Vikan - 30.05.1974, Qupperneq 21
Nú kemur til kasta lesenda að velja
Vorstúlku Vikunnar. Þátttakendur i
keppninni, átta talsins, hafa verið
kynntir i siðustu fjórum tölublöðum,
og vonandi hefur hið langa hlé, sem
varð á útkomu Vikunnar af völdum
prentaraverkfallsins, ekki dregið úr
áhuga lesenda á keppninni.
Vikan efndi til þessarar keppni i
samvinnu við tizkuverzlunina EVU,
Laúgavegi 28B, sem hefur lagt stúlk-
unum til fötin og bakgrunninn á
myndunum.
Stúlkurnar átta keppá um þrenn
verðlaun. Fyrstu verðlaun eru
Mallorkaferð með ferðaskrifstofunni
SUNNU, önnúr verðlaun föt fyrir 15
þús. krónur að eigin vali frá EVU og
þriðju verðlaun föt frá EVU fyrir 10
þús. kr.
í næstu opnu birtast myndir af öll-
um þátttakendum, svo að lesendur
geti virt þær fyrir sér allar i einu,
áður en þeir gera upp hug sinn. At-
kvæðaseðilinn er að finna á bls.
44, og vandinn er ekki annar en að
merkja 1,2 og 3 við þær stúlkur, sem
til greina koma í þrjú efstu sætin.
Atkvæðaseðillinn verður að hafa
borizt fyrir 10. júni en úrslitin verða
birt i 27. tbl., sem út kemur 4. júlí n.k.
22. TBL. VIKAN 21