Vikan - 30.05.1974, Page 5
Vinkonan i fússi
sem hugur girnist, eða verður
maöur aö ákveða sérstakt fag?
Hvert eigum við að snúa okkur, ef
okkur vantar fleiri upplýsingar?
Virðingarfyllst
Tvær að norðan
Þessir skólar eru nefndir lýðhá-
skólar og eru ailmargir á öllum
Norðurlöndunum. Þeir starfa á
veturna rétt eins og aörir skólar,
en i þessum skólum er fólk á öll-
um aldri og með margs konar
undirbúningsmenntun. Kostnað-
ur er mismunandi, en margir ts-
lendingar hafa notiö styrkja til
náms f norrænum Iýðháskólum.
Leitið ykkur frekari upplýsinga
hjá Norræna félaginu, Norræna
húsinu við Hringbraut, Reykja-
vfk, simi 10165, opið kl. 5—7 e.h.
Um reykingar og fleira
Kæri Póstur!
Viö erum hér þrjár vinkonur og
lesum alltaf Vikuna, þegar við
náum I hana og lesum þá alltaf
Póstinn. Okkur þykir þú gefa
mjög góð svör. En ástæðan fyrir
bréfi okkar er að biðja þig að
svara nokkrum spurningum.
Drifum okkur i þær.
1. Geta reykingar valdið þvi, aö
maður byrjar ekki á túr, fyrr en
seint og siöar meir?
2. Geta reykingar skaðað menn,
sem eru með migreni?
3. Hætta brjóstin að stækka, ef
maður reykir?
4. Er Rió trió ajveg hætt?
5. Er David Cassidy trúlofaður,
eða á hann kærustu?
6. A David Cassidy systkini? Ef
svo er, þá hver?
7. Hvaö lestu úr skriftinni, og
hvernig er stafsetningin?
Þrjár i 6. bekk barnaskóla
Sökum mikils áhuga ykkar á á-
hrifum reykinga þykist ég skilja,
að þið séuð farnar að fikta við
slikt. Fyrstu þremur spurningun-
um svara ég öllum i einu á þann
veg, að reykingar eru undir öllum
kringumstæðum skaðlegar, eins
og allir vita, en einkum og sér i
lagi óþroskuðum unglingum.
Reykingar geta dregið úr eðlileg-
um þroska unglinga og hafa mjög
skaðleg áhrif á andlegt og lfkam-
legt þrek þeirra. Þið eruö alltof
ungar til að reykja. Rió tríó hefur
kvatt með pomp og pragt, hvort
sem þráöurinn veröur tekinn upp
siöar meir. Við 5. og 6. spurningu
kann ég engin svör frekar en
venjulega, þegar krakkar spyrja
um poppstjörnur. Edvard
Sverrisson sér um poppþátt fyrir
blaðið, og til hans ber að snúa sér
með þess háttar efni. Skriftin er
ómótuð, en stafsetning virðist i
lagi hjá ykkur.
Kæri Póstur!
Ég ætla aö leita til þin meö
vandamál, eins og svo margir
aðrirgera. Einu sinni svaf ég hjá
vini minum, þegar foreldrar hans
voru ekki heima. Þar voru lfka
tvær stelpur og einn strákur.
Strax um kvöldiö byrjaði ég að
reyna við aðra stelpuna, strákur-
inn, sem á heima þarna, var lika
að reyna viö hana, en mér tókst
að húkka hana inn i herbergi, og
vorum viö þar, en ég þorði ekkert
að gera við hana, og þá kallaði
hún mig raggeit. Hvernig er með
þessar stelpur? Mér finnst viö
vera of ung til aö hafa mök sam-
an, þvi viö erum aðeins fjórtán
ára. Ég vil gjarna eiga hana fyrir
viiikonu, en hún hefur verið i fússi
við mig siöan. Hvernig á ég aö ná
i hana, þvi mér þykir vænt um
hana? Bless.
Móri
Mér finnst þú afskaplega skyn-
samur fjórtán ára strákur, sem
hver stúlka mætti vera fegin að
eiga að vini. Leyfðu stelpugrey-
inu bara að vera f sinu fússi, ég
skil ekki að hún þurfi að vera þér
neitt keppikefli, ef hún hefur að-
eins áhuga á þessu eina.
Sálarfræði
Kæri Póstur!
Ég hef lært smávegis um sálar-
fræöi, en mig langar til aö fræðast
meira um hana. Hvar get ég feng-
ið bók, sem fræöir mig um þvi um
líkt? Hvernig eiga vatnsberi
(stelpa) og hrútur (strákur) sam-
an? Að Iokum, hvað lestu úr
skriftinni, og hvernig er hún?
Meö fyrirfram þökk fyrir birting-
una.
Haddý
Þér ætti nú ekki aö veröa skota-
skuld úr þvi aö verða þér út um
sálfræðilegt lesefni, önnur eins ó-
sköp og út hafa veriö gefin af
sliku I heiminum. Að visu hefur
minnst af þvf veriö þýtt á fslenzka
tungu, ef þú ert ekki fær I öðrum
tungumálum. Vmislegt er þó til,
og ættirðu að fá aöstoö bóksalans
i þinni heimabyggð um útvegun á
bókum sálfræðilegs eölis. Vatns-
beri og hrútur eiga nokkuð vel
saman. Skriftin er myndarleg og
ber vott um fjölhæfni.
Jentiy^
Skolavorðustig,
vill segja frá
l»að «-r vel "erl sem við «ierui!i sjálfar
bómullargarni í öllum
litum, CB og METTA.
Hannyrdavörur frá. Jenný prýda lieimilið
HATTA- OG HANNYRÐAVERZLUNIN
Jenný
^__ ZA
Skólavörðustíg 13a - Sími 19746 - Pósthólf 58 - Reykjavík
22. TBL. VIKAN 5