Vikan


Vikan - 20.01.1977, Qupperneq 7

Vikan - 20.01.1977, Qupperneq 7
Það er enginn vandi að flétta. Flestir kunna það, og allir geta lært það. Öll fjölskyldan getur sameinast um að flétta mottur og sessur úr efnisafgöngum, og ef einhvern langar að gera sér ullarflík, en nennir ekki að prjóna, þá er ekki úr vegi að prófa að flétta garnið. r mottur Það er ofur auðvelt að flétta mottu eða sessu, og við það fæst kjörið tækifæri til að nýta gamlan fatnað, sem alltaf er leiðinlegt að fleygja. Nauðsynlegt er að eiga til nóg efni, áður en byrjað er að flétta. i mottu, sem er 100—120 sm að ummáli, þarf u.þ.b. 2 kg af efni, þ.e. ræmum til dæmis skyrtum olússum, gluggatjöldum, pilsum og fleiru. í sessu, sem er 300 — 330 sm að ummáli, má reikna með, að þurfi ekki minna en 310 gr. Ullarefni, bómull og silki eru best saman. Tínið saman allt, sem til greina kemur að nota, og þvoið. Það er mikilvægt, að efnið sé hreint. Sprettið upp saumum og klippið frá allt, sem ónothæft er. Ræm- urnar, sem fléttaðar eru saman, þurfa alls ekki að vera jafnlangar, en þær þurfa að vera að minnsta kosti 50 sm langar og 7—10 sm breiðar, en breiddin fer eftir þykkt e^nisins. Veljið nú saman þrjár ræmur, leggið þær hverja ofan á aðra og saumið saman, þannig að rétta efnisins snúi upp og að ykkur, og byrjið svo að flétta. Ef þið eruð ekki ánægð með útkomuna í fyrstu atrennu, þá prófið bara aftur, þar til fléttan er sæmilega jöfn og falleg. Þegar þið hafið fléttað til enda, þá saumið þið næstu ræmur við endana og fléttið áfram. Þegar fléttan er orðin 3 — 4 metrar á lengd, er rétt að byrja að sauma hana saman í hringlaga 3. TBL. VIKAN7

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.