Vikan - 30.05.1974, Side 30
Vekjaraklukkan hringír i
nokkrar sekúndur. Dave stynur
og ég slekk á vekiaraklukkunni.
Svo strýk ég brúnt og mjúkt hárið
á Dave með hendinni og þrýsti
nöktum fótleggjunum að hans.
Hann snýr sér að mér og ég færi
mig enn nær honum, finn hann
vakna og taka utan um axlir min-
ar. Ég vóna hann haldi þvi áfram,
en hann gerir það ekki. Hann
teygir úr sér, setur fæturna fram
úr rúminu og stendur upp.
Allt i lagi, farðu á fætur, i inni-
skóna, taktu kaffikönnuna og
vertu svo ein á meðan Dave er
með algebrunni og þrjátiu og
fimm krökkpm og svo fleiri
bekkjum og fleiri krökkum og
prófum til að fara yfir, og hann
þarf að fá morgunverð áður. Ann-
ars á ég litið leyndarmál út af
fyrir mig, eða á reyndar ekki fyrr
en eftir hádegið, kannski.
Grapeávöxturinn ilmar dásam-
lega... og ristaða brauðið lika.
,,Ég þarf bilinn i dag, Dave.”
„Hvað þarftu að gera?” spyr
hann.
,,Ég þarf að kaupa nokkra
blómapotta.”
Ég brosi.
„Ætlarðu að fara að halda sýn-
ingu á garðinum strax?”
Ég brosi meira. „Ég þarf að
gera svolitið.”
Sex mánuðir eru liðnir siðan við
ákváðum, að ég skyldi hætta að
vinna og gefa mig eingöngu að
heimilisstörfunum — og verða
móðir. Tilhugsunin um að eignast
barn veldur mér kviða — jafnvel
ótta.
Dave og ég höfum svo litinn
tima út af fyrir okkur. bað er of
margt annað að snúast. Hann er
alltaf eitt kvöld i viku með strák-
unum og svo býr hann sér til alls
konar aukavinnu vegna skólans.
Ég er fegin þvi, að hann gerir
meira fyrir nemendur sina en
hann raunverulega þarf, en mér
finnst svo leiðinlegt hvað ég fæ
litið af tima hans.
Samt, ég er orðin tuttugu og
fimm ára, og úr þvi að við viljum
eignast barn, er kominn timi til
þess að láta verða af þvi. 1 þrjú ár
hef ég átt hanrí ein — stundum —
og það hefur verið dásamlegt, en
þú getur ekki verið svona eigin-
gjörn alla ævi, Mauregn Riley.
Ég velti fyrir mér, hvað ég eigi
að fara i. bað verður að vera
eitthvað, sem ég er fljót að fara
úr og i aftur. Buxurnar með silki-
áferðinni eru ágætar. Skærir litir
gera biðina á læknabiöstofunni
auöveldari. Biða þar til að fá að
vita, hvort ég er með barni eða
ekki.
bað bezta við það, ef ég þá er
barnshafandi, verður að segja
Dave frá þvi.
Ég ek Dave i skólann. Börnin
eru farin að flykkjast að. Hann
kyssir mig létt á kinnina og geng-
ur inn:
A leiðinni heim geri ég áætlun
fyrir daginn. Heima er ekki
margtógert —búa um rúmin, þvo
upp. Ailt er mjög hreinlegt heima
og mjög, mjög hljótt.
Núna er mjög litið verk að
hatda húsinu hreinu. bess vegna
get ég horft á sjónvarpið og grát-
ið. Enginn sér, þó að ég gráti heit-
um og söltum tárum yfir þvi, að
einhverjum ferst illa við einhvern
á þessum litla skjá. Hvernig er
hægt að koma svona grimmdar-
lega fram?
Ég kveiki á tækinu, en ég græt
ekki. Ég horfi á þau kyssast og
faðmast og hugsa með mér,
hvernig fyrsta árið okkar Daves
var — og er reyndar stundum
enn, en ekki nógu oft.
Ég fer I appelsinurauðu og
brúnu buxurnar með silkiáferð-
inni og set á mig belti. Mér finnst
ég falleg og bursta sitt, brúnt hár-
ið og finnst ég enn fallegri. Svo
sezt ég niður og horfi á næsta dag-
skrárlið i sjónvarpinu.
Nú græt ég i raun og veru, af
þvi að hún giftist honum, þó að
það sé bróðir hatns, sem hún elsk-
ar.
Ég fer i blómabúðina til að
kaupa garðblómin. Ég veit að ég
gæti keypt plöntur með betri kjör-
um annars staðar, en mér fellur
andrúmsloftið þarrra.
Ég geng meðfram hillunum
eins og ég sé i kjörbúð, en ég
skoða bara blómin. Ég geri ekki
svo mikið sem renna augunum til
sætindanna I fallegu umbúðun-
um. Blómailmurinn fyllir vit min.
barna er dásamlegt að vera og
ég birgi mig upp af nellikum og
rósum, mér falla begóniurnar
líka vel i geö og að siðustu vel ég
nokkrar chrysantehmum. Ég
kaupi alls 153 plöntur.
Ég reyni að hugsa ekki um
lækninn. Ég reyni að hugsa ekki
um veturinn, sem kemur að
sumrinu loknu. Ég kveiki á út-
varpinu, en ég hlusta ekki á það,
sem þulurinn er að segja. bess i
stað hugsa ég um móður mina,
þar sem hún er að snúast i eld-
húsinu heima i Devon, og ég reyni
að imynda mér, hvað hún muni
segja, þegar ég segi henni, að ég
sé vanfær.
Ég er komin tuttugu minútum
of snemma á læknastofuna.
Stúlkan brosir til min og býður
mér að setjast, þangað til nafn
mitt verði kallað upp. Ég vil ekki
hugsa um það.
Ég grip timaritin á biðstofunni
en ég les ekki neitt, fletti þeim
bara. Ég vildi að þetta væri búið.
Ég vona, að ég sé ekki með barni,
að við getum haldið áfram að
vera ein, ég og Dave.
Ég elska hann svo heitt. Ég vil
ekki, að hann þurfi að skipta sér
milli min og einhvers annars. Ég
þarf engan til viðbótar — ég á
nóg.
Mér verður litið á borðið. bað
er sigaretta i öskubakkanum.
Einhver hefur drepið i henni i
flýti. Hún hefur næstum öll
brunnið upp i öskubakkanum og
þegar ég f inn reykjarlyktina, finn
ég til velgju.
„Maureen Riley,” kallar stúlk-
an.
Hún fylgir mér inn til læknisins
og hann vigtar mig og skrifar
þyngdina i skýrsluna. Svo mælir
hann blóðþrýstinginn.
Læknirinn er viðfeldinn og vin-
gjarnlegur. Hann segist hafa nið-
urstöðurnar úr prufunum og þær
sýni, að ég sé með barni.
Hann talar við mig og ég svara
öllum spurningum hans, en ég
trúi honum ekki. Samt veit ég, að
hann segði þetta ekki, ef hann
væri ekki viss. Ég er hálfdöpur,
en samt get ég ekki gert að mér
að brosa og i rauninni heyri ég
alls ekki það, sem læknirinn er að
segja, þvi að ég er að hugsa um
Dave.
Dave og ég og barn. Ég trúi
þessu ekki enn og allt er öðruvisi
á leiðinni heim frá lækninum. bað
horfir öðruvisi við.
Ég segi upphátt: „Móðir, faðir
og barn,” og orðin eru svo ókunn-
ugleg og skritin, að ég get ekki
stillt mig um að hlæja. Ég reyni
aftur: „Mamma, pabbi og barn.”
bað er enn skritnara og ég hlæ
meira.
1 húsinu er mjög hljótt og ég
hugsa um það, sem er að vaxa
innan i mér, og ég leggst á rúmið
og segi við sjálfa mig, að við sé-
um að fara að eignast barn, ég og
Dave. Ég hugsa um Dave og hvað
það er sárt að elska hann meira
en hann hefur tima til að endur-
gjalda ástina. Og ég græt.
Ég hætti að gráta og hugsa um
að eignast barnið og elska það og
ég kem auga á svolitið, sem mér
hefur ekki dottið i hug áður. Ég
geri mér ljóst, að ég þarfnast
barns til að elska, barns sem er
alltaf hjá mér, bara. til að elska
þaö og annast. Dave og ég og
barnið og ég græt svolitið lengur.
Svo fer ég út i garðinn.
ALLT ER
ÖÐRUVISIÁ LEIÐINNI
HEIM
Stutt smásaga
um konu og ást hennar
eftir Joan King.
30 VIKAN 22. TBL.