Vikan - 05.12.1985, Qupperneq 28
Popp
Ingólfur S. Guðjónsson.
Texti og myndir: Halldór Lárusson
Richard Scobie.
Rikshaw:
Tilalls líklegir
Þeir eru ólíkir öðrum starfandi popphljómsveitum á ís-
landi. í fyrsta lagi syngja þeir öll lög á ensku. Ástæðan fyrir
því er sú að söngvarinn er amerískur og sökum þessa fær
maður þá tilfinningu þegar horft er á þá að þeir séu ekkert
endilega íslenskir.
Þeir flytja líka eingöngu frumsamin
lög, koma eingöngu fram sem hljóm-
leikaband og þeim er full alvara með þvi
sem þeir eru að gera. Meölimaskipan
hefur veriö sú sama frá upphafi og þeim
hefur tekist að skapa um sig ákveðna
dulúð sem gerir þá spennandi i augum
fólks. (Ég veit af eigin raun að það er
auðveldara að ná I forseta þessarar
þjóðar en meðlimi Rikshaw.) Svo má
líka fylgja með að þetta eru ekki ein-
hverjir heilalausir tónlistargæjar eins og
fólk heldur oft um meðlimi þessarar
stéttar. Það er nefnilega svo að einn
þeirra er á fjórða ári í lögfræði, annar
stundar nám í sálfræði og enn einn er
fyrrverandi bankauppi. Af þessu má sjá
að Rikshaw er geysilega eftirtektarverð
hljómsveit sem á eftir að láta mikið að
sér kveða í framtíöinni ef að líkum læt-
ur. I tilefni af því að hljómsveitin fer að
senda frá sér sina fyrstu plötu skulum
við renna yfir feril hennar.
Upphafið
Hljómsveitin Rikshaw var stofnuð
28 Vikan 49. tbl.
fyrsta júní nítján hundruð áttatiu og
fjögur af þeim Ingólfi S. Guðjónssyni
(hljómborð), Sigurði Gröndal (gítar),
Richard Scobie (söngur), Degi Hilmars-
syni (bassi) og Sigurði Hannessyni
(trommur). Sigurður er nú hættur í
hljómsveitinni.
Það varð strax stefna hljómsveitar-
innar að helga sig eingöngu tónleika-
haldi og láta þar meö hinn islenska
sveitaballamarkað alveg vera. Þetta var
ekki ákveöið af neinni stórmennsku
heldur höfðu menn bara ekki áhuga og
auk þess nóg af böndum til að bítast
um markaðinn. Þegar eftir stofnun
hljómsveitarinnar hófust langar og
strangar æfingar sem stóðu í nokkra
mánuði og það var ekki fyrr en 23. nóv-
ember sem Rikshaw kom fyrst fyrir al-
menningssjónir, það var nánar til tekið
á skemmtistaðnum Safari og þó að
þetta væru fyrstu hljómleikar sveit-
arinnar var troðfullt hús, 450 manns, og
viðtökur áhorfenda betri en nokkur
þeirra félaga þorði að vona. Strax eftir
þennan fyrsta konsert urðu strákarnir
varir við góðan meðbyr og áhugi ís-
lensku plötufyrirtækjanna lét ekki á sér
standa. Þegar farið var að ræða málin
bar mikið á milli og endirinn varð sá að
stefna Rikshaw samræmdist ekki
stefnu íslensku plötufyrirtækjanna og
ekki er meira um það að segja.
En æfingar halda áfram inni við sund-
in blá og sömuleiðis halda þeir hljóm-
leika í nokkrum framhaldsskólum á
höfuðborgarsvæðinu við Ijómandi und-
irtektir og stöðugt kallar Rikshaw á
meiri og meiri tíma meölima sinna sem
hlýða kallinu og láta þar með aðra hluti,
sem „venjulegu" fólki finnst skipta
meira máli, sitja á hakanum, til dæmis
aö lifa eðlilegu lifi.
I vor kom hljómsveitin fram á krýn-
ingarkvöldi ungfrú Islands og var í
framhaldi af því boöið að koma og spila
á hinum þekkta skemmtistað i London,
Hippodrome, sem þeir að sjálfsögðu
þáöu.
Það var svo 27. mai sl. sem Rikshaw
Dagur Hilmarsson.
-X