Vikan - 04.12.1975, Qupperneq 31
— En hefur starf þitt sem leik-
kona komið niður á heimilinu?
. — Þ,að er nú ekki mitt að dsema
uij^.það, en ég held ekki. Ég var
svo lánssöm, að móðir mín bjó
hjá mér meðan eldri dóttir mín
ólst upp og fyrst eftir að sú yngri
fæddist, Eftir að hún dó, hefir
góð vinkona mín algjörlega annast
yngri dóttur mína, þegar ég er að
vinna. Hennar starf er mér ómet-
anlegt og aldrei fullþakkað, þvi
ef ég hefði þurft að velja milli
heimilis og starfs, er ég ekki í
nokkrum vafa um valið, en ég er
ósköp þakklát að hafa ekki þurft
að velja.
— Ertu kvenréttindakona?
— Auðvitað er ég það — og
það er að bera i bakkafullan
lækinn að segja hvers vegna — á
kvennaári. En það eru ekki svo
ýkja mörg ár síðan ég áttaði mig
á þvi, að það er sjálfsagt, að hjón
sem bæði vinna úti, skipti með sér
heimilisstörfum. Það voru eigin-
lega eldri dóttir min og maðurinn
minn, sem komu mér í skilning
um það.
— Annars finnst mér leiður
misskilningur rikja hjá sumum
heimavinnandi konum, og
kannski ekki alveg að ósekju —
semsé, að kvenréttindakonur líti
niður á húsmóðurstarfið. Er til
vandasamara og mikilvægara starf
en barnauppeidi? Og finnum við
þá konu, sem ekki er vansxl,
ef eitthvað amar að börnum
hennar? Það eiga að vera sjálf-
sögð mannréttindi hvers karls og
hverrar konu að velja það lífs-
starf, sem hann eða hún helst
kýs. Það hlýtur að vera eina
leiðin til að góður árangur náist í
starfi.
— Undanfarin ár hefur þú leik-
ið töluvert af þreyttum konum,
Sigríður, til dæmis I Hitabylgju,
Hjálp og Fjölskyldunni. Ert þú
sjálf þreytt kona?
— Nei, ég er ekki þreytt kona.
Ég er ólíkt hamingjusamari I
dag en sem ung stúlka. Starf
mitt er jafnframt mitt helsta
áhugamál. Heima mæti ég
fullum skilningi hjá tveimur ynd-
islegum dætrum og eiginmanni.
Hitt er svo annað mál, að fæstir
ganga I gegnum lífið, án þess að
verða mcira eða minna fyrir barð-
inu á því — og svo er einnig um
Qollei
Fyrir litskyggnur 35mm
Sjálfvirkar
Sterkar
ódýrar
Verð frá
kr. 31.600,-
ALLT TIL
LJÓSMYNDUNAR
Austurstræti 6
Simi 22955
Badedas þekkja allir. Fæst í öllum snyrtivöru
verslunum og apótekum á landinu.
Umboð H. A.Tulinius heildverzlun
49. TBL. VIKAN 31