Vikan - 15.05.1980, Side 13
Skrifpúlt, ferðapúlt og skrifborð Jóns Sigurðssonar forseta. Jón vann við
standpúltið, notaði ferðapúltið á ferðalögum en hið eiginlega skrifborð var til
léttari skrífverka, bréfaskrifta til vina o.þ.h.
Islendingar hafa verið ritþjóð frá fornu
fari, það hefur ekki farið fram hjá
neinum og enn erum við að státa okkur
af því. Þrátt fyrir það vitum við nútíma-
menn harla lítið um það hvernig t.d.
Snorri Sturluson og félagar hans (því
hann hafði skrifara) fóru að því að festa
orð á „blað”. Sátu þeir? Stóðu þeir?
Lágu þeir? Um þetta vitum við ósköp
lítið og verðum því að reyna að ráða í
það sem var að gerast í kringum okkur á
þessum tímum.
Á snemmmiðöldum er algengast að
menn standi við skriftir en sitji aftur á
móti við lestur. Við skriftir stóðu menn
þá við há skrifpúlt sem einnig voru
notuð sem bókageymslur. Telja má
líklegt að lslendingasögurnar séu skrif-
aðar við slík púlt þar sem þær voru
skrifaðar i klaustrum og á höfðingja-
heimilum en fólk sem þar dvaldi samdi
sig gjarnan að siðum útlendinga. Þannig
er taliðað mál hafi staðiðallt fram á 16.
öld.
Standpúltið fer svo að láta undan á
endurreisnartímanum (15.-16. öld) og
þess í stað kemur lægra borð sem menn
sátu við. Ekki er púltið þó alveg úr
sögunni því á borðum þessum var haft
lítið púlt í þeim augljósa tilgangi að fá
réttan halla á lesmálið gagnvart auga.
Oft var pallur undir borðunum til þess
að forða blöðum og ritum frá ryki og
öðru drasli sem gat verið á gólfum svo
og til þess að hlífa ritaranum við gólf
kulda.
Er kemur fram á 17. öld virðast eigin-
leg skrifborð, eins og við þekkjum þau,
verða til. Voru þau kölluð „bureau-plat"
eða flöt skrifborð og lýsir það hlutnum
vel. Þannig var t.d. skrifborð Loðvíks
14. en það var ekki notað við meiri-
háttar skriftir heldur frekar til þess að
undirrita tilskipanir og þess háttar. Eftir
daga Loðvíks (rókokkó) eykst ritmennt-
un kvenna verulega, með þeim afleiðing-
um að bréfaskriftir komast í tísku. Á
þessum tima hefjast póstsamgöngur
enda hefur öldin oft verið nefnd bréfa-
öldin. Allar fínni konur tóku sig þá til og
vörðu vissum hluta dagsins, oft ekki
litlum, i það eitt að skrifa sendibréf og þá
varð nýtt húsgagn til — skattholið.
Skattholinu mátti læsa og þar með var
viðurkennt að konur ættu sín einkamál,
út af fyrir sig sem þær gætu læst — ofan
í skattholið sítt.
Ekki líður á löngu þar til karlmenn
fara að koma sér upp viðlíka skrif-
borðum, nema hvað þau voru stærri
(að sjálfsögðu) og ofan á borðplötunni
skúffur. Skrifborð þessi voru miklu
hærri en þau borð sem við þekkjum nú
og mátti þá annað tveggja standa við
þau eða sitja á háum kolli.
Um daga Napóleons koma fram skrif
borð sem einnig eru bókaskápar en þau
borð voru óhentug og stöldruðu stutt við
í sögunni. Á 19. öld koma svo fram tvö
ný stileinkenni á skrifborðum. Klumbu
stíllinn, sem gat af sér þau Ijótustu
húsgögn sem sögur fara af og jungenstilinn
(ungstíll), eiginlega uppreisn gegn
hinum fyrrtalda, en hann byggðist á
bognum línum. Skrifborð i þessum stil
voru falleg en einhverra hluta vegna
voru þau ekki lengi í tisku.
Og svo gerist það! Upp úr fyrra stríði
verður ritvélin algeng en það er einmitt
hún sem setur ritarann endanlega á
rassinn og það af svo miklum krafti að
ekki er fyrirsjáanlegt aðhann standi upp
i bráð. Afleiðingar þessarar þróunar má
20. tbl. Vikan 13