Vikan - 15.05.1980, Síða 42
; Sjómennska
AFLAKLÆRNAR
A GUÐBJÖRGU
Það voru óneitanlega eldhressir
strákar sem við hittum um borð I
Guðbjörgu og biðu þeir ekki boðanna
með að leggja frá landi strax og búið var
að losa skipið. Ekki vildu þeir játa á sig
allar tekjumilljónirnar þó mánaðar-
tekjurnar á Guðbjörgu væru vissulega
langt fyrir ofan meðallag. Þeir sögðu að
ekki væru allar þeirra ferðir til jafn-
ntikils fjár, það fiskast misjafnlega i
hverri ferð og þegar þorskveiðibann
stæði yfir kæmu þeir inn nteð mun
verðminni fisk, eins og gráluðu, karfa og
ufsa.
!
i
I
Guðbjörg er norsk að uppruna,
smíðuð I Flekkefjord fyrir 6 árum, og
fimmti togarinn sem ber þetta happa-
drjúga nafn. Skipstjóri i þessari ferð var
Guðbjartur Ásgeirsson sem leysir föður
sinn, Ásgeir Guðbjartsson af, en sá
síðarnefndi á að baki sér 30 ára
frægðarferil sem skipstjóri. Sjálfur
byrjaði Guðbjartur sjómennsku sína
með þvi að fara á síld með föður sínum
15 ára gamall.
Við spurðum strákana hver leyndar-
dómurinn í sambandi við þessa miklu
aflasæld væri og töldu þeir að hún væri
mikið undir skipstjóranum komin. Þeir
sögðu líka að vegna góðra tekju-
möguleika væri mjög erfitt að komast að
á Guðbjörgu og mannaskipti heyrðu til
undantekninga.
Um borð er unnið á sex tima vöktum
en þegar vel fiskast er ekki horft i að
vera að allan sólarhringinn. Yfirleitt er
Guðbjörg á miðunum i viku til tíu daga
og stansar ekki lengur I landi en nauðsyn
krefur. Og miðað við þá erfiðisvinnu,
einangrun og þá sifelldu áhættu sem
þessi undirstöðustétt landsins býr við er
varla réttmætt að sjá ofsjónum yfir þvi
að þeir hafi erindi sem erfiði hvað tekjur
snertir. Raunar væri ekki óraunhæft að
ætla sjómönnunt það góðar tekjur að
þeir ættu kost á að vera heima hjá sér
nokkra mánuði ársins og gætu unnið
þannig upp það tap sem fjölskyldulíf
þeirra hlýtur að verða að þola vegna
mikillar og tiðrar fjarveru þeirra frá
heimilunum.
JÞ
J6n Aðalsteinsson, 1. vélstjóri, i riki sinu.
42 Vikan 20. tbl.
Unnið að netum: Guðmundur
Einarsson 2. stýrimaður og Flosi
Kristjánsson háseti.
JóExann Magnússon netamaður og
Arnar Kristjánsson hásetj.
Ef frítími gafst er oft gluggað i bók: Jón B. Guðjónsson, 3. vélsljóri,
klefa sfnum.
Og ekki vantar tækjaútbúnaðinn i brúna: Guðbjartur skipstjóri.