Vikan - 15.05.1980, Blaðsíða 16
IMafn Odds Sigurðssonar, spretthlaup-
arans unga, er vafalítið það fyrsta er
kemur í hugann þegar rennt er yfir
árangur í frjálsum íþróttum á síðasta ári,
Frami Odds, tvítugs höfuðborgarpilts,
hefur verið með ólíkindum og nafn hans
var á allra vörum er hann hvað eftir
annað hreinlega skildi keppinauta sína
eftir á hlaupabrautinni. Fjölmiðlar
nefndu hann gjarnan hlaupaspútnikinn
og það ekki að ástæðulausu.
Oddur náði bestum tíma lslendings á
siðasta ári í 100, 200 og 400 metra
hlaupum og árangur hans í síðast-
nefndu greininni er ævintýri likastur
þegar tillit er tekið til þess að hann hefur
aðeins stundað reglubundnar æfingar í
rúmt ár. lþróttamenn. sem hafa æft um
margra ára skeið. myndu vafalítið
margir hverjir gera sig hæstánægða með
þann árangur er Oddur hefur náð á einu
sumri.
Það kom þvi ekki svo mjög á óvart er
Oddur hafnaði i 2. sæti í kjöri iþrótta-
manns ársins sem íþróttafréttamenn
gangast fyrir. Svo sannarlega ekki á
hverjum degi sem nýliði í íþróttum
ODDUR SIGURÐSSON
Það verður
erfitt að ná
ólympíu-
lágmarkinu
— segir Oddur Sigurðsson, sprett-
hlauparinn ungi, í viðtali við
VIKUNA
kemst á lista yfir 10 bestu íþróttamenn
landsins og það i 2. sætið.
Oddur hefur stundað æfingar af krafti
i vetur og hélt i febrúar til Bandaríkj-
anna þar sem hann æfði við góð skilyrði
um þriggja vikna skeið. Vist er að
Oddur er vel undir sumarið búinn og
margir bíða vafalítið spenntir eftir fyrsta
hlaupi hans i vor. Vikan heimsótti Odd á
heimili hans vestur á Ljósvallagötu eitt
kvöld fyrir skömmu.
Er undirritaður var að búa sig undir
að ýta á hnappinn á dyrasímanum
heyrðist létt fótatak að baki. Var þar
Oddur kominn — hlaupandi að sjálf-
sögðu — með þjóðardrykkinn, kók, i
fanginu. Það varð því úr að við urðum
samferða upp stigann og inn á heimili
hans þar sem hann býr hjá foreldrum
sínum. Oddur var nýkominn frá Banda-
ríkjunum úr stuttri æfingaferð er undir-
ritaður heimsótti hann svo það var
eðlilegt að spyrja hann fyrst út í dvölina
þar.
„Það var ákaflega gaman þarna úti i
San Jose i Kaliforníu og ég æfði mikið
16 Vikan 20. tbl.