Vikan - 05.12.1985, Page 23
6.
DESEMBER
Skapgerð
Þeir sem fæddir eru þennan dag
eru ágætlega greindir, áræönir og
hreinskiptnir. Lífsfjöriö er ótví-
rætt og smitandi, þeir sem þurfa á
hvatningu að halda dragast að af-
mælisbarninu og í kringum það
gerast ýmsir athyglisverðir hlut-
ir, jafnvel þótt það sjálft leggi ekki
beinlínis hönd á plóginn. Það er
lagið við að koma ár sinni fyrir
borð og hefur víðar áhrif en í fljótu
bragði gæti virst.
Lífsstarf
Iðnaður eða verslun og viðskipti
eru líklegasti starfsvettvangur
þessa fólks. Þaö er talnaglöggt og
skipulegt í vinnubrögðum en
skiptir sennilega nokkuö oft um
starf. Fjárhagurinn ætti að verða í
stakasta lagi komi ekki til sér-
stakra óhappa og fyrir þessu fólki
liggur að ferðast mikið, hvort sem
það verður í kringum störf eða í
frístundum.
Ástalíf
Börn dagsins eru fremur reikul í
tilfinningamálunum en ekki ætti
þaö þó að koma að sök. Þau leita
sér maka með svipuö áhugamál,
halla sér oftast að fólki sem kann
að meta tónlist og góðar bók-
menntir, starfar jafnvel á þeim
sviöum. Ekki er útlit fyrir áföll í
ástamálunum en hæglega gæti
fleiri en einn af hinu kyninu komið
við sögu. Barnalán blasir við
þessu fólki.
Heilsufar
Helst er hætt við innvortis sjúk-
dómum, til dæmis í lungum eða
innkirtlum.
7.
DESEMBER
Skapgerð
Börn þessa dags eru ýmsum
góðum gáfum gædd. Þau eru fé-
lagslynd, kappsöm og gefin fyrir
íburð. Þetta er stefnufast fólk og
metnaðargjarnt og vílar ekki fyrir
sér að leggja undir telji það hagn-
aðarvon í þvi. Það sýnir þeim sem
næstir þvi standa mikla umhyggju
og á auðvelt með að tengjast öðr-
um traustum vináttuböndum.
Lífsstarf
Þetta fólk er líklegt til að standa
framarlega og verður leiðandi á
sínu sviði, hvar svo sem það hasl-
ar sér völl. Miklir fjármunir fara
um hendurnar á því og ekki ein-
göngu þess eigin f jármunir því að
vel er því treystandi fyrir fé.
Heppna kaupsýslumenn er að
finna meöal þessa fólks, það kem-
ur við sögu við stjórnun ýmissa
fyrirtækja og hefur gjarnan áhrif í
opinberri stjórnsýslu.
Ástalíf
Heldur er þetta fólk heppiö í
makavali og heimilislíf þess verð-
ur gott ef það heldur aftur af ráð-
ríkinu. Það er svo umgengnisgott
að ekki er ástæða til annars en
halda að allt verði í sóma. Breyt-
inga má vænta á fjölskylduhögum
oftar en einu sinni á ævinni.
Heilsufar
Börn dagsins leggja venjulega
stund á einhverjar íþróttir og
halda sér markvisst í góðri þjálf-
un. Þau geta búist við að fæturnir
gefi eitthvað eftir þegar líöa tekur
á ævina en aö öðru leyti sleppa
þau að líkindum viö sjúkdóma, ut-
an umgangspestir.
8.
DESEMBER
Skapgerð
Hresst fólk og alúðlegt er fætt
þennan dag. Það er kjarkmikið og
atorkusamt en skortir einbeitni og
þrautseigju til að fá því framgengt
sem efni standa tU. Það er skýrt í
hugsun, göfuglynt og nokkuð stór-
látt. Það heillast af íþróttum,
áhættu og hvers konar íburði en er
of hyggið til aö tefla mjög djarft
sjálft. Börn dagsins kunna vel að
meta góðan félagsskap, eru ræðin
og hafa yndi af ferðalögum.
Lífsstarf
Miklir og góðir möguleikar bíða
þessa fólks á atvinnu- og fjár-
málasviðinu. Þótt steinn kunni að
verða lagður í götu þess af og til
ætti þaö ekki að verða í vandræð-
um með að bjarga sér. Það stund-
ar trúlega mörg störf og margvís-
leg um ævina og nýti það þau tæki-
færi sem bjóðast getur það lagt
stund á það sem hugur þess stend-
urtil.
Ástalíf
Ekki bráðliggur börnum dags-
ins á í hjónabandið en þrátt fyrir
það er alls óvíst að þau haldi sig
við sama maka ævina út. Þau eru
trygg þeim sem þau taka og betri
að hafa með sér en móti.
Heilsufar
Þeir sem fæddir eru þennan dag
eru stálhraustir en mega gæta sín
á kvefi, kulda og gikt.
9.
DESEMBER
Skapgerð
Heilbrigt og jákvætt lífsviðhorf
einkennir afmælisbörn þessa
dags. Þau eru blíðlynd, velviljuö
og miklar drengskaparmanneskj-
ur. Sjálfstæöi, sjálfstraust og ljúf-
mannleg framkoma afla þessu
fólki góðra vina, það á gott meö að
hafa áhrif á aðra en misnotar ekki
áhrifavald sitt. Barn dagsins kann
því betur að hafa nóg handa á
milli, verður enda vel til fjár og
ann lífsins lystisemdum.
Lífsstarf
Leiðtogahlutverk hæfir þessu
fólki vel. Það hefur ótvíræða hæfi-
leika til uppeldis- og kennslu-
starfa, leggur mörgum lið í gegn-
um félagslega þjónustu eða í
prestsskap og þótt það velji sér
störf af þeim toga, sem ekki virð-
ast ábatasöm, verður því ekki
skotaskuld úr því að afla sér nægi-
legs f jár með einhverjum hætti.
Ástalíf
Einskærum klaufaskap er um
að kenna verði börn dagsins ekki
lánsmanneskjur hvaö hjúskap og
heimilislíf snertir. Jafnræði mun
ríkja í hjónabandinu og böm þessa
fólks búa viö hin ákjósanlegustu
uppvaxtarskilyrði. Mikið er um
fjölburafæðingar hjá þeim sem
fæddir eru þennan dag.
Heilsufar
Heilsa þessa fólks er eins og
gengur og gerist en mikið má vera
ef það siglir í gegnum lífið án bein-
brota.
10.
DESEMBER
Skapgerð
Geðríkir og tilfinninganæmir
eru þeir sem fæddir eru þennan
dag. Þeir eru meira gefnir fyrir
líkamleg átök en bjástur á and-
lega sviðinu. Rökhugsun er áber-
andi hjá þessu fólki og það gagn-
rýnir ótæpilega þá sem ekki eru
sjálfum sér samkvæmir. Erfitt er
aö átta sig á geðbrigðum þess en
drenglyndið fer ekkert á milli
mála.
Lífsstarf
Best hentar þessu fólki að starfa
sjálfstætt en sé þess ekki kostur er
jafngott að yfirmaðurinn sé starfi
sínu vaxinn. Útivinna fellur því
betur en innivinna og ósérhlífnin
gerir það að verkum að það er vel
látið af samstarfsmönnum jafnt
sem yfirmönnum.
Ástalíf
Afmælisbarnið rasar ekki um
ráð fram hvað makaval snertir og
giftist fremur seint. Mestar líkur
eru á notalegu og rólegu heimilis-
lífi en ólíklegt að f jölskyldan verði
stór.
Heilsufar
Þetta fólk þarf ekki að kvarta
yfir heilsunni og hlaði það ekki ut-
an á sig spiki getur það lifað eins
og blómi í eggi.
11.
DESEMBER
Skapgerð
Framkoman er blátt áfram,
lundin létt og skopskynið óbrigð-
ult. Þessir eðlisþættir gera það að
verkum að afmælisbarnið er
hvers manns hugljúfi. Það er dá-
lítið glysgjarnt og gefið fyrir óhóf
og munað. Ekki skortir það fé og
getur því vel þjónað þessum duttl-
ungum sínum. Það sem helst verð-
ur þessu fólki f jötur um fót er fljót-
færni þess og ístöðuleysi.
Lífsstarf
Hvað svo sem um atvinnumál
þessa fólks er að segja má fullvíst
telja að ekki komi það til með að
skorta fé. Það er líklegt til að
hagnast á kaupsýslu, jafnvel
braski, og gæti sömuleiðis erft
umtalsverða fjármuni. Því er sýnt
um að hagnýta sér nýjungar og
óragt að grípa gæsina þegar hún
gefst.
Ástalif
Börn dagsins eru ljúfir og góðir
félagar. Þau verða tæplega við
eina fjölina felld en þau sjálf og
aðrir ættu að komast óskaddaðir
úr þeim málum öllum. Mestar lík-
ur eru á fleiri en einu hjónabandi
eða sambúð en hvaö sem annars
má um fjármálavit þeirra segja
giftast þau alls ekki til f jár.
Heilsufar
Lifnaðarhættir þessa fólks eru
stundum með þeim hætti að heils-
an getur verið í hættu en setji það
undir þann leka ætti það að losna
við annað en umgangspestir.
49. tbl. Vlkan 23