Vikan - 15.05.1980, Blaðsíða 36
Vikan og Neytendasamtökin
UPPELDI STOFUBLÓMA
Þegar dag tekur að lengja þurfum við að huga að
inniblómunum okkar, sem hvílt hafa framlág í
rökkrinu nokkra mánuði. Þau þurfa á aðhlynningu
að halda, svo þau megi lifa lífinu áfram okkur til
augnayndis. í mars eða byrjun apríl mun rétt að
huga að því að skipta um mold og stækka potta.
Um leið er kærkomið tækifæri til að taka
græðlinga og sannir blómaunnendur hafa mikla
unun af að fylgjast með plöntunni sinni frá
byrjun.
Viö sjáum þess glögg merki nú
aö blómin okkar hafa þráö birt-
una ekki síður en við sjálf. Eðli
flestra innijurta er að hvila
vissan tíma árs, en híbýli okkar
eru svo hlý, að hvíldin er ekki
eins áþreifanleg og náttúran
ætlast þó til. Þurrt loft er afar
slæmt fyrir blóm og þvi ætti að
kappkosta að halda réttu raka-
stigi í íbúðum. Það kemur okkur
reyndar ekki síður til góða.
Margar plöntur er rétt að
klippa á vorin. Sú aðgerð ætti að
fara fram nokkru áður en skipt
er um pott og sett í ný mold. 14
dagar mun hæfilegur tími.
Birta
Nú vitum við að allar jurtir
þurfa birtu, en þó mjög mismun-
andi eftir tegundum. Birtuna
þurfa jurtirnar til að geta unnið
kolefni úr loftinu, sem er þeim
nauðsynlegt ásamt steinefnum og
vatni úr moldinni. Ef plöntur fá
ekki næga birtu veslast þær upp
og deyja úr hungri.
Blómasalar geta sagt okkur
allt um birtuþörf hinna ýmsu
tegunda.
Hitaþörf
Stofublóm eru ættuð frá hinum
ólíklegustu stöðum og kjörhiti
þeirra því eðlilega m jög mismun-
andi. En samt eiga þau mjög
auðvelt með að laga sig að
breytilegum aðstæðum.
Nútíma íbúðir eru bjartar og
hlýjar og hitastig yfirleitt jafnt
innandyra allan ársins hring.
Þetta er kostur fyrir sum stofu-
blóm, en ókostur fyrir önnur og
eru íbúðir nú á tímum fullheitar
að vetrinum fyrir flest blóm,
vegna þeirrar röskunar sem
verður á samræminu sem þarf að
vera milli birtu og hita. Takið
t.d. eftir því, að gróður sem er
staösettur fjarri gluggum verður
í mörgum tilfellum fölur og
grannur, veslast kannski
hreinlega upp.
Yfirleitt þrifast flest stofublóm
best við hitasveiflur sem nema 5-
6 stigum, þósvosum vilji hafa
sama hitastig bæði dag og nótt.
36 Vikan 20. tbl.