Vikan - 15.05.1980, Side 28
Jónas Kristjánsson skrifar um íslensk veitingahús
Bautinn á Akureyri olli mér nokkrum
vonbrigðum. Hann stóð i raun ekki
undir þvi lofi. sem hlaðið hcfur verið á
hann. Matreiðslan var svo sem í meðal-
lagi, en útlit veitingastofunnar er í
þreytulegasta lagi.
Líklega er þó Bautinn sá staður. sem
benda verður ferðamönnum á. þvi að
hið hræðilega Súlnaberg handan
götunnar er eina samkeppnin. Og
Bautinn er alténd ekki dýrari en Súlna-
berg. En betra er þó að borða sjaldnar og
borða á KEA.
Bautanum er tviskipt i efra og neðra
gólf. Mun snyrtilegra er á neðra gólfi og
einkum þó ekki eins kuldalegt og á hinu
efra. Á báðum stöðum eru ágætir birki-
stólar eins og á kaffiteríu Loftleiða. Á
veggjum i neðri sal er dökkbrúnn panill
að ofanverðu og grænt leðurliki að
neðanverðu.
Rauður dúkurinn á gólfi er einkar
misheppnaður. þvi að skitur sést mjög
vel á honum. Í stil við dúkinn virtist
skortur á hreinlæti. Óhreinir diskar lágu
á borðum i klukkustund eftir að gestir
voru farnir. Það er hvimleitt að borða
innan um stafla af óhreinum leir og
mataráhöldum.
Bautinn er fremur annrikislegur
staður. Of hátt stillt útvarp bætir ekki
meltinguna, en er þó ekki nógu hátt tii
að fréttalestur heyrist. Unthverfið hefur
þó sínar jákvæðu hliðar, svo sem barna-
stóla og röska afgreiðslu.
Ekki góður
en skástur
Djúpsteiktur fiskur
Djúpsteiktur fiskur með salati var á
matseðli dagsins. Fiskurinn sjálfur var
sæmilegur, en steikarhjúpurinn var of
brenndur. Hrásalatið var gott og hafði
að geyma tómata, gúrku og blaðsalat.
svo og hæfilega litla salatsósu. Frönsku
kartöflurnar voru frambærilegar.
Sitrónu- og tómatbátar bættu réttinn
töluvért. Best var þó kokkteilsósan, mild
og rjómuð. liklega næst besta kokkteil-
sósa landsins. Þessi sósa og hrásalatið
góða fylgdu flestum réttum Bautans.
Verð fiskréttarins var 2.500 krónur.
Kínverskar pönnukökur
Tvær kínverskar pönnukökur með
hrásalati voru á fastaseðlinum. Sjálfar
pönnukökurnar voru góðar, þunnar og
stökkar. Inni í þeim voru kjötbitar i
karrihrísgrjónum. ekki í frásögur
færandi. Hrásalatið góða með blaðsalati
og tómati bætti réttinn. Verðið var
2.200 krónur heill skammtur og 1.400
krónur hálfur.
Lambakótilettur
Lambakótilettur með frönskum og
salati voru á fastaseðlinum. Kótiletturn-
ar voru grásteiktar, dálítið brenndar og
bornar fram með öllu fitulaginu á. Þær
voru ekkert sérstakar. en ætar. Krydd-
smjörið var lítið kryddað og ekki gott.
EINNI & NNNI
28 ViKan 20. tbl