Vikan - 04.12.1975, Qupperneq 13
nskujótín
Hulda Á Stefánsdóttir:
sem var verslunarvara. Ot á smáband-
ið var tekinn jðlavarningurinn, sem
var aðallega kaffi, sykur og önnur
þvílík munaðarvara. Þelbandið var
notað í vaðmál og dúka, því efni í
fatnað var ofið á bæjunum, það
þurfti að koma upp alls konar
fatnaði fyrir hátíðina. Enginn mátti
klæða köttinn. Vandað og vel
unnið band þurfti í allan nærfatnað
og sokkaplögg. Það var mjög gaman
og lærdómsrikt að fylgjast með
vinnubrögðunum á stóru sveitaheim-
ili, þar sem flest var framleitt, sem
heimilið þarfnaðist.
Þá var það tilbreyting, þegar Grim-
ur hringjari kom til að þæfa voð-
irnar, áður en þær voru pressaðar og
sniðnar. Lítill pallur var settur fyrir
framan ofninn í norðurhúsinu og
koffort sett i kring, svo voðin rynni
ekki út af pallinum. Studdist Grím-
ur fram á eitt koffortið og hamað-
ist við þófið, svo svitinn bogaði af
honum. Hann var samt berfættur
og aðeins á nærklæðunum. Mamma
sendi honum öðru hvoru sterkt kaffi
í stórri krús, og oft var það bragð-
bætt með svolítilli brjósthýru, glaðn-
aði þá yfir þófaranum. Grimur var
mér ráðgáta, en cg leit upp til hans,
því hann hringdi kirkjuklukkunum
á helgum dögum og eins við allar
jarðafarir, mér fannst enginn annar
myndi kunna þá list.
Öll þessi mikla vinna í skammdeg-
inu var eins konar forleikur jólanna.
Ullin varð mýkri i höndum stúlkn-
anna og rokkarnir léttari, þegar
hugsað var til hátíðarinnar og þess
gætt, að allt voru þetta nauðsynleg-
ir þættir í undirbúningi væntanlegr-
ar jólaglcði. Það valt á miklu, að til
alls væri vandað og ekkert vantaði,
þegar hin mikla hátið rynni upp.
Þá var gaman á góðviðrisdögum að
fylgjast með reyknum, sem hringaði
'sig upp úr cldhússtrompinum og
læddist frani göngin i garnla bænum.
Allir vissu, að mikið var i húfi að vel
tækist mcð allan reykta matinn.
Stúlkurnar skutust öðru hvoru út í
eldhús til að lita eftir eldinum og
bæta á glóðina. Stundum var læðst
á efiir þcim, það var svo skemmti-
legt að horfa inn í hlóðirnar og sjá
a 111 góðgætið, sem hékk uppi í
rótinni. Það kom vatn í munninn
á okkur krökkunum, þegar við sáum,
hvað leyndist í reyknum. En til þess
að skilja það verðum við að hugsa til
þess, að lítil fjölbreytni var þá í
daglegu mataræði.
Sem dæmi minnist ég þess, að dag
einn kom maður að Möðruvöllum,
hann var vinnumaður frammi í
Eyjafirði. Á vökunni tóku menn
hann tali, spurðu meðal annars,
hvernig vistin væri og hvað væri
skammtað á bænum. Það er nú oft-
ast vellingur og soðiðbrauð, svaraði
gesturinn. Ekki er það alla daga,
spurði einn heimamanna, og svo voru
vikudagarnir taldir I röð, og alltaf var
sama svarið: Vellingur og soðið-
brauð. Á sunnudögum er þó liklega
eitthvað annað á boðstólum? Nei,
Ef þér eruð í vandræðum
með jólagjöfina?
komi þá og skoðið
VIBRAMED THERM NUDDPUÐANN OG
VIBROSAN NUDDTÆKIÐ
Kærkomnar gjaf ir hvort sem er handa honum
eða henni Svissnesk gæðavara.
Vibramed
Therm nuddpúðinn
er auðveldur í notkun
og hefir 3 styrkleika á
nuddinu
hefur yngjandi áhrif
regluleg notkun hjálpar
til við megrun og
eyðir undirhöku.
NUDDTÆKIÐ
Mýkir vöðvana, eykur blóðrás og gefur
hörundinu heilbrigðan lit og styrkir það þann-
ig að hrukkur myndast síður.
5 ára ábyrgð.
-
VIBROSAN
49. TBL. VIKAN 13