Vikan - 30.05.1974, Page 45
þá. Hann gerði alla uppdrætti að
skipinu i samráði við Nansen.
Smiði þessa skips krafðist rikrar
hugvitsemi og ýtrustu vand-
virkni, þar eð öll gerð þess og lög-
un átti að miðast við það tvennt,
að það stæðist átök issins og gæti
um leið orðið leiðangursmönnum
þægilegt heimili og hentug vinnu-
stöð á rekinu með isnum. Ekki
var hægt að leita annað um fyrir-
myndir, þvi þetta var fyrsta skip-
ið, sem smiðað var i þessu skyni.
Reynslan sýndi siðar, að þeir
Archer gamli og Nansen höfðu
verið vanda þeim vaxnir.
Skipasmiðastöð Archers stóð
við Rekavik i Larvikurhéraði, og
þangað bauð Nansen ýmsum vin-
um sinum og stuðningsmönnum
hinn 26. október 1892.
Efst á rennibraut skipasmiða-
stöðvarinnar gat að lita byrðing
einn, borðháan og breiðan. Það
var leiðangursskipið, sem nú átti
að hlaupa af stokkunum.
Frú Nansen skirði skipið og gaf
þvi nafnið „Fram”. Það skips-
nafn varð siðan á margra vörum,
viðs vegar um heim. Er frúin
hafði brotið kampavinsflösku á
stefni þess, eins og venjur mæla
fyrir, var það leyst úr hömlum og
seig til sævar.
Þúsundir manna voru viðstadd ir
athöfn þessa. Eftir þvi sem und-
irbúningi leiðangursins miðaði i
áttina, óx athygli og áhugi al-
mennings. 1 Larvik var það þó
einkum leiðangursskipið sjálft,
sem vakti athygli manna, þvi
þaðan stunduðu menn þá sela-
veiðar i norðurhöfum af kappi
miklu, og þar voru mörg selveiði-
skip byggð, svo flestir Larvikur-
búar báru gott skynbragð á sjó-
ferðir um „Dumbshafið kalda”
og farkosti til slikra svaðilfara.
Það fór þvi að likum, að þeim
l'éki forvitni á að skoða fyrsta
skipiö, sem smiðað var með tilliti
til þess, að tröllatök issins gætu
ekki unnið þvi grand. Skipið var
og næsta athyglisvert. Það var
tvistöfnungur, skráð 402 smálest-
ir, 39 metrar á lengd milli hnifla
en 31 metri að kjöllengd. Stefni
voru gerð úr þrem eikarplönkum,
járnhlifuð og járnspengd. Byrö-
ingssúðin var úr þrefaldri eik, en
yzta lagið úr greenhartviði, reng-
ur gerðar úr fornri valeik, tvö-
faldar og þéttsettar, en innan á
þær var lögð þreföld þekja úr
tjarfuru, og var allur byrðingur-
inn 70-80 sentimetrar að þykkt.
Lestarrýmin voru þrjú, aðskilin
vatnsheldum þilveggjum, en bilið
milli innþekju og byrðingssúðar
troöið bikeltu sagi upp fyrir
vatnslinu. Skipið var þrisiglt,
gekk fyrir gufu og seglum, kinn-
ungaflátt mjög, þar eð allt lag
þess miðaðist við það, að það lyft-
ist, ef isjakar eða skarir þrýstu að
þvi á tvo vegu.
Og nú vildu fleiri slást i förina
en fengið gátu, bæði erlendir
menn og innlendir, en auðvitað
varð sú skipshöfn að vera al-
norsk, sem ef til vill átti fyrir
höndum að stýra skipi undir
norskum fána yfir Norðurheims-
skaut, eða að minnsta kosti i nánd
viö það. Nansen hafði áður sann-
að, aö honum var sýnt um val
dugandi samferðamanna, og sið-
ar kom á daginn, að honum mis-
tókst ekki heldur i þetta skiptið.
Ahöfn var þessi:
Skipstjóri: Otto Sverdrup.
Styrimaður: Theodór Claudius
Jacobsen.
Ishafsskipstjóri: Pétur Henrik-
sen.
Ishafsstýrimaður: Bernt Bent-
sen.
Fyrsti vélstjóri: Anton Amund-
sen.
Annar vélstjóri: Lars Pettersen.
Bryti og matsveinn: Adolf Juell.
Skipslæknir: Hinrik Blessing.
Auk þess: Sigurd Scott Hansen,
er annaðist veðurfræðilegar og
stjaiyifræðilegar rannsóknir, en
hann var yfirliðsforingi I norska
hernum: Hjalmar Johansen,
varaliðsforingi, er veitti honum
aðstoð við veðurathuganir, en var
einnig kyndari á skipinu: Bern-
hard Nordahl, sjóliði, er var raf-
virki og aðstoðarkyndari, og Ivar
Mogstad, „þúsund þjala smiður”.
Skipslæknirinn annaðist jurta-
fræðilegar athuganir, — sem
læknir hafði hann litið að starfa i
förinni og tók þvi upp á að lækna
sleðahunda leiðangursins, til þess
að gleyma ekki listum sinum al-
gerlega. Um Bernt Bentsen er
það að segja, að upphaflega var
ekki til þess ætlazt, að hann tæki
þátt 1 leiðangrinum.Hann áfli að-
eins að fara til Jugorsunds, kom
um borð i „Fram” tæpum tveim
stundum áður en skipið lagði af
stað, en afréð siðan að láta eitt yf-
ir sig og leiðangursmenn ganga.
Hann reyndist dugandi maður i
hverri raun, og glaðlyndi hans
stytti þeim félögum marga stund-
ina.
Eins og áður er um getið, var
tilgangur fararinnar tviþættur.
Ef kenningar Nansens um haf-
strauma og isrek við Norðurskaut
sönnuðust, ætlaði hann sér að
komast eins langt norður eftir og
unnt reyndist, og ef til vill freista
að ná til Norðurheimsskauts. Vis-
indalegar rannsoknir voru annar
þátturinn. Ekki var siður til und-
irbúnings þeirra vandað, þvi
kunnustu visindamenn, erlendir
og innlendir, lögðu þar hönd að
verki, hver á sinu sviði, en ýmsar
stofnanir og verksmiðjur létu i té
fullkomnustu rannsóknartæki, er
þa var völ á. Ýmsir. velmegandi
og kunnir menn veittu leiðang-
ursmönnum ómetanlega aðstoð.
Edvard v. Tol, barón i St. Péturs-
borg og kunnur fyrir rannsóknar-
ferðir sínar um Norður-Siberiu,
útvegaði þeim valda sleðahunda.
Honum var þaðog mest að þakka,
að reist voru þrjú forðabú á Ný-
Síberiueyjum, i þvi skyni að leið-
angursmenn ættu þar visar vista-
birgðir, ef þeir yrðu skipreika á
þeim slóðum. Maður nokkur i tr-
kútsk borgaði úr sinum vasa bæði
sleðahundana og kostnaðinn við
byggingu forðabúranna.
Margir unnu dyggilega að und-
irbúningi fararinnar og sönnuðu
þar forsjálni sina og fórnfýsi.
Engu að siður bar Nansen hita og
þunga allra áætlana og fram-
kvæmda. Honum var það að
þakka, að allt var fyrirframþaul-
hugsað og þrautreynt. Á meðan
hann vann að undirbúningnum,
var hann önnum kafinn langan
dag, en lá siðan vakandi um næt-
ur og reyndi að gera sér i hugar-
lund öll slys og óhöpp, sem hugs-
anlegt var, að fyrir kynnu að
koma I ferðinni, og oft bar þá við,
að hann kveikti ljósið og tók að
rita niður, sér til minnis. Enda
sagði hann sjálfur svo frá, 'er
hann kom úr förinni, að ekkert
það hefði skeð, er hann var ekki
búinn að gera ráð fyrir, er lagt
var af stað. Já, — hann hafði
meira að segja gert ráð fyrir
fimmfalt fleiru en þvi, sem fram
kom.
Lagt af stað
Fram lagði af stað frá Osló, — •
er þá nefndist Kristiania, — á
Jónsmessudag 1893. Daginn eftir
var siglt inn til Rekavikur, en þar
kom Archer gamii um borð og
stýrði skipinu sjálfur nokkurn
spöl. Er hann og bræður Nansens
fóru I land, lét Nansen skjóta af
fallbyssum skipsins, „föður þess”
til heiðurs. Siðan var siglt fyrir
Liðandisnes norður til Björgvinj-
ar. Á þeirri leið hrepptu þeir
ókyrran sjó, og Fram reyhdist
valt mjög, enda var byrðingslag
þess miðað við átök issins, en ekki
það, að það færi vel i sjó. Tók þá
farviöur á þilfari að færast úr
stað, en skipverjar lentu i vosi
miklu við að halda honum á þil-
fari og koma honum aftur i skorð-
ur. Juell matsVeihn hafði aðsetur
sitt I einum skipsbátnum, en þorði
ekki að hafast þar við, er Fram
valt sem mest. En ekki tók betra
við, er hann kom niður á þilfarið,
þvi stórsjór reið að skipinu, og
tvivegis munaði minnstu, að hon-
um skolaði fyrir borð. Svo fór, að
þeir urðu að varpa allmörgum
oliutunnum, er á þilfari stóðu,
fyrirborð ásamt miklu af timbri.
Eftir þetta fengu þeir hið bezta
veður. Þeir komu við i Björgvin,
og Nansen flutti þar fyrirlestur,
en bæjarbúar héldu honum og
skipverjum veizlu mikla, er stóð
allt til morguns, en þá kvöddu
þeir skipið og leiðangursmenn
með söng.
Þeir sigldunorður með strönd-
um Noregs. Fólk, sem þeir mættu
róandi á bátum, kallaði til þeirra
kveðjuorð og árnaðadóskir, þvi
allir strandbúar Noregs könnuð-
ust við Fram og leiðangursmenn-
ina. Þeirkomu til Varðeyjar hinn
19. júlí. Einnig þar beið þeirra
glæsileg veizla. Daginn eftir var
skipið hreinsað, en skipverjar
tóku sé bað i finnskri baðstofu.
Arla að morgni létu þeir úr höfn
og héldu til Kjabaróva við Jugor-
sund. A leiðinni .þangað varð fyrir
þeim rekis nokkur. Þeir þræddu
örmjó og kröpp sund gegnum
breiðuna og dáðust að, hve vel og
fljótt skipið lét að stjórn.
Rússneskur maður kom til
móts við þá i Kjabaróva með
sleöahunda þá, sem fyrr er um
getið. Nansen og Rússinn böittu
nokkrum þeirra fyrir sleöa til
reynslu, en þeir reyndust hinir
óstýrilátustu. Siðan voru þeir
bundir á framþiljunum. Kom þá
fljótt i ljós, að þeir voru radd-
miklir og hneigðir til sönglistar,
sem skipverjar kunnu þó ekki
sem bezt að meta. A meðan leið-
angursmenn dvöldu i Kjabaróva,
héldu hirðingjar, er þar voru
staddir, St. Eliasar-hátið með
viðeigandi gleði og áfengis-
22. TBL. VIKAN 45