Vikan - 30.05.1974, Qupperneq 41
ekki svona gamla konu i far.gelsi.
Ég held að slikt geti ekki skeð i
Englandi.
Eitt andartak langaði hann
mest til aö myrða kerlinguna. En
það yrði ekki til að hjálpa honum.
Hann varð að finna einhver ráð,
til að fá hana til að punga út með
peninga. Hræða hana svo eftir-
minnilega, að hún þyrði ekki
annað. Hún stóð þarna, þráðbein
eins og kústskaft og þrýsti kettin-
um upp að innföllnum barmi sin-
um og þá datt honum snjallt ráð i
hug.
Hann sagði vingjarnlega: —
Þér þykir vænt um þennan brönd-
ótta kött, er það? Þú vilt liklega
ekki að hann verði fyrir slysi..
Hún andaði djúpt og skrykjótt.
Óttinn skein úr augum hennar og
hún þrýsti kettinum enn fastar að
sér.
— Það er kannski liklegt, að þú'
hafir á réttu að standa. Þeir taka
ef til vill tillit til þess, að systir þin
er svo gömul og hrum. Það getur
jafnvel verið, að hún sleppi alveg.
Þú getur bara farið til lögregl-
unnar. En ég vil ráðleggja þér að
passa vel kattarskrattann. Það
getur vel verið, að einhver nái i
hann á dimmu kvöldi. Það er
hægt að fá töluverða peninga
fyrir svona feitan og vel hirtan
kött, þeir borga vel fyrir ketti á
rannsóknastofunum. Það er hitt
og þetta, sem hægt er að gerg við
svona þrifalega ketti....
Þá fór hún að gráta og hann
sneri sér frá henni og lagði af stað
niður eftir götunni. Hann vissi
ekki hvað kom honum til þess,
vissi aðeins, að hann varð að
koma sér i burtu. Hún kallaði á
eftir honum, með skjálfandi
rödd: — Ég á hring, sem ég erfði
eftir móður mína. Ég gæti selt
hann. Ég vil gera allt sem á mínu
valdi stendur, bara ef Tibby
verður ekki fyrir neinum óhöpp-
um. Ég skal reyna að ná i meiri
peninga á einhvern hátt....
Hann leit um öxl og tautaði: —
Ég vona að ég geti treyst þvi,
þá...
Hann var kominn að hinni
hliöinni á tóftunum, hallaði sér
þar upp að vegg og það lá við að
hann kastaði upp. Honum leið
illa. Honum hafði alltaf þótt
gaman af þvi að hræða fólk, hafði
jafnvel gert það frekar sér til
skemmtunar, heldur en beinlinis
fyrir peningana. En það var eitt-
hvað við þessa gömlu konu, sem
stóð þarna og kjökraði hljóð-
lega....það er eitthvað öðruvisi.
Nokkrum minutum siðar heyrði
h’ann létt fótatak, sem nálgaðist
óðum. Hannn gægðist varlega
fyrir hornið.
Það var barn, sem kom i áttina
til hans, litil hnyðra i gallabuxum
og vindjakka. Barnið hoppaði og
stökk áfram og kom svo nálægt
honum, að hann hefði getað snert
það. Svo hélt telpan áfram niður
að aðalgötunni og hann gat virt
hana vel fyrir sér i birtunni frá
ljósaskiltinu yfir sjoppudyrunum.
Hann sá að hún hélt á einhverju i
hendinni og þegar hann gætti
betur að, sá hann að það var
pundsseðill. Sid tók undir sig
stökk, hann gat ábyggilega hrifs-
að af henni seðilinn, áður en hún
yrði vör við hann. Þótt krakka-
kjánanum dytti i hug að hlaupa á
eftir honum, þá var hann nú far-
inn að þekkja hverja gjótu i þessu
húsabraki öllu saman.
En eitthvað var það sem fór úr-
skeiðis. Það brakaði I mölinni
undan fótum hans og barnið sneri
sér við. Sid rétti út höndina eftir
peningunum en barnið hörfaði
undan. Nú sa hann að þetta var
ljóshærð telpa, óttafull á svipinn.
Hann hikaði andartak. Honumvar
ljóst, að skynsamlegast var að
snúa sér við og hlaupa. En
peningarnir voru svo nálægt. Og
þetta var bara smástelpa. Hann
gat náð i seðilinn áður en hann
hljóp.
En meðan hann hikaði kom hún
alveg að honum. Hún sveiflaði
handleggnum og hitti beint i and-
litið á honum með litla hnefanum.
— Snertu mig ekki! öskraði
hún. — Andstyggilegi þjófur! Ég
skal segja lögreglunni.... Og
skyndilega greip hann ofsa-
Vogar-
merkift
24. sept. —
22. okt
Þú hefur of litið sinnt
þinum persónulegu
einkamálum að und-
anförnu, enda hefuröu
haft i mörgu að snú-
ast. Nú kemstu hins
vegar ekki hjá þvi aft
sinna þeim. Þér
kemur á óvart, aft
ýmislegt hefur gerzt,
sem þú vissir ekki um.
Dreka-
merkift
24. okt. —
22. nóv
Stjörnurnar eru þér
hagstæftar um þessar
mundir, svo að þér
ætti aft vera óhætt aft
skemmta þér svolitift
og reyna aö njóta lifs-
ins. Þú skalt byrja
strax aö undirbúa
ferftalag i sumar, sem
öll líkindi eru til aft
heppnist mjög vel.
Bogmanns-
merkjft
22. nóv. —
21 clev
Nú fara i hönd góðir
dagar. Timabil óvissu
og erfiðleika ætti að
vera úr sögunni. öll
aðstaða þin hefur farift
batnandi að undan-
förnu og ef þú heldur
rétt á spilunum muntu
hagnast verulega pen-
ingalega séft. En
gleymdu ekki að lofa
öftrum aft njóta vel-
gengninnar meft þér
Nýjung fyrir alla fjölskylduna ...
fljótt og auðvelt
Remington hárbursti og þurrka í senn, sem greið-
ir, leggur og þurrkar hárið á örskammri stund. Öll
fjölskyldan nýtur þess, ef slíkt tæki er til á heim-
ilinu. Remington Family Styler HW 16 fæst
með bursta og tveimur greiðum, sem
nota má til skiptis. Árs ábyrgð.
Remington Hot Camb HW 18 fæst
í svörtum lit og hentugum ferða-^
umbúðum. Bursti og tvær
greiður. Árs ábyrgð.
oorfks1 SPERRY>4=REAAINGTON
Laugavegi 178 simi 38000 — merki sem tryggir gæðin.
Geitar-
merkift
22. des. —
21). jan
Aætlanir þinar og hug-
myndir falla ekki vel i
geft þinna nánustu. Þó
skaltu ekki gefa þær
alveg upp á bátinn,
heldur biða betra fær-
is og hrinda þeim i
framkvæmd jafn-
skjótt og þú þarft ekki
aft fórna of miklu fyrir
þær.
21. jan. —
19. fehr
Övæntir atburftir ger-
ast i þessari viku og
munu þeir raska öll-
um fyrirætlunun. Þú
ættir aft hafa nánara
samband vift fjöl-
skyldu þina og.reyna
eftir beztu getU' aft aft-
stoða haná.'
20. febr. —
20. m a r /
Vikan verftur heldur
grá og hversdagsleg i
fyrstu, en lagast þegar
á liöur. Þú ert þreytt-
ur eftir eril og áhyggj-
ur vetrarins og ættir
að reyna að hvila þig.
Stjörnuspá
22. IBL. VIKAM 11