíu, sjötíu og fimm,
hundrað fermetra, og skapast
þannig möguleikar til náms í
smáum og stórum hópum eft-
ir eðli kennslu. Þá geta
kennslustofur tengzt bókasafni
beint, og verið lesstofur. Nefna
má skólagerð þessa „opinn
skóla með sérstofufyrirkomu-
lagi“; hann er þannig hugsað-
ur að auðveldlega má breyta
stofustærðum og er það svar
við síbreytilegum hugmyndum
um skólahald og kennslutækni.
Þá er gert ráð fyrir að hver
stofa verði innréttuð sem fag-
stofa og eru þær paraðar sam-
an eftir skyldleika faga.
Verulegar breytingar á hús-
rými er hægt að framkvæma
án þess að burðargrind bygg-
ingarinnar sé raskað. Skólann
má einnig innrétta á hefðbund-
inn hátt, það er með tuttugu
og fimm til þrjátíu nemenda
kennslustofum.
— Bókasafnið verður mið-
stöð?
— Já. það er í miðju efri
hæðarinnar en auk bóka verð-
ur þar einnig kennslutækja-
geymsla, kort, filmur, segul-
bönd og önnur gögn undir
vörzlu bókavarðar. Á svölum
umhverfis bókasafnið eru les-
básar fyrir nemendur. Fyrir-
lestrasalur er á neðri hæð skól-
ans; þar er aðstaða fyrir kvik-
myndaleiksýningar, en leiksvið
er í tengslum við salinn. En
þess ber að geta að fullnaðar-
hönnun skólahússins er ekki
lokið og eru því ýmis atriði
enn á þróunarstigi.
— Og íþróttahúsið?
— Bæj aryfirvöldin hafa sýnt
áhuga á að öðlast hlutdeild í
íþróttahúsinu og er gert ráð
fyrir tví- eða þrískiptanlegum
sal, átján sinnum þrjátíu og
þrír metrar að stærð, með
áhorfendasvæðum og búnings-
herbergjum og böðum, sem
einnig má nota fyrir útileiki á
íþróttasvæði bæjarins, sem er
suðvestan við íþróttahúsið.
Teiknivinna íþróttahússins er
enn ekki hafin.
— Kennaraíbúðir verða svo
í sérstakri byggingu?
— Samkvæmt skipulagi er
gert ráð fyrir íbúðum kennara
norðaustan við heimavistar-
bygginguna. Vissar efasemdir
eru uppi um kosti þess að kenn-
arar búi saman eða í nábýli
hver við annan og kemur jafn-
vel til greina að kennaraíbúð-
ir verði dreifðar um bæinn.
— Hvenær er svo fyrirhug-
að að byggingaframkvæmdum
verði lokið?
— Fyrirhugað er að fyrsta
áfanga byggingarinnar verði
lokið í september 1972. Þar er
um að ræða heimavistir fyrir
fimmtíu og fjóra nemendur og
þrjár kennaraíbúðir. Öðrum
áfanga, sem er mötuneyti og
heimavistir fyrir þrjátíu og
tvo nemendur, er fyrirhugað
að ljúka ekki seinna en haust-
ið 1974. Þriðja áfanga, skóla-
byggingunni, á að vera lokið
1975 og fjórða áfanga, heima-
vistum fyrir sextíu og fjóra
nemendur, 1976. En ekki er
ólíklegt að einhverjar breyt-
ingar verði á þessari áætlun.
— Þið töluðuð um komm-
únuvistir. Nú vitum við hvað
flestu fólki dettur fyrst í hug,
þegar minnzt er á kommúnur.
— Ef þú átt við samlíf kynj-
anna, þá er því til að svara að
auðvitað verða kynin aðgreind
í heimavistinni. En grundvall-
arhugsunin á bakvið þetta er
sú, að hér skapist nýir félags-
legir möguleikar að smekk
ungs fólks.
dþ.
NATASJA
Framhald af bls. 22.
upp yfir mig, — það er gott
hjá honum. Allra augu litu á
mig með skelfingu.
— Hvað þekkið þér til þessa
máls, mademoiselle? Þetta
skeði fyrir fáeinum dögum,
sagði Boris Kepler, sem sat við
hlið mér.
— Ég var þar, ég sá það allt,
sagði ég. — Þeir siguðu hund-
unum á drenginn . . . ég fann
hann í skóginum og svo kom
Andrei greifi . . .
— Já, svo það hafið verið
þér sem funduð byssuna hans.
Þér eruð hugrökk, ungfrú,
sagði Jean og það var dulið
háð í rödd hans. En það var
Natasja, sem gerði mig hrædda.
Hún hafði ekki af mér augun.
— Farið þér oft ríðandi inn
í Ryvlachskóginn, mademoi-
selle? spurði hún og ég fann
að ég roðnaði.
— Auðvitað ekki, madame,
það va rhrein hending að ég
villtist inn á þennan stíg.
— Mér finnst Andrei hafi
farið rangt að, en mér er al-
drei neitt um Trigorin gefið,
sagði Dmitri.
— En hann hefur á réttu að
44 VIKAN 23.TBL.