Vikan - 24.05.1973, Blaðsíða 24
„Mér
fannst
ég týnast
á þessu
stóra
sviöi"
Edcla kann vcl
að meta útiveru,
þó að hún
efist um að veðurfarið
á islandi
leyfi leikhús undir
berum himni.
— Leikritið Kabarett er byggt á
bókinni „Goodbye to Berlin” eftir
Christopher Isherwood og fjallar
um ástandið i Berlin á uppgangs-
timum nasismans. Það gerist
árið 1930 og segir frá ungum
bandariskum rithöfundi, sem
kemur til Berlinar. Leikritið er
fyrst og fremst lýsing á ástandinu
i Þýzkalandi á þessum tima og
þvi fólki, sem hann kynnist þar,
bæði Þjóðverjum og Gyðingum og
svo Sally Bowles, sem er ensk.
Hún er kabarettsöngkona i nætur-
klúbbi, þarsemhiðljúfa lif er alls
ráðandi.
Það er Edda Þórarinsdóttir
leikkona sem hefur orðið, en hún
leikur einmitt hlutverk Sallyar i
sýningu Þjóðleikhússins á
Kabarett.
— Þetta leikrit á tvimælalaust
erindi við okkur tslendinga og að
minu áliti er það mjög gott
ieikhúsverk. Það óhugnanlega
ástand, sem var að skapast i
Þýzkalandi á þessum tima kemur
skýrt fram i leikritinu og hefur
ósjálfrátt mikil áhrif á lif
fólksins. Ég hef séð myndina með
Lizu Minelli i hlutverki Sallyar.
Hún leikur það mjög vel, en ég
vona nú samt að ég fari ekki að
herma eftir henni.
— Finnurðu nokkurn skyldleika
með Sally og gleðikonunni, sem
■<3