Vikan


Vikan - 28.06.1979, Qupperneq 40

Vikan - 28.06.1979, Qupperneq 40
Ilniltirinn 2l.m;irs 20.;i|iril Naulii’) 2l.;ipril 2l.m;ii Tiíhunirnir 22.m;ii 2l.júni Þú hefur átt erfitt meö að henda reiður á öllum útgjöldum þínum undanfarið. Það virðist nokkuð augljóst að einhvers staðar er veikur hlekkur sem þarf að lagfæra samstundis. Skapgerð einhvers nákomins ættingja veldur þér svo miklum heilabrotum að afköst I vinnu minnka að mun. Farðu samt varlega i alla gagnrýni og mundu að ekki eru allir sömu gerðar. Ónákvæmnin kemur þér svo sannarlega í koll og sannleikurinn í sérstöku tilviki kemur mjög illa við þig af þeim sökum. Gerðu upp við þig hverjum þú fylgir, því annars getur farið illa. Kr. hliinn 22. jtini 2.V júli Mikilvægu verkefni seinkar talsvert, en það ætti ekki að koma að sök. Leggðu áherslu á aðalatriðin og farðu var- lega þegar um stærri fjárhagsskuldbindingar á næstu árum er að ræða. I. jonió 21. jtili 24. j|»ti»l Næsta vika getur orðið mjög skemmtileg og lærdómsrík, ef rétt er á málum haldið. Finnist þér þreyta vera að ná yfirtökunum skaltu fara varlega og reyna að hvíla hugann i frístund- um. Andlegt jafnvægi fer stöðugt batnandi og með sumrinu gætir þú átt óvæntan leik. Feröa- lög ættirðu að reyna að skipuleggja sem best og gleyma ekki að gera ráð fyrir sambúð við aðra. Mm IfcT^ ~ .V \niiin 2J.\cf/i. 2.VnKJ. Sporútlrckinn 24.okl. 2.\.nm. Hoi{miii)urinn 24.nót. 2J.úcs. Næstu vikur verða þér hliðhollar og líklega þarftu ekki að kosta miklu til að ná góðri skemmtun og tilbreyt- ingu. Hafðu gætur á gömlum vini sem er þér ekki vinveittur nú. Reyndu að njóta sam- vistanna við ættingjana því það hefur ekki gefist svo mikill tími til þess að undanförnu. Farðu gætilega í dómum um aðra því ekki er allt sem sýnist i því efni. Athugaðu nýja möguleika I fram- kvæmdum án þess þó að taka meiri háttar ákvarðanir, því fljót- færni getur dregið dilk á eftir sér og orðið þér til mikils tjóns I framtið- inni. Treystu tillögum þinna nánustu, því þeim gengur gott eitt til. Fljótfærni hefur orðið þér til trafala og ekkert er unnið við að beita harðýðgi og ýtni þegar enga nauðsyn ber til. \;ilnshcrinn 2l.j;in. 1‘í.fchr. Óþolinmæði sambýlis- manns er þér mikill fjötur um fót og skap- stilling þín brestur ein- hvern daginn ef ekki verður breyting á hið skjótasta. Ræddu þetta af skynsemi og reyndu að bæta ástandiö. I isknrnir 20.fchr. 20.mars Þér vex allt í augum og verður lítið úr verki af þeim sökum. Taktu hlutina réttum tökum og notfærðu þér sem mest útiveru, ef nokkrir möguleikar eru á því án mikillar röskunar. HLÁTURINN hann hana sitja eins og hvíta marmara- styttu. Og hann sá dyrnar, sem opnuðust á bak við sófann, og Thomas, sem stóð í gættinni — en hann heyrði ekki til hans, því þruman reið yfir um leið og dyrnar opnuðust. Svo dó þruman út, og himinninn og nóttin urðu myrk og hljóð á nýjan leik. — Hæ, sagði Thomas. — Gott kvöld, Thomas, sagði hún. — Komdu inn. Hann lokaði dyrunum á eftir sér, svo gekk hann að arninum. Hann sneri bakinu að eldinum og tók upp sígarettur. Þetta er eins og atriði í leikriti — þetta er ekki raunverulegt — Thomas og ég, sinn hvorum megin á stóru sviði og Jenny i miðjunni — á rauða sófanum og dyrnar opnar út í nóttina og hafið. Guð — láttu þetta vera draum. — Þú hefðir ekki átt að koma, Thomas, sagði hann. Hann þekkti ekki aftursína eigin rödd. Thomas brosti. Svo kveikti hann i sigarettunni. — Þú hefur breyst, Martin. Hvers vegna hefði ég ekki átt að koma? Þetta er bara verk — jafnvel eitt af léttari verkunum. Ef þú bara værir eins og áður. Þú ert orðinn viðkvæmur, og þú ert orðinn heimskur. Ég get ekki sætt mig við það. Ég vil ekki sætta mig við það. Við höfum alltaf unnið saman. Veistu, hvað við fáumst við, Jenny? — Nei, sagði hún. — Ég hef aldrei fengið að vita það almennilega, hvað Martin starfar. — Það er mjög einfalt, Jenny. Við Martin vinnum að því að græða peninga. Það er það sama og allir gera — vinna til að græða peninga. Og við Martin höfum haft það gott og grætt mikla peninga, því það var alltaf ég, sem lagði á ráðin — og það hefur alltaf verið vel heppnað, og við höfum aldrei verið teknir fyrir neitt. — Áttu við, að þið hafið framfleytt ykkur með þvi að fremja glæpi? — Að sjálfsögðu. — Haltu þér saman, sagði Martin. — Nei, Martin, ég held mér ekki saman. Mér finnst, að hún — núna í kvöld — hafi rétt til þess að fá að vita það. Enda verð ég að viðurkenna, að það veitir mér vissa ánægju að segja henni það. — Haltu bara áfram, Thomas, sagði hún. — Þú hatar mig. Haltu áfram. Segðu Martin, hvers vegna þú hatar mig Martin studdi olnbogunum á borðið og hvildi höfuðið í höndum sér. Höfuð hans var blýþungt — og blóðið þaut i æðum hans, og hjartað barðist allt of hratt og þungt. — Já, Jenny — ég hata þig — vegna joess að þú hefur eyðilagt áætlanir minar — Það var gott að heyra, sagði hún. — ... enda þótt þú skildir það ekki. Fíflið hann Martin. Við vildum bara fá peningana þina. Alla fjandans pening- ana þína. — Ég hefði ekki haldið, að peningar væru „bara" og „fjandans" I þinum augum, Thomas, sagði hún. — Þú getur fengið alla peningana mína. Þú þarft ekki að drepa mig til þess að fá þá. En það er ekki rétt, að ég hafi ekki skilið neitt. Ég skildi ekki, hvað jrað var — en ég skildi, að eitthvað var að. — . . . peningana þína, Jenny. Og það var svo auðvelt að ná i þá. Með því að láta Martin giftast þér. Giftast þér... og erfa þig siðan. Og þú varst svo elskuleg — svo lítil og hjálparvana — þú virtist svoauðveld.... — ... bráð, sagði hún. Thomas hló. — En þú treystir mér ekki, sagði hann. — Nei, ég treysti þér ekki. Og ég skal segja þér nokkuð. Ég skal segja joér, hvers vegna mér fór að líka illa við þig. Ég skal segja þér, hvenær ég hætti að treysta þér. Það var jregar ég heyrði þig hlæja i fyrsta skipti. /x veggnum bak við Martin taldi klukkan mínúturnar í burtu. — Það eru til ýmsar aðferðir til að dæma manneskjur, sagði hún. — Ég geri það með því að hlusta á, hvernig þær hlæja. Þegar þú hlærð, Thomas, opnar þú munninn. og inni í þér er iitið, Ijótt, sjúkt, gult dýr, sem rekur upp aumkunarverðan, Ijótan skræk — gegnum munninn á þér. — Haltu kjafti. sagði hann. — Já. — Þú átt að fara í gönguferð, Jenny. sagði Thomas. — Bara þína venjulegu kvöldgöngu, áður en þú háttar. Þú ferð niður þrepin að ströndinni til þess að hlusta á hafið — eins og þú kallar það. Þrepin eru mjög brött... Hann hló. Og Martin heyrði — í fyrsta sinn — aumkunarverða, Ijóta skrækinn frá litla, ljóta, sjúka, gula dýrinu. — . . . og ef þú ferð ekki, skal ég bera þig að tröppunum. — Þú snertir hana ekki, Thomas! Snertu hana ekki! Jenny — viltu hlusta á mig? — Já, Martin, sagði hún. Suðið í æðum hans var þagnað, og hjartað sló eðlilega. — Allt, sem Thomas hefur sagt, er satt, Jenny. — Þá átt rétt á að vita það. En Thomas á einnig rétt á að ég skýri frá 40 Vikan 26. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.