Vikan


Vikan - 23.11.1972, Page 41

Vikan - 23.11.1972, Page 41
morði& ■ snerti voru girðingar- stólparnir, og það segir enginn, aö þeir séu nothæfir til þess nú, eftir brunann. Þó yður heföi grunað eitthvað — heföuö þér kannski treyst yður til að sanna nokkurn skapaðan hlut, um að þeir hefðu verið notaðir til að steypa flugvélinni? Þér vitið eins vel og ég, að það var ekki hægt. Og þó að ég væri búinn að finna það út, að hann hefði myrt stúlk- una, þá hefðuö þér aldrei getaö sannaö það. — Það hefðum við getað, ef þér heföuö ekki ruglað fyrir okkur meösnærisskrattanum, sem var i tröppunni, svaraði Hanslet ergilegur. Aftur brosti Priestley og nú var brosið breiðara en áöur. Ég gerði ekki annað en benda á, hvaðan snærið var komið. Jafnvel þó ég hefði ekki gert það, hefði þaö komið i ljós, hvort sem var. Til dæmis hefði frú Chad strax séð það, þegar hún hafði komiö auga á tröppuna. Nei, ég held þvi fram, aö ef ekki játningin lapgi fyrir, gætuö þér I allra hæsta lagi sannað eiturlyfjasmygl á hann, og jafnvel það hefði útheimt af- skaplega þolinmæði og lang- dregnar rannsóknir, en á meðan hefði hann getað komizt hvert á land sem var. — Það kann aö vera nokkuð til i þessu, svaraöi Hanslet, sem þó var enn ekki fullkomlega sann- færður. —En þér höfðuö samt engan rétt til að gefa honum þessa bendingu i fyrradag, og svo tækifæri til sjálfsmorðs I dag. Þér hljótiö aö sjá, að þér hafið verið að vinna gegn réttvfsinni. — Nei, ég hef þvert á móti orðið þess valdandi, aö rettvisin helur náö fram að ganga, svaraöi dr. Priestley af sannfæringu. Ég hef sýnt yður fram á, að þér heföuð aldrei getað komiö hopum i snör- una. Ég gaf honum i skyn grun minn, og þaö varö til þess, aö hann reyndi að flýja frá hættu, sem hann við nánari athugun hefði séð, að var óveruleg. Til- raun hans misheppnaðist og það kom honum til að fremja sjálfs- morð. Og það er alveg eins og forsjónin hafi tekið þar i taum- ana, þvi að hann fékk sama dauð- daga og réttvisin heföi búið honum, hefði hann verið i New York. Þetta, aö hann hefði veriö hengdur hér i Englandi, gerir i minum augum ekki nema óveru- legan mismun. Hanslet yppti öxlum. — Það þýðir ekkert að pexa við yður, prófessor það hef ég reynt fyrir löngu, sagðihann. —Maðurinner dauður og þarmeð úr sögunni. En dr. Priestley virtist ekki hlusta á hann. Hann starði á likið á rúminu, sem aðeins sást móta fyrir undir ábreiðunni. — Merkilegur maður! sagði hann lágt. — Maöur, sem elskaði vísindin svo heitt, að þau voru honum eitt og allt. Jafnvel friö- helgi mannslifsins gat ekki staðið I vegi fyrir honum, þegar visindin voru annarsvegar. Og hver getur borið á móti þvi, að hann hafi haft á réttu að standa? Milljónir manna hafa verið drepnar i ófriði, I miklu auövirðilegri til- gangi. Og si&asta verk hans varpar enn meiri ljóma á hugar- far hans. Hversvegna haldiö þér, aö hann hafi kveikt I rannsókna- stofunni? Hanslet hrökk við þessari beinu spurningu. — Auðvitað til þess aö eyðileggja þessa giröingarstólpa, svaraðihann. — Efhann þá hefur kveikt I, sem sennilegast er. Slökkviliösstjórinn segir mér, aö húsið hafi hlotið að fljóta allt i bensini, til þess að geta brunnið svona fljótt. Sennilega hefur hann haft eitthvert klukkuverk til a& kveikja i, eftir aö hann væri farinn. — Ég býst lika viö þvi, svaraöi dr. Priestley. En ég held, að yöur skjátlist um tilganginn. Ég held, að þaö sama hafi vakaö fyrir honum og manninum, sem drepur ástmey sina, svo að enginn annar fái aö njóta hennar. — Atvikin höföu hagaö þvi þannig, að hann heföi ekki getað haldið áfram verkinu, sem var honum fyrir öllu, og heldur en að BJ Electrolux Nú VerÓur Fyrst Þægilegt AÖ Þrífa! Yörumarkaðurinn hf. ÁRIVIÚLA 1A, SÍMI 86112, REYKJAVÍK. Eftirtaldar gerðir vœntanlegar: Amourette click Amourette vivian D Amourette color click Amourette color D Amor teeu Amor stretch Amor teeu HS Mama Bel Doreeu L Poesie TN Dorabella TN Darling V ST ÁRMANN Sími 22100 47.TBL. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.