Vikan


Vikan - 20.01.1977, Side 44

Vikan - 20.01.1977, Side 44
liðnu hafa þeir báðir gleymt frú Eriksbo. Öttar bíður eftir Petter við eikartréð hjá brúnni, eins og um var rætt. Nóttin er dimm og kuldaleg, en það rignir hvorki né snjóar. Vegurinn er illa lýstur, en samt sér Petter, að Ottar er svo fölur, að það má næstum segja að hann sé ljósgrænn. Hann er eins og liðið lík, eins og hann raunar verður eftir nokkrar mínútur. Það er ennþá dimmara inni í skógin- um, þar sem Petter segist hafa falið peningana. — Þú hefur þó ekki haldið, að ég gengi með þá á mér? spyr Petter, þegar Ottar verður órólegur. — Þeir eru í gömlum peningakassa, en þú þarft að hjálpa mér Ottar. Takmarkið er toonuriiui -*• og auðvitað að komast niðurafitur. Viö bjóöum eftirtaldar úrvalsvörur: Blizzard,Völkl og Bemer skíöi, Parablack skíöastoppara, Nordica, SaitMarco og Garmont skíöaskó, Suverengönguskíðaskó, Ertlskíðastafi, Look öryggisbindingar, Braun skíöafatnað, Swix og Holmenkol skíöaáburö og Moonboots Útsölustaöir: Akureyri: Sportvöruverslun Brynjólfs Sveinssonar ísafjörður: Verslunin Kjartan R. Guðmundsson Siglufjörður: Verslunin Grund Bolungarvík: Einar Guðfinnsson hf Sauðárkrókur: Verslunin Aðalsport — Hvað hefur þú gert við 6000 krónurnar þínar? — Geymt þær með hinum auðvitað. Ef ég hefði farið að strá seðlum í kringum mig, hefði lögreglan strax komist á sporið. Ég er nú ekki svo vitlaus, að ég viti það ekki. Þegar þeir eru komnir nógu langt inn í skóginn, segir Petter lágum hljóðum: — Hér... hér er það. Taktu vasaljósið. — En þú hefur ekkert meðferð- is til að grafa með. — Kjáni. Það sá ég um í gær. Ég faldi reku hér rétt hjá. Ekki kveikja á vasaljósinu, fyrr en ég kem til baka. Petter er með vettlinga, það er ekkert einkennilegt við það á þessum árstíma. Ottar er aftur á móti berhentur. Honum var stungið inn að sumarlagi, og hann hefur ekki gefið sér tíma til að útvega vetrarfatnað. Eins og Petter hefur reiknað með, beygir Ottar sig niður til að líta nánar á staðinn sem hann tiltók. Og um leið lýstur Petter hann í höfuðið með hvössum steini. Ottar fellur samstundis fram yfir sig. Til að vera alveg öruggur, slær hann nokkur högg í viðbót. Þennan stein hafði hann verið búinn að verða sér úti um fyrirfram, eins er þungur steinn á árbakkanum, og reipið er í úlpu- vasanum. Þetta gengur miklu betur en hann hafði búist við. Hann dregur Ottar niður að ánni, bindur steininn við hann og lætur hann siðan falla í straumiðuna. Svo fer hann spölkorn inn í skóginn, þar sem hann hefur áður falið bakpoka. Hann fer úr úlpunni og buxunum, það hefur lent blóð í fötin, og hann klæðir sig í önnur föt. Hann verður að losa sig við blóðugu fötin á leiðinni. í bakpokanum er spari- jakkinn hans með peningunum í fóðrinu, auk nokkurra smáhluta, sem hann vill ekki vera án. Aðrar eigur sínar hefur hann skilið eftir i herberginu, sem hann leigði hjá frú Iversen. Það var hálfdauð kerling, hann hafði borgað henni mánaðarleigu daginn áður, þann- ig að hún ætti að búast við honum aftur. Ef lögreglan kemst í málið munu þeir telja annað hvort, að hann hafi stungið af frá Evu, eða orðið fyrir árás. Hann er ánægður með sjálfan sigog lifið í heild. Þó svo ólíklega skyldi vilja til að Ottar fyndist, myndi enginn setja hvarf hans í samband við morðið. Enginn í bænum hefur séð þá saman í eitt einasta skipti, og hann hefur aldrei nefnt hann á nafn. Hann reikar niður á þjóðveginn 44VIKAN 3. TBL. i

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.