Vikan - 20.01.1977, Síða 8
H K
mottu. Takið upphafsendann,
sveigið hann í hring og stingið
bláendanum undir rétt mátulega
til að fela hann og festið hann
rækilega. Haldið svo áfram að
leggja fléttuna hring eftir hring og
sauma jaðrana saman á röngunni.
Sessan er vitanlega gerð á
nákvæmlega sama hátt, en í hana
er óhætt að nota Ijósari efnis-
ræmur en í gólfmottuna.
VESTI OG PILS
Það er óneitanlega vanda-
samara að flétta flíkur úr ullargarni
en engu að síður skemmtilegt
til tiibreytingar frá venjulegum
prjóna- og saumaskap.
I vesti á fullorðna þarf 4 — 8 50
gr hespur eftir stærð, og í pilsið
þarf um 16 hespur. Auk þess þarf
um hálfan metra af bómullarefni í
brvddingar og bönd. Við þessa
handavinnu er notað allstórt tré-
bretti, sem í eru festir tveir krókar,
og á milli þeirra er strengt band,
sem fléttunum er brugðið um, en
aðferðin sést greinilega á með-
fvgjandi mynd.
VESTIÐ er saumað saman úr
mismunandi löngum fléttum. Axl-
arstykkin eru fjögur, og þarf 3—4
fléttur í hvert stykki. Hver flétta er
fléttuð úr 6 garnendum 100-180
sm löngum til þess að fá 25—45
sm langa fléttu, en lengdin og
fjöldi fléttanna fer vitanlega eftir
stærð manneskjunnar, sem vestið
er ætlað. i þá hluta, sem koma
undir handlegg (2 stk.) þarf 3—6
fléttur í hvorn, hver flétta fléttuð
úr 6 garnendum 52 — 110 sm
löngum, sem gera 13 — 27 sm
langa fléttu. i bakhlutann (1 stk.)
þarf 6—10 fléttur, hver flétta
fléttuð úr 6 garnendum 92—164
sm löngum, sem gera 23—41 sm
langa fléttu. i framstykkin (2 stk.)
þarf 3 — 5 fléttur í hvort stk., hver
flétta fléttuð úr 6 garnendum
72—136 sm löngum, sem gera
18 — 34 sm langa fléttu.
Gæta þarf mikillar vandvirkni
við að flétta garn á þennan hátt,
svo að fatnaðurinn verði löguleg-
ur, og betra er að rekja flétturnar
oúar gpp í fyrstu, ef þið eruð ekki
fyllilega ánægð með árangurinn.
Gangið tryggilega frá þeim að
neðan. Einnig þarf að gæta ná-
kvæmni við að sauma flétturnar
saman og gera það þannig, að
sem minnst þeri á saumunum.
Nota skal garnið einfalt til að
sauma flétturnar saman. Bryddið
að neðan með þómullarefni, og
gerið sams konar þönd í háls-
málið.
PILSIÐ er raunverulega gert úr
fjórum hlutum, sem hver um sig er
gerðurá eftirfarandi hátt: Fléttið 8
fléttur, hverja fléttu úr 6 garnend-
um 200 sm löngum, sem gera 68
sm langa fléttu. Fléttið 4 fléttur,
hverja úr 6 garnendum 190 sm
löngum, sem gera 59 sm langa
fléttu. Fléttið 3 fléttur, hverja úr 6
garnendum 160 sm löngum, sem
gera 40 sm langa fléttu. Saumið
löngu flétturnar saman ofan frá og
9 sm niður, aukið þá meðalstóru
fléttunum inn á milli 1. og 2., 3. og
4., 5. og 6. og 7. og 8. fléttu af
lengstu gerðinni, saumið þessar
saman á jöðrunum, þar til mælast
28 sm að ofan, en þá er minnstu
fléttunum aukið inn á milli 2. og
3., 4. og 5. og 6. og 7. fléttu af
lengstu gerðinni. Ef ykkur finnst
þetta ruglingslegt, þá skuliö þið
teikna þetta upp á blað, og þá
skiljið þið þetta undireins.
Þannig eru öll fjögur stykkin
gerð hvert fyrir sig og pressuð,
áður en þau eru saumið saman.
Hafið 10 sm klaufar, þar sem
stykkin mætast að ofan, fléttið
fjórar stuttar fléttur og aukiö í
klaufarnar, lokið klaufinni að aftan
með krókum, svo auðvelt sé að
komast í pilsiö og úr því. Bryddið
að ofan og neðan með þómullar-
efni og hnýtið saman í mittinu að
aftan.
GJAFRJÖRUR
Mikið og vandað vöruúrval.
Handskorinn, mótaður og litaður
kristall.
Glervörur — Onix vörur — Keramik
styttur og margt fleira.
Ef þig vantar gjöf, líttu við í
TÉKK-KRISTAL.
Vörur fyrir alla. — Verð fyrir alla.
ii i
8 VIKAN 3. TBL.