Vikan - 30.05.1974, Síða 18
Óþægindi i brjóstholi.
— Ég hefi að undanförnu haft
óþægindi, einskonar sviða fyrir
neðan bringubeinið. Getur það
verið eitthvað i sambandi við
meltinguna?
— Hve lengi hafið þér fundið
fyrir þessu?
— Aðeins i nokkra daga. Þetta er
likast brjóstsviða, en versnar,
ekkert þótt ég reyni mikið á mig.
— Þrengslatilfinning fyrir neðan
bringubeinið samfara brjóstsviða
er merki um bólgu eða þrota i
vélindanu.
Til skýringar sagði ég sjúklingn-
um, að þegar við kyngjum fæðunni
lokast barkaopið um leið og op
vélindans opnast. Vélindað er
holur vöðvi, einskonar pipa, sem
fæðan fer i gegnum á leið til mag-
ans, þar sem hún þrýstist niður
með samdrætti vöðvanna i vélind-
anu. En meltingin sjálf byrjar ekki
fyrr en fæðan er komin niður i
meltingarfærin.
Vélindað liggur eins og pipa
gegnum brjóstholið, svo sársauki
og óþægindi i vélindanu gera vart
við sig fyrir neðan bringubeinið og
stundum leggur verkinn út undir
herðablöðin.
Bólga i opi vélindans veldur
brjóstsviða og óþægindum við að
kyngja.
Þroti i vélindaopinu orsakast oft
af þvi að kyngt er og heitum mat
eða drykk, of sterkum vinanda eða
sterkum sýrum, sem jafnvel geta
etið sár á slimhimnurnar.
Munn og hálsbólga breiðist lika
út, þannig að erfitt er að kyngja og
það er mjög algengt samfara inflú-
ensu. Það getur lika komið þroti i
vélindað neðan frá maganum og þá
af of miklum sýrum.
Það er ein af orsökunum fyrir
þvi, að barnshafandi konur fá oft
slæman brjóstsviða á siðari
mánuðum meðgöngutimans, og þá
er það vegna þess, að þrengsli i
kviðarholi ýta maganum upp á við.
Sjúklingar, sem iðulega kasta
upp galli, geta fengið slæman
brjóstsviða og þrota i vélindað, en
þrálátur brjóstsviði orsakast
venjulega af of miklum maga-
sýrum, þvi að þá er neðra op vél-
indans i hættu vegna þess.
Sumar manneskjur geta kyngt
bókstaflega öllu, án þess að finna
fyrir þvi: aðrar geta verið með
brjóstsviða árum saman, án þess
að meira verði úr þvi.
Svo eru aðrir, sem geta fengið
bólgu i neðra op vélindans og þar af
leiðandi þrengsli i efra magaopið:
þá þarf yfirleitt skurðaðgerð að
koma til
Ég reyndi að róa sjúkling minn
og sagði að flestir gætu fengið
góðan bata með einföldum læknis-
aðgerðum. Góð hvild og auðmeltur
matur getur ráðið bót á bólgum,
sem koma af röngu mataræði.
Það getur verið gott að drekka
vatn með Samarin eða öðrum
svipuðum söltum og lika eru til
skaðlaus lyf, sem lina sviðann, en
þurfa ekki að skaða meltinguna.
En ef óþægindin hverfa ekki við
slikar aðgerðir, þá er full ástæða til
að .rannsaka þetta ‘nánar, ef ske
kynni að slimhimnúbólgur séu
fyrir hendi, eða magasár i uppsigl-
ingu.
URIDAGBOK
LÆKNIS
Nell Gwynn
Framhald af bls. 17
ur: „Konan er komin á sviöiö og
þaöan fer hún ekki”. Stuttu siöar
skrifaöi hann: „í dag fór ég meö
konu minni i heimsókn til Nell,
sem nú er öröi’n aöalumræöuefni
Lundúnabúa. Hún hefur ekki að-
eins fagran vöxt og netta fætur,
heldur er hún svo aðlaöandi, að
bæöi ég og kona min föömuöum
hana inniega og kysstum, þegar
viö kvöddum hana”.
Uppáhaldsástmær konungs var
hin undurfagra lafði Castle-
maine, en hún var nú óröin svo
valdasjúk, aö hún var hötuð bæði
af hirö og rikisstjórn. Konungur
var einnig að veröa þreyttur á
henni, svo hertoginn af Buckingm
og nokkrir vinir hans ákváðu aö
reyna aö koma henni frá. Þótti
þeim vænlegast aö kynna konung
fyrir leikkonunni glaðlyndu, sem
oröin var eftirlæti almennings.
Konungur hreifst strax af kátinu
og hlýju Nell og fór að sækjast
eftir félagsskap hennar, sér til
upplyftingar en um leiö hvildar.
Hirðin var himinlifandi, þvi hún
naut góös af gleöi konungs.
Nell var nú ráðin leikkona viö
hiröleikhús hans hátignar i
Whitehall, og ekki leið á löngu þar
til hún var orðin ástmær'konungs
og búin aö fá til afnota hús i Lin-
colns Inn Fields. Ariö 1670, er hún
var tvltug, ól hún konungi son,
sem hún gaf nafnið Karl. Hún var
sú fjóröa af ástmeyjum konungs,
sem gaf syni sinum nafniö Karl,
svo konungur átti fullt i fangi meö
aö fylgjast meö öllum Körlunum
sinum.
Franski rithöfundurinn
Madame de Sevigny skrifaði eftir
dvöl sina i Englandi: „Konungur-
inn deilir nú bliðu sinni milli Nell
og Louise de Kerouaille, en þá
siöastnefndu er taliö, aö hann
muni brátt gera aö hertogaynju
af Portsmouth. En leikkonan
stendur einnig traustum fótum.
Hún gerir óspart grin að keppi-
nauti slnum á almannafæri og
ggtur lokkaö konung til sin hve-
nær sem henni sýnist og gortar af
þvl, að hún hafi hann alveg i vas-
anum. Hún dansar og syngur sig
inn I hjörtu allra og hún á son með
konungi, sem hún vonar að kon-
ungur muni meðganga.”
A jóladag áriö 1671 fæddi Nell
konungi son númer tvö. Hún gaf
honum nafnið James, til heiðurs
bróöur konungs, en hann varö siö-
ar Jakob konungur II. Ari siðar
voru fjölmörg af lausaleiksbörn-
um konungs dregin fram I dags-
ljósiö og þeim veitt aöalstign.
Synir Nell voru ekki i þeim hópi
og sárnaöi henni það, einkum þó
þegar hún frétti aö stúlka, sem
konungur haföi átt meö starfs-
systur Nell I leikhúsinu skyldi fá
nafniö Maria Tudor.
Nell kvartaöi þó ekki viö kon-
ung og geröi ekkert veöur út af
þessu. En einn dag, þegar kon-
ungur var i heimsókn, lét hún
hann heyra, er hún kallaöi á eldri
soninn: „Komdu hingaö til min,
Framhald á bls. 43