Vikan - 30.05.1974, Qupperneq 4
byggja?
mW:
Viltu breyta?
Þarftu að bæta?
GRENSÁSVEG118,22,24
SÍMAR: 32266-30280-30480
pósturinn
Að ganga í augun
Kæri Póstur!
Viltu reyna aö svara þessu fyrir
mig. Ég var aö veöja viö vinkonu
mina um, aö ég fengi svör og von-
ast til aö fá skilmerkileg svör.
Ég fór inn i bókabúö um daginn,
og mér varö litiö svona á boröiö
og sá þá bók, sem bar nafniö
„Listin aö ganga i augun á karl-
mönnum” eöa eitthvaö svoleiöis,
og nú vil ég spyrja þig, hvort
þessi bók sé til einhvers staöar og
hvar þá. Ég var svo mikiö aö flýta
mér, aö ég tók bara rétt sem
snöggvast eftir þessari bók, og
þvi getur vel veriö, aö þetta sé
vitleysa, en mér sýndist þetta.
Er þaö satt, aö Bjöggi i Hljóm-
um eigi 4 ára stelpu? Hvert er
heimilisfang Gisla Baldurs
Garðarsonar hjá sjónvarpinu?
Hvernig á að skrifa i Tiu á toppn-
um? A bara að setja 3 númer á
miöa og nafn og heimilisfang og
ekkert meira? Eiga Þuriður og
Pálmi börn? Hvernig á að skrifa i
Lög unga fólksins? Ég hef skrifaö
6 sinnum, en þaö hefur aldrei
komiö. Hvert á maöur aö snúa
sér, ef mann langar til að skrifast
á viö erlenda krakka? Svo vona
ég bara, að öllum á Vikunni liöi
skitsæmilega og ekki sizt, aö
Pósturinn verði i skikkanlegu á-
standi, þegar hann les þetta og
miskunni sig yfir mig, þvi ég verð
aö fá svör viö þessu. Bless, og
hafiö þiö þaö gott á Vikunni, og ég
biö að heilsa ritstjóranum, ég
þekki hann dálitið náiö.
Ein fávis.
Viö hérna á Vikunni þökkum
góöar óskir þinar i okkar garö, en
ég verö aö hryggja þig meö þvi,
aö ritstjórinn kannast ekkert viö
nafn þitt, svo aö um'náin kynni
getur varla veriö aö ræöa. Gagn-
stætt vonum þinum er Pósturinn
ekkert afspyrnu hress þessa
stundina. Ég var nefnilega aö
fara rækiiega i gegnum bréfa-
hrúguna, og ruslakarfan marg-
umtaiaöa fékk aö vita af þvi. Hún
hefur oröiö aö kyngja miklu af
bréfum, sem oröin eru of gömul
til aö birta þau, en auk þess sitj-
um viö hér, þ.e. ruslakarfan og
ég, uppi meö óvenju mikiö af
builubréfum, sem hvorugt okkar
vill. Þitt bréf veröur aö teljast i
þeim hópi, þó ég ætli nú aö svara
þvi eftir beztu getu.
Fyrst er þaö þá bókin, sem ég
hef raunar aldrei heyrt getiö, en
hún getur margsinnis veriö til
fyrir þvi. Spuröu bara einfaldlega
eftir henni i búöinni. Um barn-
eignir Bjögga veit ég akkúrat
ekki neitt, en þaö viröast margar
ungar stúikur hafa áhuga á þeim
málum, þviaöum þau hafa borizt
allnokkrar fyrirspurnir. Viötal
viö Gisla Baldur birtist I 2. tbi.
Vikunnar i ár, og þar er þess
m.a.s. gctiö, hvar hann á heima.
Ég vona, aö hann veröi ekki fyrir
átroöningi, þótt ég endurtaki þaö
hér, aö heimilisfangiö er Njáls-
gata 5. Ekki trúi ég ööru en um-
sjónarmaöur Tiu á toppnum leiö-
beini hiustendum ööruhverju um
lagakosninguna, en mér þykir
trúiegt, aö þfn aöferö dugi. Vikan
mun innan tiöar birta viötal viö
þau hjónin Þuriöi og Páima, ef þú
hefur biöiund. Mér skilst, aö um-
sjónarmenn Laga unga fólksins
geti aldrei sinnt nema broti af
þeim bréfum, sem þeim berast,
en i þeirra sporum stæöist ég ekki
mátiö, ef reglulega frumlegt og
skemmtilegt bréf bærist. Dag-
blööin birta stundum nöfn er-
lendra krakka, sem vilja eignast
isienzka pennavini, og hiö sama
gerir Vikan einnig.
Bráðþroska og vinsæl
Elsku Póstur!
Ég hef átt viö mikiö vandamál
að striöa. Ég er 12 ára og mjög
bráöþroska. Ég byrjaöi á túr I 5.
bekk, en þori ekki aö segja
mömmu þaö, hún er svo ströng og
feimin. Ég nota tappana, á ég að
segja mömmu frá þvi? Ég er
mjög vinsæl meðal stráka, hef
veriö meö mörgum, hef hleypt
einu sinni upp á mig. Ég held ég
sé ófrisk, hef ekki fariö á túr i
meira en mánuö. A ég aö leita
læknis? Ég vona, aö þú leysir úr
þessum vanda fyrir mig. Þakka
allt gamalt og gott.
Lára
Þaö er alls ekki óaigengt, aö
stúlkur byrji aö fara á túr 11 ára
gamlar. Hins vegar skuium viö
vona, aö þaö sé mjög sjaldgæft,
aö 12 ára stúlkur hafi veriö meö
mörgum strákum og jafnvel
„hleypt upp á sig”, eins og þú
oröar þaö. Veltu þvi vandlega
fyrir þér, af hverju vinsældir þin-
ar meöal stráka stafa, og svo
veröuröu aö gera þaö upp viö þig,
hvort þú viit halda áfram aö vera
vinsæl á þann hátt. Þú þarft ekk-
ert endilega aö ræöa um líkams-
starfsemi þina viö móöur þina, ef
þetta er ykkur feimnismál, en svo
ætti auövitaö alls ekki aö vera.
Norrænir lýðháskólar
Kæri Póstur!
Viö erum hér tvær stallsystur i
vanda. Það er nú samt ekki út af
ástamálum eöa þess konar. Viö
vonum, aö þú getur svaraö spurn-
ingum okkar og aö bréfiö lendi
ekki i ruslakörfunni.
1.1 hvaöa nálægum löndum eru
lýöskólar?
2. Hvaöa menntun þarf?
3. Hvaöa aldur?
4. A hvaöa árstima og hvaö
lengi?
5. Hvaö kostar?
6. Hvort er sagt lýöskóli eöa
lýöháskóli?
7. Getur maöur lært þar allt,
4 VIKAN 22.TBL.