Vikan - 15.05.1980, Qupperneq 44
Framhaldssaga
ARTRESINS
Prýðum landíó—píöntiim tijám!
ÁR TRÉSINS
í VIKUNNI
Það hefur trúlega ekki farið fram hjá neinum að í ár er ár
trésins hér á landi. Sérstök samstarfsnefnd aðila, sem hafa
skógrækt og garðyrkju að áhugamáli, hefur haft forgöngu
um alls kyns starfsemi er vekja á áhuga fólks fyrir gróður-
setningu trjáa og umbótum í görðum sínum. 1 samstarfi við
þessa nefnd hyggst Vikan leggja sitt af mörkum trjágróðri
hér á landi til framdráttar. Mikið hefur verið unnið á þeim
vettvangi en þó er enn langt í land með að trjágróður sé í
viðunandi horfi.
í næstu tölublöðum Vikunnar munu birtast greinar um
hin ýmsu mál er varða trjágróður og garða, en það verður
Jón H. Björnsson skrúðgarðaarkitekt sem ríður á vaðið með
grein um skipulag garðsins. Jón er fyrir löngu þjóðkunnur
fyrir störf að skipulagningu jafnt heimilisgarða sem stórra
skrúðgarða víða um land og ætti því að vera fengur í
fróðleik frá honum fyrir lesendur Vikunnar.
Siðan fylgja greinar um nauðsynleg verkfæri, undir-
búning jarðvegs, plöntuval í garðinn o.s.frv.
Það er von okkar að lesendur muni færa sér greinar
þessar og ábendingar í nyt og geri sitt til þess að takast
megi að auka gróðursetningu trjáplantna sem víðast um
landið og að heimilisgarðar megi verða enn fegurri.
Við tökum undir einkunnarorð ársins: „Prýðum landið
— plöntum trjám!”
-HP.
þvi er virðist rikir virðuleiki
miðstéttanna?
Ein ástæðan var sú. að hér stóð eitt
sinn klaustur Franciskusarmunka.
stofnun á vegum Grábræðra, sem siðar
varð algerlega spillingu að bráð. og
Thomas Cromwell, jarl af Essex, lét
jafna við jörðu haustið 1537. Nú á
dögum sjást engin merki klaustur-
húsanna ofanjarðar. nema veggjarrústir
á litlum grasi grónum hól efst við
Monastery Road. Þær nægðu hins vegar
til að fylla byggingarfrömuði fyrri hluta
tuttugustu aldar slíkum innblæstri. að
þeir skírðu nýja svefnhverfið Friars Hill.
I næsta nágrenni þessara sögulegu minja
eru Cistercian Crescent, Franciscan
Close, Monks Way og Jesuits Drive.
Skammt þaðan frá er Saints Way, sem
liggur að Nuns Passage; Greyfriars; og
myndar loks kross á Monastery Road
við suðurhorn opins svæðis. Benedictine
Avenue.
En samt er hægt að spyrja: hvers
vegna hér? Og hvers vegna varð
klaustrið spillingu að bráð?
Það stafar af þvi, að Friars Hill er á
vegamótum, þar sem þeirra heimur og
okkar snertast...
Skammt frá brautarstöðinni, þaðan
sem flestir útivinnandi ibúar Friars Hill
fara daglega til miðborgarinnar, er
verslunargata sem nefnist Parade. Þar
eru tvær litlar kjörbúðir. hárgreiðslu
meistarinn Tony Wylde, vínkaupmaður.
járnvöruverslun. grænmetissali. blaða-
sali, lyfsali, slátrari, bakari. Þar er einnig
að finna fasteignasölu hverfisins. útibú
bókasafns. læknastofur hverfisins. tvo
banka. efnalaug og kjólaverslun
Helenar.
Í Friars Hill er föstudagurinn mesti
annadagur vikunnar. Þá fyllist Parade
af bílum. því eiginkonur, mæður og eldri
borgarar þurfa að versla i matinn, skipta
á bókasafnsbókum eða láta snyrta á sér
hárið fyrir helgina.
Þó að Friars Hill sé svefnbær. hefur
hann á liðnum árum fengið nokkuð á sig
yfirbragð þorps. að því leytinu til að
kaupmennirnir. bankastjórarnir og
bókavörðurinn kannast við flesta
íbúana, og margir þeirra kannast hver
við annan. að minnsta kosti i sjón. Það
var þvi ekkert einkennilegt, þó ýmsir
litlir hópar staðnæmdust til að skiptast á
kveðjum eða ræða saman, meðan helg
arundirbúningurinn var i algleymingi
allt umhverfis þá einn föstudaginn. Ef
þeir hefðu ekki farið svona dult með
það. hefðu þó ef til vill þótt ein-
kennilegri kveðjur sumra einstaklinga.
sem rákust þarna hver á annan: merki
gert með vinstri hendi og vart
greinanlegt; muldruð orð. sem vart var
hægt að heyra: „Í kvöld". Og allt með
sömu illa hömdu óþreyjunni.
I bakaríinu sagði Tony Wylde við
Lynn Davis yfir hraukana af brauði og
snúðum og rjómakökum helgarinnar:
„I kvöld”. Varir Lynn skildust örlítið
að og hvitur sloppurinn undirstrikaði
rósbleika húð hennar þegar hún svaraði:
„Í kvöld".
Á stofu sinni við hliðina á bóka-
safninu hvíslaði Tony að Tinu Roberts,
um leið og hann renndi höndunum
gegnum sitt ljóst hár hennar: „1 kvöld”.
„Í kvöld," hvíslaði hún á móti og
greip andann á lofti við hugmyndirnar.
sem þetta vakti hjá henni...
Bill Meadowson hvislaði þessu að
hjúkrunarkonu heilsugæslustöðv-
arinnar. Eileen Courtauld. á milli
þess sem þau sinntu sjúklingum. James
Ibbott, formaður Hverfisfélags sjálf-
stæðismanna. sagði það við Donald
Carter I bankastjóraskrifstofunni.
Fallegi fjórtán ára gamli og hindareygði
Swanwick-drengurinn laumaði þvi að
Jane. yngri systur Tinu Roberts. Yngstu
Swanwick-börnin tvö, tólf og tiu ára
gömul. hvísluðu þvi að Charles Davis,
þegar hann var að taka vörur úr
sendiferðabílnum sinum fyrir utan
bakariið.
„1 kvöld..."
i kjólaverslun Helenar sagði
eigandinn. Rose Trayle. grönn. glæsileg
og demantshörð, við frú Clara ibbott:
„Í kvöld...”
„í kvöld." hvíslaði Clara á móti og
horfði á fegraða spegilmynd sina. Hún
fann til stolts. þegar hún sá að hendur
hennar voru styrkar, er þær snertu
efnið i nýja kjólnum hennar.
Myrkrið liggur yfir Friars Hill, eins
dimmt og það getur orðið á slikum stað.
Himinninn speglar Ijósin i úthverfunum
i grenndinni og Ijósin i borginni í fjarska.
Götuljós varpa skærri. gullinni birtu
milli skugga trjánna á gangstéttunum
og inn i innkeyrslur hljóðra húsa. Enn er
Ijós í nokkrum gluggum. og á stöku stað
lýsir lukt upp dyrnar að tómum bílskúr.
sem bíður heimkomu einhvers nátt-
hrafnsins.
En í Friars Hill er dimmt og það líður
á kvöldið.
Fótatak færist upp eftir Benedictine
Avenue. nálgast veggjarrústirnar. sem
eru einar eftir ofanjarðar af klaustrinu.
•, Einmana ung stúlka hraðar sér áfram og
sofandi húsin fljóta hljóðlega framhjá
henni, meðan hún gengur upp hólinn.
Eftir fáeinar mínútur verður hún komin
á áfangastað. Um ferðir hennar er vitað
—það er búist við henni.
Þegar hún gengur framhjá
götuljósunum. varpar Ijósið bjarma á
rauðgullið hár. sem hrynur slétt yfir
axlir hennar og felur að nokkru leyti
andlitsdrættina. Andlitið virðist
hjartalaga, augun græn-grá. nefið eilitið
uppbrett.
Hún er ung. hún er falleg.
Húner hrein mey.
Tölusett húsin renna stöðugt hjá.
Fjörutiu og sex. Fjörutiu og átta.
Fimmtíu. Oddatölurnar eru við hina
hliðgötunnar.
44 Vikan 20. tbl.