Vikan


Vikan - 28.06.1979, Blaðsíða 19

Vikan - 28.06.1979, Blaðsíða 19
gengið i gegnum of margt á of stuttum tíma. Dauði Richies hafði verið hræði- legt áfall og fundurinn á söndunum hafði fyllt mælinn. Hugur minn hafði reynt að halda áfram en líkaminn neitað. Johnny stóð upp. „Ég verð að fara.” Ég var gripin skelfingu og þreif í hönd hans. „Átt þú að fljúga?” „Guð minn góður, nei.” Ég þrýsti hönd hans. „Ég trúi þér ekki.” „Spurðu föður þinn. Allur flotinn hefur verið stöðvaður.” Ég sneri höfðinu. Faðir minn brosti og kyssti á hönd mína. „Alveg rétt, Kathie. Engar áhyggjur.” „Ég á að leika á dansleik, turtildúfan mín.” Johnny leit á klukkuna. „Eftir ná- kvæmlega hálftíma, svo að ég verð að flýta mér. Sofðu vel i nótt og ég hitti þig i fyrramálið.” Hann kyssti mig á ennið og gekk út. Nokkrum mínútum siðar kom móðir mín með glas af heitri mjólk með svefn- meðali i svo að ég heyrði ekki í sprengju- vélunum þegar þær færu klukkan tíu. En ég var vöknuð skömmu eftir dögun, þegar þær komu til baka. Johnny hafði haldið áfram því sem gera þurfti og ekki var hægt að komast hjá. Að taka áhættuna. Móðir mín hafði skilið þær eftir fáliðaðar í kaffivagninum til að lita eftir mér. Og faðir minn, sem mat sannleikann ofar öllu, hafði logið — mín vegna. Og hvað gerði ég? Lá flöt á bakinu og vorkenndi sjálfri mér. Það var greinilega mál til komið að ég yrði fullorðin. Ég henti frá mér náttfötunum. Ég þurfti að jafna mig, koma mér í gang aftur og það var aðeins ein örugg leið til þess. Ég klæddi mig í flýti í peysu, reið- buxur og gömul reiðstígvél, læddist niður, varð vör við hreyfingu í eldhúsinu og fór út. Tíu minútum siðar hleypti ég Jersey Lil eftir stiflugarðinum. Vindur- inn lék um andlit mitt og ég var aftur lif- andi. Þegar ég gekk inn um hliðið var faðir minn að skera rósir. Hann var enn ein- kennisklæddur og leit snöggt upp þegar heyrðist í lásnum. „Kathie?” Hann var áhyggjufullur. „Við vorum hrædd um þig.” „Ég veit, pabbi.” Ég kyssti hann. „Þetta var afskaplega hugsunarlaust af mér, en ég varð að átta mig.” Hann leit rannsakandi á mig. „Ertu viss um að það sé allt í lagi með þig?” „Aldrei liðið betur,” sagði ég sannfær- andi. „Enga vitleysu framar. Og þakka þér fyrir það sem þú gerðir fyrir mig — i gærkvöldi, meina ég.” „Johnny er inni,” sagði hann. „Hann kom fyrir um það bil tuttugu minútum.” Það var undarlegt, en þegar ég lá og hlustaði á vélarnar koma hafði ég verið viss um að hann væri kominn til baka. Þetta var i fyrsta sinn sem ég hafði fundið til slíkrar fullvissu. Ég héit af stað inn. „Kathie,”sagði faðirminn hvasst. „Já, pabbi?” Hann var alvarlegur. Það var eins og hann vildi segja mér eitthvað en fyndi ekki réttu orðin. Hann brosti. „Ekkert. Það er gott að sjá þig aftur eins og þú átt að þér að vera.” Framhald í næsta blaði. WELLA BALSAM HÁRNÆRING Ver háriö §liti og auðveldar greiðslu svo ótrúlegt er. Eykur eólilegan gljáa hársins og fyllingu hárgreiðslunnar. Af-rafmagnar hárið. Notist eftir hvern hárþvott. HALLDÓR JÓNSSON HF. Dugguvogi 8 Ennaukin þjónusta! Ókeypis eyðublöð á afgreiðslunni: Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Bíll: Sölutilkynningar, tryggingabréf, víxlar, afsöl. Dagblaðið afgreiðsla Þverholti 11 sími 27022 Lausafé: Kaupsamningar, víxlar. Miðstöð smáauglýsingaviðskiptanna Húsnæði: Húsaleigusamningar. Smáauglýsingaþjónustan BIAÐID Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022 26. tbl. Vikan 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.