Vikan - 30.05.1974, Síða 33
Úrvalsvörurnar frá Marks & Spencer
fást í Gefjun Austurstræti,
Domus Laugavegi 91.
og hjá kaupfélögum um land allt.
Fatnaður á alla fjölskylduna.
Vörurnar, sem eru þekktar og rómaðar
um víða veröld.
Framleiddar undir strangasta gæðaeftirliti.
>\ Samband isl. samvinnufélaga J
INNFLUTNINGSDEILD A
Fjölskyldan
Framhald af bls. 13
Siðla dags kom hann á hótelið,
þar sem hann ætlaði að gista
fyrstu nóttina. Þetta var snoturt
hótel, kvöldmaturinn var afbragð
og i herbergi hans var sjónvarp,
mjúkt rúm og dásamlegt útsýni.
En útsýnið varð einskis virði,
þegar Patti var ekki til að dást að
þvi, og það var ekkert gaman að
horfa á sjónvarp, þegar Patti var
ekki viðstödd til að segja skoðun
sina á léikurunum, og rúmið var
kalt og allt of stórt fyrir einn.
Honum kom varla dúr á auga
alla nóttina og hann for snemma
á fætur, til að komast sem fyrst i
fuglabyggðina. En einhvern veg-
inn var ekki eins gaman og hann
hafði haldið að virða fyrir sér
þessa svörtu og hvitu fugia, sem
stikuðu um, háfættir. Hann tók
myndir, skrifaði nokkrar linur i
minnisbókina og fór aítur til
hótelsins.
Meðan hann snæddi hádegis-
verð fór hann að bera ánægjuna
af fuglaskoðun saman við nær-
veru Patti og hlýtt bros hennar.
Patti vann með yfirburðum og
hann tók i skyndi saman farangur
sinn, undarlega léttur i skapi. En
svo fór hann að hugsa um fram-
hald sumarleyfis sins og hann sá,
að hann gæti ekki haldið þetta út.
Ef hann færi heim, myndi allt
þar minna hann á Patti og ef hann
hringdi i hana gæti verið að hún
kæmi heim, fyrr en áætlað var, til
að geta verið með honum. Hann
ók heim á leið og hlakkaði til
þeirra friðsælu daga, sem hann
átti i vændum.
Hann beygði inn i götuna og ók i
átt til húss sins. En þegar hann sá
tvo bila á bilastæðinu, Weypti
hann brúnum. Nágrannarnir
höfðu auðvitað notfært sér autt
bilastæðið, þegar þeir vissu að
hann og Patti voru að heiman.
Þegar hann kom nær sá hann
þriðja bilinn, efst i innkeyrslunni,
og þá var honum nóg boðið.
Hann lagði bil sinum eins ná-
lægt húsinu og hann gat og,
smeygði sér framhjá bilunum
tveimur. Hann ætlaði að þvo sér
og snyrta sig aðeins, áður en hann
færi aö athuga, hverjir ættu þessa
bila.
Allt i einu heyrðust hlátrasköll
innan úr húsinu og hann stað-
næmdist, meðan hann var að
velta þvi fyrir sér hvort hann ætti
að fá lánaöan sima hjá nágrönn-
unum og hringja i lögregluna, eöa
kanna málið fyrst sjálfur. Hann
læddist meðfram húsinu óg sá þá,
aö tveir háir stigar höfðu verið
reistir upp við eina hliöina. Hann
fór fyrir næsta horn, inn i bak-
garöinn, og þar, á grasblettinum,
sem honum var svo annt um, var
skærgult tjald, opið, og i þvl tveir
bláir svefnpokar. Gula tjaldið
minnti hann á eitthvað. Hann
haföi áreiðanlega séð þaö ein-
hvers staðar áöur.
Já, auðvitað. Þetta var tjaldiö
hans Hikki, tjaldið sem hann
hafði ferðazt með á piparsveins-
árum sínum og tjaldað á nær
hverjum fermetra Bretlandseyja.
Robert skreið að stofugluggan-
um, kikti inn um gluggann og við
þá sjón, sem við honum blasti,
var sem úr honum væri dreginn
allur máttur. Húsgögnin höfðu öll
verið fjarlægð, veggfóðrið hékk
hálfrifið á veggjunum og önnum
kafin við að hreinsa veggina var
FJÖLSKYEDAN. Allir voru i
vinnusloppum og með húfur og
unnu skipulega að breytingum á
hans eigin húsi.
„Nei, ég trúi þessu ekki”, hvisl-
aði Robert. ,,Ég verð að reyna að
komast héðan”.
En hann var of seinn á sér, þvi
til hans hafði þegar sézt. Sjö and-
litnálguðust gluggann og störðu á
hann, undrandi. Patti flýtti sér að
opna gluggann.
„Robert, elskan min, hvað er
að? Ertu veikur?”
„Nei, ekki enn”, sagði Tig,
glaðlega. „En hann verður það á-
reiðanlega á hvérri stundu, þvi
hann er orðinn gulur og grænn i
framan, vesalingurinni’.
„Komdu inn, komdu inn”, sagði
Patti, opnaði stofudyrnar og
leiddi hann varlega framhjá
vatnsfötum og veggfóðurlengj-
um. Robert staulaðist á eftir
henni og tautaði einhver kveðju-
orð til Yoyo, Herbie, Rikki, Baby,
Tig og Jonty, sem nú voru enn
hraustlegri útlits en þegar hann
hafði siðast séð þau.
„Farðu með hann inn i eldhúsið
Patti”, sagði Herbie i skipunar-
tón. „Við verðum að ná veggfóðr-
inu af veggnum fyrir myrkur”.
Patti og Robert voru komin inn
i eldhús og aldrei þessu vant var
Patti dálitið skömmustuleg.
„Finnst þér þetta ekki stórkost-
legt — svona óvænt. Við ætlum að
taka allt húsið i gegn, betrekkja
og mála. Þú áttir ekki að koma
heim fyrr en allt væri um garð
gengið”.
„Ég sé það”.
„Krakkarnir eru hjá mömmu
og pápa og állir taka helming
sumarleyfis sins i að gera þetta
fyrir okkur”.
Robert fannst sem jörðinni væri
kippt undan fótum hans. Hann
vissi vel, að á þeim tveimur ár-
um, ?em þau höfðu búið i húsinu,
hafði hann ekki gert handtak til
að reyna að koma þvi i sæmilegt
stand, enda ómögulegur til við-
gerða.
Hann vissi að húsið þarfnaðist
viðgerðar og hann vissi að
FJÖLSKYLDAN var fyllilega fær
um að mála og veggfóðra húsiö að
utan og innan á fjórum eða fimm
dögum. Þess vegna var hann fók-
vondur.
Baby kom inn i eldhúsið með
miklum bægslagangi og ýtti hon-
um til hliðar. „Kjötkássan ætti að
vera tilbúin núna”, sagði hún og
lagðist á hnén fyrir framan elda-
vélina.
Jonty birtist og fór að hlaöa osti
og eplum á disk. Yoyo fór að
skera niður tvö stór brauð og Ró-
bert, sem fann að honum var al-
gerlega ofaukið ákvað að foröa
sér, áður en hann fengi einhvern
olnbogann i augað. Hann rölti út i
garöinn og þar var Rikki aö reyna
að koma þriðja svefnpokanum
fyrir i tjaldinu. Hann vissi strax
hverjum pokinn væri ætlaður.
Rikki leit upp og glotti.
„Hertu upp hugann vinur. Ef þú
getur ekki sigrazt á þeim, þá er
eina ráðið að ganga i liö með
þeim, eins og ég geröi. Þetta er
ekki nærri eins slæmt og það lltur
út fyrir aö vera”.
Robert trúði honum ekki.
Þau snæddu, sitjandi á gólfinu,
létu diskana ganga, læstu heilum,
hvitum tönnunum i eplin og veif-
uðu hnifapörunum, meðan þau
töluðu. Robert neyddist til að taka
þátt i þessu, hló að þessum venju-
legu bröndurum um fuglaskoðun
hans og óbóið, en safnaði á meðan
saman i hugskoti sinu öllu þvi,
sem hann ætlaði að segja við
Patti, þegar þau yrðu tvö ein
saman.
En þau voru ekki tvö ein sam-
an. Þegar þau höfðu lokið snæð-
ingi fóru allir að spila Matador,
þetta lika gáfulega spil. Þau sátu
Framhald á bls. 38
22. TBL. VIKAN 33