Vikan - 30.05.1974, Blaðsíða 20
AÐ
GIFTAST?
,,Heyrðu, hvenær
ætlar þú eiginlega að
gifta þig?” Ógiftar
stúlkur, sem komnar
eru yfir tvitugt, fá ærið
oft að heyra þessa
spurningu. Þó vita all-
ir, að sumum stúlkum
væri það fyrir beztu að
ganga aldrei i hjóna-
band. öðrum kemur
það bezt að skemmta
sér vel og lengi og njóta
þess að vera öllum
óháðar, áður en þær
giftast. Og enn aðrar
eru bezt komnar i
hjónabandi sem allra,
allra fyrst. Hvernig er
þessu varið með þig?
Þú getur komizt að þvi
með þvi að gangast
undir þetta próf.
Krossaðu einfaldlega
við eftirfarandi stað-
hæfingar, eina i hverj-
um hluta prófsins, eftir
þvi hver þeirra fer næst
þinni eigin skoðun.
I. HÚSGÖGN
a) Þegar stúlka gengur i
hjónaband og stofnar heim-
ili, á hún að búa ibúð sina hús-
gögnum eftir eigin smekk. Það
er fyrst og fremst hún, sem býr i
ibúðinni.
b) Til þess að halda heim-
ilisfriðinn á hún að fara eftir
smekk mannsins»*sins i vali á
húsgögnum.
c) Þó smekkur hennar og
manns hennar falli ekki
saman, á hún að halda þvi til
streitu, að hún ein fái að ráða
öllu um innréttingar heimilis-
ins.
d) Hjón eiga að velja
allt, sem viðkemur heimil-
ishaldinu i sameiningu. Að öðr-
um kosti kunna þau aldrei við
sig á sinu eigin heimili.
e) Eiginkona á i öllu að
láta að vilja manns sins,
hvað viðkémur húsbúnaði henn-
ar og manns hennar, enda er
það hann, sem á að borga hann.
ir
a) Nýgift stúlka á ein-
göngu að haga matseldinni
að eigin geðþótta og manni
hennar ber að venja sig á að
þykja maturinn, sem hún býr
til, góður.
b) Ekkert er jafn þýðingar-
mikið hjónabandssælunni
Og matreiðslusnilld eiginkon-
unnar. Þess vegna á hún alltaf
að vanda sérstaklega til mat-
reiðslunnar.
c) Hún á alltaf að hafa
uppáhaldsmatinn hans á
borðum.
. d) Konan ein á að sjá um
allt, sem lýtur að eldhús-
störfunum.
e) Margir karlmenn eru
ágætir kokkar. Hjónin eiga
þvl að sjá um matarinnkaup I
sameiningu og jafnvel matr-
eiðsluna lika.
III. BÖRN
a) Kona á þvi aðeins að
eignast barn, að hang sjálfa
langi til þess, sama hvað öllum
öðrum finnst.
b) Hjón ættu engin börn að
eiga, ef þau hafa ekki að-
stæður til þess (fjárhagslega til
dæmis).
c) Manninum er það mikil-
vægt, að ættin haldist við og
þess vegna eiga hjón að eignast
börn.
d) Það álit almennings, að
aðeins giftar konur eigi að
eignast börn, er úrelt.
e) Börn eru hin eina sanna
IV. KYNLÍF
a) Konu ber að taka fullt
tillit til kynlöngunar manns
síns. Kynlöngun hennar er
minni en hans.
b) Hún hefur fulla heimild
til að neita manni slnum um
blfðu sina, ef henni býður svo
við að horfa.
c) Kona á að vera fullt
eins opinská i kynlifi sinu og
karlmaðurinn.
d) Konu á að vera það
kappsmál að falla manni
slnum I geð kynferðislega.
e) Fullkomið kynlíf bygg-
ist fyrst og fremst á þvi að gefa
og þiggja.
V. SAMKVÆMISLÍF
a) Sérhver eiginkona á að
eiga sinn eigin kunningja-
hóp, sem hún velur að eigin geð-
þótta.
b) Eiginmaðurinn á að gefa
sig að öllum gestunum I
samkvæminu og þó að hafa tíma
til að hafa ofan af fyrir konu
sinni.
c) Þegar hjónin fara saman
út að skemmta sér, á eigin-
maðurinn að veita konunni sér-
staka athygli.
d) Það er la-ngt frá þvi
að vera heppilegt, að hjónin
fari saman út að skemmta sér.
Betra er að konan fari ein út
stöku sinnum.
e) Hjónin eiga að gefa sig
þvi nær eingöngu hvort að
öðru, þegar þau fara út á meöal
fólks.
Niðurstööur eru á bls. 38
20 VIKAN 22. TBL.