Vikan


Vikan - 15.05.1980, Síða 42

Vikan - 15.05.1980, Síða 42
; Sjómennska AFLAKLÆRNAR A GUÐBJÖRGU Það voru óneitanlega eldhressir strákar sem við hittum um borð I Guðbjörgu og biðu þeir ekki boðanna með að leggja frá landi strax og búið var að losa skipið. Ekki vildu þeir játa á sig allar tekjumilljónirnar þó mánaðar- tekjurnar á Guðbjörgu væru vissulega langt fyrir ofan meðallag. Þeir sögðu að ekki væru allar þeirra ferðir til jafn- ntikils fjár, það fiskast misjafnlega i hverri ferð og þegar þorskveiðibann stæði yfir kæmu þeir inn nteð mun verðminni fisk, eins og gráluðu, karfa og ufsa. ! i I Guðbjörg er norsk að uppruna, smíðuð I Flekkefjord fyrir 6 árum, og fimmti togarinn sem ber þetta happa- drjúga nafn. Skipstjóri i þessari ferð var Guðbjartur Ásgeirsson sem leysir föður sinn, Ásgeir Guðbjartsson af, en sá síðarnefndi á að baki sér 30 ára frægðarferil sem skipstjóri. Sjálfur byrjaði Guðbjartur sjómennsku sína með þvi að fara á síld með föður sínum 15 ára gamall. Við spurðum strákana hver leyndar- dómurinn í sambandi við þessa miklu aflasæld væri og töldu þeir að hún væri mikið undir skipstjóranum komin. Þeir sögðu líka að vegna góðra tekju- möguleika væri mjög erfitt að komast að á Guðbjörgu og mannaskipti heyrðu til undantekninga. Um borð er unnið á sex tima vöktum en þegar vel fiskast er ekki horft i að vera að allan sólarhringinn. Yfirleitt er Guðbjörg á miðunum i viku til tíu daga og stansar ekki lengur I landi en nauðsyn krefur. Og miðað við þá erfiðisvinnu, einangrun og þá sifelldu áhættu sem þessi undirstöðustétt landsins býr við er varla réttmætt að sjá ofsjónum yfir þvi að þeir hafi erindi sem erfiði hvað tekjur snertir. Raunar væri ekki óraunhæft að ætla sjómönnunt það góðar tekjur að þeir ættu kost á að vera heima hjá sér nokkra mánuði ársins og gætu unnið þannig upp það tap sem fjölskyldulíf þeirra hlýtur að verða að þola vegna mikillar og tiðrar fjarveru þeirra frá heimilunum. JÞ J6n Aðalsteinsson, 1. vélstjóri, i riki sinu. 42 Vikan 20. tbl. Unnið að netum: Guðmundur Einarsson 2. stýrimaður og Flosi Kristjánsson háseti. JóExann Magnússon netamaður og Arnar Kristjánsson hásetj. Ef frítími gafst er oft gluggað i bók: Jón B. Guðjónsson, 3. vélsljóri, klefa sfnum. Og ekki vantar tækjaútbúnaðinn i brúna: Guðbjartur skipstjóri.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.