Vikan - 15.05.1980, Qupperneq 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
HRYLLILEG
HEFND
Sögur um tvo menn og eina
konu eru ekkert nýmeti. Síður
en svo. Þríhyrningurinn hefur
lifað og mun lengi lifa. Andans
menn hafa í mörg hundruð ár
fjallað um efnið, soðið upp úr
því hvert afbrigðið á fætur öðru
en það er nú einu sinni svo að
þríhyrningurinn er svo skemmti-
legur, eðli málsins samkvæmt,
að fólk verður seint þreytt á
honum. Þess vegna ætla ég hér
og nú að sjóða saman eina
þrihyrningssúpu ef þið vilduð
vera svo væn að kveikja á
hellunni.
Tökum tilfellið með Rúnar,
Ylfu og Ingvar og lítum til að
byrja með örlítið á Ylfu. Hún er
sú manngerð sem vel er hægt að
lýsa án þess að nota miklar handa-
hreyfingar, starfar sem
afgreiðslustúlka í lítilli kjólabúð.
. . en á sér samt þann draum að
verða heimsfræg sýningarstúlka,
yfirflugfreyja eða þá bara
sjónvarpsleikkona. Fleiri orð eru
óþörf — þið þekkið týpuna.
Og Rúnar? Tja . . . Rúnar.
Útlitið var ekkert sérstakt, föl-
leitur með innfallna bringu. Á
baðströnd minnti hann helst á
spergil úr dós sem nýbúið er að
draga upp úr sandinum. Hann
vann hjá Sambandinu við ein-
hverja skrifstofuvinnu, sat allan
daginn á rassinum og naut ekki
útiloftsins of mikið. En dæmið
nú ekki of fljótt. Þrátt fyrir að
menn hafi ekki útlitið með sér
þá er alls ekki útilokað að ungar
stúlkur verði ástfangnar af þeim,
sérstaklega ef í ljós kemur að
pabbi gamli er vel ríkur, býr í
Garðabænum og er nýbúinn að
gefa syni sínum þennan líka fína
appelsínugula sportbíl. Þannig
var því einmitt varið með
Rúnar.
Ingvar lék aftur á móti
knattspyrnu í 1. deildinni,
frægur markaskorari, íþrótta-
maður í gegn, vöðvastæltur, hár
á bringunni og jafnvel höku-
skarð. Ingvar skorti fátt sem
prýða má ungan svein. Ef gefa
ætti honum mínus fyrir eitthvað
þá var það helst að hann átti því
miður ekki appelsínugulan
sportbíl til að rúnta í. Hann var í
læri hjá húsasmið þannig að lítið
var hægt að leggja til hliðar.
Hvorn þeirra átti Ylfa nú að
velja? Kannski var best að láta
þá báða sigla sinn sjó, hefði ein-
hver spéfuglinn stungið upp á,
en Ylfa var ekki vön að skopast,
sérstaklega ekki um alvörumál.
Hún naut þess reglulega að
keyra með Rúnari í appelsínu-
gula sportbílnum upp á Öskju-
hlíð, fram og til baka, og
stundum fékk Rúnar að klípa
hana og kjassa í staðinn. En
ekkert fram yfir það.
Einnig var hún fastagestur á
vellinum þar sem Ingvar
þrumaði knettinum á mark and-
stæðinganna næstum því í
hverjum leik. Ingvar fékk líka að
klípa hana og kreista þegar
þannig stóð á — jafnvel þó
að hann ætti engan sportbíl. En
ekkert fram yfir það.
Það kom líka fyrir að hún
færi með þeim báðum út að
skemmta sér, t.d. á diskótek, og
þá gætti hún þess vel að þeir
fengju að dansa við hana til
skiptis, deildu öllu jafnt, meira
Stjörnuspá
llrulurinn 'il.mars 1?0.a iril Yiulið 2l.-.pril il.niai
I xiburarnir 22.mai 2l.júni
Krr.hhinn 22.júni 2.t.júli
l.jonið 24.júli 24. áiíú'l
Mc> jan 24.áiíusl 2.4.scpl.
Óánægjan hefur náð
sterkum tökum á þér,
án þess að þú gerir þér
grein fyrir undirrótinni.
Gættu þess að gripa
ekki til neinna
óyndisúrræða því
vandræðin aukast þá til
muna.
Mikilvæg störf virðast
vaxin þér upp fyrir
höfuð og oftlega efast
þú um hæfileika þína til
starfanna. Slik minni-
máttarkennd er aðeins
til að draga úr fram-
kvæmdagleðinni.
Búðu þig undir að
hamingjan getur leikið á
mannskepnuna á
köflum og öllum er
nauðsynlegt að kunna
að taka ósigri.
Vonbrigðin eru sár í
upphafi en gleymast
fljótlega.
Eitthvert sérstakt
verkefni á hug þinn
allan um tíma og með
sama áframhaldi getur
illa farið. Það er
varasamt að fá eitthvað
alveg á sinnið og sjálf-
sagt að breyta til sem
fyrst.
Greiðasemi við vini og
kunningja verður að
hafa einhver takmörk
þvi ella getur orðið
hætta á að vináttan
verði misnotuð. Vinir
yfirgefa þig ekki svo
glatt vegna smámuna.
Gerðu þér glögga grein
fyrir aðstæðum á vinnu-
stað, það er mjög liklegt
að einhverjar breytingar
séu á næsta leiti. Taktu
ekki gagnrýni mjög
nærri þér þessa vikuna.
Framundan eru nokkurs
konar krossgötur og
miklu skiptir að rétta
leiðin verði fyrir valinu.
Leitaðu ráða hjá vinum
og ættingjum og
flanaðu ekki að neinu í
því sambandi.
Sporádrckinn 24.okl. Í.Vnm.
Nú er rétti tíminn til að
framkvæma það sem
lengi hefur setið á
hakanum. Ástæðan er
aðallega leti og dugleysi
sem hefur plagað þig
mikinn hluta vetrarins.
Hoi<ni;iúuriiin 24.nót. 2l.úcs
Þér hefur tekist að ná
þinu fram í ákveðnu
máli en sigurgleðin
lætur á sér standa.
Líklega er þar mest um
að kenna óákveðni og
vöntun á fastri,
afmarkaðri stefnu.
Slcingcitin 22.acs. 20. jan.
Hvernig væri að breyta
ofurlítið til frá þessum
venjulega hversdagsleika
og gefa tilverunni meiri
lit? Venjubundin störf
leiðast þér sífellt meira
og sjálfsagt að snúa við
blaðinu.
Valnshcrinn 2l.jan. lú.fchr.
Það gengur ekki til
lengdar að hafa allt á
öðrum endanum og þér
væri hollast að skipu-
leggja ýmislegt í
kringum þig örlítið
betur. Með því móti
nýtist timinn talsvert
betur en nú er.
Fiskarnir 20.fchr. 20.mars
Vendu þig á réttlátari
og sanngjarnari dóma
um annað fólk þvi
enginn er alveg
fullkominn viðnánari
viðkynningu. Taktu
hlutunum með meiri ró
og stillingu enda
taugarnar á suðupunkti.
34 Vikan 20. tbl.
I