Vikan - 20.01.1977, Blaðsíða 41
’iöri
Búið er að smíða alvöru bíl fyrir
alvöru fólk eftir fyrirmynd bílsins,
sem notaður var í hinni geysi-
vinsœlu kvikmynd Álfhóll, sem
sýnd var hér á landi fyrir nokkru.
Ekki er hægt að segja, að þetta sé
neitt venjulegur bíll, svo mikið er
víst. I farartæki þessu eru tvær
vélar, ein 400 hestafla V8 vél, og
svona rétt til að hressa upp á
kraftinn er líka einn 2300 hestafla
turbo þotumótor. V8 vélin kemst 1
kílómetra á 3,7 lítrum af bensíni,
en þotuhreyfillinn kemst 3 kíló-
metra á einum lítra. Það yrði hár
reksturskostnaðurinn, ef billinn
væri notaður í búðarráp í miðbæn-
um.
Tveir hraðamælar eru í bílnum,
annar sýnir hraðann upp að 160 km,
en þá tekur hann við upp í 380 km.
En tii að fyrirbyggja allan misskiln-
ing er hafður vindhraðamælir líka.
Auðvelt ætti að vera að aka alltof
hratt á þessu apparati miðað við
aðstæður, en það vandamál hefur
verið leyst með radar, sem fylgist
vandlega með öllu í næsta nágrenni,
og ef radarskermurinn sýnir eitt-
hvert vafaatriði, hægir bíllinn á sér.
Bensíntankurinn hefur verið settur
aftan á bílinn, og hann tekur 420
litra — aðeins!
Ivo Caprino, sem framleiddi
myndina frægu og bílinn lika, hefur
fengið boð um að keppa i Rally
Monte Carlo á Fárviðri, eins og
hann var kallaður á íslensku.
En hvað ætli þeir í bifreiða-
eftirlitinu mundu segja, ef beðið
yrði um skoðun á svona faratæki?
Pían er bara hress eftir allt bram-
boltið, en bíllinn fékk fyrir ferðina,
eins og sjá mó.
þegar billinn endasentist
út af brautinni á 120 km hraða.
En það sannaðist á eiginkonu
Mogens, Solveig Hjere, að öryggis-
kröfurnar voru síst of strangar. I
keppni í Renault R 5 flokknum, sem
haldin var á Anderstorpbrautinni i
Svíþjóð, var ekið utan í bíl Solveig-
ar, með þeim afleiðingum, að bíllinn
hennar endasentist út af brautinni á
120 kilómetra hraða. Það eina sem
sakaði Solveigu var að slökkvitækið
losnaði og braut i henni viðbeinið,
og má þakka hinum stifu öryggis-
reglum manns hennar, að ekki fór
verr.
Þeir mörgu, sem voru á móti
reglunum í upphafi, eru nú orðnir
sáttir við þær og kvarta ekki lengur
um óþarfa kostnað.
Útlitið er nákvæmlega eins, en i
Golf-merkinu er D til að greina
hann frá bensínbílnum.
VW QOLF
með
dísilvél?
Volkswagen verksmiðjurnar hafa
nú sett á markað VW Golf með dísil
vél, en það er alveg nýtt, að dísilvél
sé sett í svo lítinn bíl. Rogers
Sögaard hjá danska bilablaðinu
Bilen prófaði þennan bíl, og eftir
skrifum hans að dæma var hahn
ánægður með útkomuna.
Dísilvélin er þó ekki eina nýjung-
in, heldur er dælan sem dælir oli-
unni í brennsluhólfin reimdrifin af
sömu reim og drifur knastásinn, en
það ku gefa betri nýtingu eldsneyt-
isins. Til þess að ná svipuðum krafti
út úr dísilvélinni og úr bensinvél-
inni, var hún stækkuð úr 1100 cc í
1500 cc.
Að sögn þeirra hjá Heklu, munu
þeir ekki flytja dísil-Golf inn til að
liggja með hann á lager, því verðið á
honum er hærra en á bensínbílnum.
Og svona lítur disilvélin út, og sést
vel eldsneytisdælan, sem drifin er af
sömu reim og knastásinn.
3. TBL. VIKAN41