Vikan - 04.12.1975, Qupperneq 75
ekki eins uppfinningasöm, en hafa
því meira gaman af að búa eitthvað
til í höndunum. Handa þeim eru
til margar btekur til hjálpar, bækur
um saumaskap, prjón, smíðar og hitt
og annað föndur.
Jafnvel þótt börnin séu alls ekki
lipur í höndunum og vilji ekki búa
til hlutina sjálf, má ekki taka frá
þeim gleðina af að finna, kaupa eða
útvega á annan hátt þá hluti, sem
þau ætla að gefa í jólagjöf. Það er
sannarlega mikið til í máltxkinu,
sem segir, að sælla sé að gefa en
þiggja. Skemmtilegasta augnablikið
á jólakvöldinu er alls ekki, þegar
barnið rífur nýjan fínan búðarpappír
utan af nýju skíðunum, heldur þegar
þeir fullorðnu taka á móti pakka með
undrun og forvitni í svip og taka utan
af honum heilmikið af seglgarni og
heila hrúgu af gömlum og krulluðum
pappír.
,,Ertu ekki fegin, mamma? Er
þetta ekki einmitt það, sem þig
vantaði?”
Börnin á jólunum.
Flest börn hlakka geysimikið til
jólanna. Þau hlakka til, en stundum
er tilhlökkunin ögn blandin vafa um
að jólin verði nú alveg eins undur-
samleg og þau hafði dreymt um.
Sjö ára strákur sagði eitt sinn með
tárvot augu: ,,Ég kvíði svo fyrir
jólunum!” Af hverju? ,,Ég er svo
hræddur um, að ég fái ekki það, sem
ég hef óskað mér, og að jólin
verði ekki eins skemmtileg og ég
held.”
Það er kannski ekki algengt, að
slíkar tilfinningar fái yfirhöndina, en
samt er þær að finna hjá mörgum.
Hvort sem börnin hlakka til jól-
anna eða ekki, og hvort heldur þau
verða vonsvikin á jólakvöldið eða ekki
þá er víst, að þau verða fyrir sterkum
tilfinningasveiflum. Og tilfinningar
reyna á andlega krafta. Maður getur
orðið þreyttur af að finna svo mikið
til.
Auk þessa fá börnin að vaka lengur
en annars. Dálitlar vökur tilheyra
jólunum. En börnin eiga 5 erfið-
leikum með að sofa svo lengi fram-
eftir á morgnana, að þau geti rétt
þetta svefnleysi af, og jafnvel þó
þau geti það, þá kemst óregla á
svefntímann. Það er ekki svo auð-
velt að koma honum í samt lag aftur.
Ef um mörg jólaboð er að ræða,
verða börnin ennþá þreyttari.
Þreytt börn..
Auðvitað er ekkert við því að segja,
þótt börn verði þreytt. Það gerir
lífið aðbins tilbreytingarríkara og
gleðilegra að upplifa stundum eitt-
hvað óvenjulegt, að tilfinningarnar
fái útrás og að ttverða þreyttur af
glcði og spenningi. Gegn slíku
á ekki að verncte börnin.
En það er jafngott að vita fyrir-
fram, að áhrifanna gætir oft lengi
eftir jólin. Þreytt börn verða auð-
veldlega önug og taugaslöpp.- Mat-
arlystin getur orðið slæm í nokkra
daga, þau slást og skammast við
systkinin, þau eru eilífðartíma að
klxða sig á morgnana, þau verða til-
tektarsöm og haga sér illa við mál-
tíðir. Þau nöldra og væla. Slíkt
er alveg eðlilegt. Það versta er, að
fullorðna fólkið er I rauninni alveg
eins. Það er einnig taugaspennt
og getur verið önugt, það þolir
minni hávaða, missir fyrr þolinmæð-
ina.
í slíkum tilfellum erum það við
fullorðna fólkið, sem verðum að
skilja ástandið, þannig að við getum
bæði stjórnað hlutunum og fundið
lausn á þeim.
Dálítil aukahvíld er góð, bæði
fyrir fullorðna og börn. Börn hafa
gott af því að sofa eftir mat, Já,
jafnvel stærri börn, sem ekki eru því
vön, ekki aðeins sjálfs sín vegna,
heldur og til að gefa þeim full-
orðnu dálitla aukahvíld.
Hreint og hressandi loft hjálpar
mikið, og það hefur ótrúlega góð
áhrif ef fullorðnir fara út með börn-
unum til að reyna nýja sleðann eða
aðstoða þau á annan hátt. Full-
orðnir fá frlskt loft, sem þeir þurfa
nauðsynlega á að halda, og börnin
fá hjálp og ýmislega aðstoð, sem oft
er nauðsynleg til að ýta börnunum
út I leiki og græskulaust gaman.
Gætum okkar einnig á hinum
þunga jólamat, og verum ekki smeyk
við að bjóða upp á grænmeti og
ávexti.
Spilið og leikið við börnin.
Oft er erfitt að finna upp á ein-
hverju skemmtilegu, þegar komin er
þreyta I mannskapinn. En við verð-
um að reyna að hressa okkur upp og
hjálpa börnunum til að hefja leiki
bæði úti og inni.
Sjálfsagt er að nota frídagana til að
safna fjölskyldunni eins mikið saman
og hægt er. Gömlu jólaleikirnir
eru ágætir til þess og allir kunna
cinhverja sllka leiki slðan I gamla
daga, og svo eru til ýmsar leikja-
bækur að fara eftir.
Rólegri leikina ber að leika rétt
fyrir svefninn, því þá gengur betur
að fá börnin til að sofna. En þegar
spilað er á spil, verður að taka með
I reikninginn, að börnin eiga erfið-
ara með að tapa, þegar þau eru
þreytt. Minni börn eiga yfirleitt
erfitt með að tapa. Það er ekki
fyrr en þau ná átta til tlu ára aldri,
að þau eru orðin nógu þroskuð til að
kunna að taka tapi, og jafnvel þá
er mikill munur á einstaklingum,
þannig að sumir taka þvl vel, en
aðrir þunglega.
Einnig verður að hafa I huga,
að börn verða ennþá barnalegri,
DEN KONGlELIGE
PORCELAINSFABRl K A/S
i tilefni 200 ára afmælis Konunglegu helguðerPOOáraafmælum.
postulínsverksmiðjunnar I Kaup- Næsta árs platti er helgaður 200 ára
mannahöfn hafa þessir munir veriö afmæli sjálfstæðisyfirlýsingu Banda
sérstaklega framleiddir. rlkjanna og mun koma út nú fyrir
Plattinn er sá fyrsti I nýrri serfu sem jólin.
JÓHANNES NORÐFJÖRÐ H.F.
LAUGAVEG 5 SÍMI 12090.
49. TBL. VIKAN 75