Vikan


Vikan - 15.05.1980, Síða 34

Vikan - 15.05.1980, Síða 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst HRYLLILEG HEFND Sögur um tvo menn og eina konu eru ekkert nýmeti. Síður en svo. Þríhyrningurinn hefur lifað og mun lengi lifa. Andans menn hafa í mörg hundruð ár fjallað um efnið, soðið upp úr því hvert afbrigðið á fætur öðru en það er nú einu sinni svo að þríhyrningurinn er svo skemmti- legur, eðli málsins samkvæmt, að fólk verður seint þreytt á honum. Þess vegna ætla ég hér og nú að sjóða saman eina þrihyrningssúpu ef þið vilduð vera svo væn að kveikja á hellunni. Tökum tilfellið með Rúnar, Ylfu og Ingvar og lítum til að byrja með örlítið á Ylfu. Hún er sú manngerð sem vel er hægt að lýsa án þess að nota miklar handa- hreyfingar, starfar sem afgreiðslustúlka í lítilli kjólabúð. . . en á sér samt þann draum að verða heimsfræg sýningarstúlka, yfirflugfreyja eða þá bara sjónvarpsleikkona. Fleiri orð eru óþörf — þið þekkið týpuna. Og Rúnar? Tja . . . Rúnar. Útlitið var ekkert sérstakt, föl- leitur með innfallna bringu. Á baðströnd minnti hann helst á spergil úr dós sem nýbúið er að draga upp úr sandinum. Hann vann hjá Sambandinu við ein- hverja skrifstofuvinnu, sat allan daginn á rassinum og naut ekki útiloftsins of mikið. En dæmið nú ekki of fljótt. Þrátt fyrir að menn hafi ekki útlitið með sér þá er alls ekki útilokað að ungar stúlkur verði ástfangnar af þeim, sérstaklega ef í ljós kemur að pabbi gamli er vel ríkur, býr í Garðabænum og er nýbúinn að gefa syni sínum þennan líka fína appelsínugula sportbíl. Þannig var því einmitt varið með Rúnar. Ingvar lék aftur á móti knattspyrnu í 1. deildinni, frægur markaskorari, íþrótta- maður í gegn, vöðvastæltur, hár á bringunni og jafnvel höku- skarð. Ingvar skorti fátt sem prýða má ungan svein. Ef gefa ætti honum mínus fyrir eitthvað þá var það helst að hann átti því miður ekki appelsínugulan sportbíl til að rúnta í. Hann var í læri hjá húsasmið þannig að lítið var hægt að leggja til hliðar. Hvorn þeirra átti Ylfa nú að velja? Kannski var best að láta þá báða sigla sinn sjó, hefði ein- hver spéfuglinn stungið upp á, en Ylfa var ekki vön að skopast, sérstaklega ekki um alvörumál. Hún naut þess reglulega að keyra með Rúnari í appelsínu- gula sportbílnum upp á Öskju- hlíð, fram og til baka, og stundum fékk Rúnar að klípa hana og kjassa í staðinn. En ekkert fram yfir það. Einnig var hún fastagestur á vellinum þar sem Ingvar þrumaði knettinum á mark and- stæðinganna næstum því í hverjum leik. Ingvar fékk líka að klípa hana og kreista þegar þannig stóð á — jafnvel þó að hann ætti engan sportbíl. En ekkert fram yfir það. Það kom líka fyrir að hún færi með þeim báðum út að skemmta sér, t.d. á diskótek, og þá gætti hún þess vel að þeir fengju að dansa við hana til skiptis, deildu öllu jafnt, meira Stjörnuspá llrulurinn 'il.mars 1?0.a iril Yiulið 2l.-.pril il.niai I xiburarnir 22.mai 2l.júni Krr.hhinn 22.júni 2.t.júli l.jonið 24.júli 24. áiíú'l Mc> jan 24.áiíusl 2.4.scpl. Óánægjan hefur náð sterkum tökum á þér, án þess að þú gerir þér grein fyrir undirrótinni. Gættu þess að gripa ekki til neinna óyndisúrræða því vandræðin aukast þá til muna. Mikilvæg störf virðast vaxin þér upp fyrir höfuð og oftlega efast þú um hæfileika þína til starfanna. Slik minni- máttarkennd er aðeins til að draga úr fram- kvæmdagleðinni. Búðu þig undir að hamingjan getur leikið á mannskepnuna á köflum og öllum er nauðsynlegt að kunna að taka ósigri. Vonbrigðin eru sár í upphafi en gleymast fljótlega. Eitthvert sérstakt verkefni á hug þinn allan um tíma og með sama áframhaldi getur illa farið. Það er varasamt að fá eitthvað alveg á sinnið og sjálf- sagt að breyta til sem fyrst. Greiðasemi við vini og kunningja verður að hafa einhver takmörk þvi ella getur orðið hætta á að vináttan verði misnotuð. Vinir yfirgefa þig ekki svo glatt vegna smámuna. Gerðu þér glögga grein fyrir aðstæðum á vinnu- stað, það er mjög liklegt að einhverjar breytingar séu á næsta leiti. Taktu ekki gagnrýni mjög nærri þér þessa vikuna. Framundan eru nokkurs konar krossgötur og miklu skiptir að rétta leiðin verði fyrir valinu. Leitaðu ráða hjá vinum og ættingjum og flanaðu ekki að neinu í því sambandi. Sporádrckinn 24.okl. Í.Vnm. Nú er rétti tíminn til að framkvæma það sem lengi hefur setið á hakanum. Ástæðan er aðallega leti og dugleysi sem hefur plagað þig mikinn hluta vetrarins. Hoi<ni;iúuriiin 24.nót. 2l.úcs Þér hefur tekist að ná þinu fram í ákveðnu máli en sigurgleðin lætur á sér standa. Líklega er þar mest um að kenna óákveðni og vöntun á fastri, afmarkaðri stefnu. Slcingcitin 22.acs. 20. jan. Hvernig væri að breyta ofurlítið til frá þessum venjulega hversdagsleika og gefa tilverunni meiri lit? Venjubundin störf leiðast þér sífellt meira og sjálfsagt að snúa við blaðinu. Valnshcrinn 2l.jan. lú.fchr. Það gengur ekki til lengdar að hafa allt á öðrum endanum og þér væri hollast að skipu- leggja ýmislegt í kringum þig örlítið betur. Með því móti nýtist timinn talsvert betur en nú er. Fiskarnir 20.fchr. 20.mars Vendu þig á réttlátari og sanngjarnari dóma um annað fólk þvi enginn er alveg fullkominn viðnánari viðkynningu. Taktu hlutunum með meiri ró og stillingu enda taugarnar á suðupunkti. 34 Vikan 20. tbl. I

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.