Vikan - 15.05.1980, Qupperneq 63
skrifar á ensku. Áhugamál hennar eru
útsaumur og dans.
Anja Barfuss, Finkenriek 18, 2102
Hamburg 93, W-Germany, er 17 ára og
óskar eftir islenskum pennavini. Hún
skrifar á ensku. Áhugamál hennar eru
svefn og dans.
Jutta Niese, Alte Harburger Elbbrucke'
2,2102 Hamburg 93, W-Germany, er 17
,ára og óskar eftir íslenskum pennavini.
Hún skrifar á ensku. Áhugamál hennar
eru dans. dýr og ísland.
Birgit Briese, Ziegelerstieg 8, 2102
Hamburg 93, W-Germany, er 17 ára og
óskar eftir íslenskum pennavini. Hún
skrifar á ensku. Áhugamál hennar eru:
dýr. hestamennska og prjónaskapur.
Ásta Lóa Jónsdóttir, Tunguvegi 68, 108
Reykjavík, óskar eftir pennavinum. Hún
er á 17. árinu og áhugamál eru: bréfa-
skriftir. handavinna og margt fleira.
Svarar öllum bréfum.
Clover Friendship Society, K.P.O. Bo\
141 Seoul, Korea, er heimilisfang á
pennavinaklúbbi þar í landi.
Ef maður hatar
stærðfræði-
kennarann
Hæ Póstur!
Er nóg að læra verslunar-
reikning ef ég ætla að verða
k&kfyr? Er Hótel- og veitinga-
skóíi Islands heimavistarskóli?
Ef svo er. hvað kcgtar að búa
þar? Þarf ég að fara I Hótel- og
veitingaskólann ef ég ætla að
komast á bát?
A.P. ogS.E.
... og græt aldrei nema
af frekju
Kœri Póstur!
Ég held það sé best að ég komi mér strax að efninu sem
mig langar að ræða um við þig. Ég vona að þú birtir bréfið
því mér líður alveg hrikalega. Það erþessi vanlíðan út af
hversu undirförul. lygin. eigingjörn og sjálfselsk ég er. Hvað
gott getur búið I svona fólki?
Svei mér þá, ekki veit ég það. Mér gengur illa í skólanum.
er hundleiðinleg. En þó er ég ekki svona upp á hvern dag,
samt býr þetta ofarlega I mér.
Ég veit að ósvífið fólk eins og ég þykir alveg hryllingur
og ég er búin að reyna mikið til að breyta þessu — en
ekkert gengur.
Svo fmnst mér svolítið skrítið að ég er aldrei hrædd i
myrkri eða við hrollvekjandi draugamyndir og slíkt.
Ég græt aldrei, nema af frekju, og sýni aldrei fólki
væntumþykju mína, ekki einu sinni mömmu ogpabba og
hvað þá stráknum sem ég elska og er með.
Er þetta heilbrigt? Efsvo er viltu þá vera svo vænn, ef þú
getur, að gefa mér góð ráð sem geta hjálpað mér undan
þessum hryllingi.
Ekki birta nafnið mitt. x
Við lestur bréfs þíns hvarflar að Póstinum hvort ekki hafi
verið nýafstaðin deila milli þín og foreldranna um þessi mál
eða annað skylt atvik. Að sjálfsögðu hefur þú þína galla eins
og allt annað fólk en varla ertu alveg jafnslæm og þessi sjálfs-
lýsing gefur til kynna. Framkomu við þína nánustu ætti ekki
að vera svo erfitt að bæta með góðum vilja og sjálfsaga og
alltaf er það fremur jákvætt þegar fólk viðurkennir galla sína
jafnfúslega og þú gerir í bréfinu.
Hins vegar er það ekki nenta gleðilegt að þú látir ekki
myrkur og hrollvekjur skelfa þig um of, enda yfirleitt allsendis
ástæðulaust.
Heilbrigði þín er sennilega óumdeilanleg en gallalaus ertu
ekkert fremur en aðrir. Ef þú gætir þess að láta ekki slæmu
hliðarnar skína um of í samskiptum við aðra ætti sjálfsmyndin
að breytast verulega með tímanum.
Auðvitað elska ég þig — ég verð bara að hvíla mig aðeins.
P.S. Hvað á maður að gera ef
maður hatar stærðfræði-
kennarann?
Ætlirðu að verða kokkur þarftu
að læra allt sem kennt er í því
fagi í Hótel- og veitinga-
skólanum. Sá skóli hefur ekki
heimavist og því þarftu að verða
þér úti um húsnæði í Reykjavík,
ef þú ert utan af landi. Til
inngöngu í skólann þarftu að
vera á samningi hjá einhverju
veitingahúsi og tekur námið
fjögur ár. Kennt er fjóra mánuði
í einu og unnið á veitinga-
húsunum í millitíðinni.
Til þess að komast á bát
þarftu ekki ennþá að hafa próf í
greininni, en þróunin hefur
verið býsna hröð og því
ævinlega vissara að hafa vaðið
fyrir neðan sig. Á vegum Hótel-
og veitingaskólans hafa verið
haldin námskeið fyrir sjókokka
og er þar um kvöldnámskeið að
ræða, sem standa yfir í átta
mánuði í senn. Námsgjaldið er
um fimmtán þúsund krónur
þegar þetta er skrifað.
Ef þú hatar stærðfræði-
kennarann skaltu • reyna að
halda því sem best leyndu og
gæta þess vel að þær tilfinningar
leiði þig ekki út í einhverjar
róttækar ráðstafanir gegn
áðurnefndum kennara. Hatrið
gæti átt rót að rekja til
áhugaleysis þíns og vankunn-
áttu í reikningi. Allt slíkt skrifast
á þinn reikning en ekki
kennarans og eina ráðið að
leggja mikla rækt við stærðfræði
á næstunni.
20. tbl. Vikan 63