Vikan - 05.12.1985, Síða 32
JIM MORRISON
This is
the end
mu onlu
friena
the end”
Jim
Morrison
eins
og við
munum
hann ef til
viil best.
Eftirdr. Óttar Guðmundsson
Einn frægasti útlendingur, sem
liggur grafinn í Pére Lachaisegarðin-
um í París, er söngvarinn og skáldið
úr hljómsveitinni Doors, Jim Morri-
son.
Ég fór í þennan kirkjugarð einn
fagran dag fyrir skömmu og erindið
var að skoða leiði Morrisons. Hann
var eitthvert stærsta nafnið í rokk-
heimi þeirrar kynslóðar sem tók út
sinn sálarlega og pólitíska þroska á
árunum kringum 1968. Það voru árin
þegar æskufólk fór út á göturnar og
sagði kerfinu að éta skít og slóst við
lögreglu og hermenn fyrir vikið.
Þetta voru árin þegar gömlu
gildismati var sagt stríð á
hendur og nýr heimur virtist í
mótun. Menn létu hár sitt og
skegg vaxa og skáru upp herör
gegn einhverju óskilgreinan-
legu sem menn kölluðu kerfið. I
stað efnishyggju, valdagræðgi
og samkeppnisþjóðfélags átti
að ríkja friður og bræðralag
fólks sem elskaði hvert annað.
Það var einhver annarleg
stemmning í loftinu sem menn
gátu ekki skilið, gamall heimur
virtist riða til falls en enginn
virtist vita hvað tæki við. Yfir
mótmælagöngum blöktu rauðir
fánar en göngurnar voru fyrst
og síðast mótmæli gegn ríkj-
andi skipulagi, hvaða pólitísk-
um lit það var málað. Þessi óró-
leiki hins óraunverulega skaut
mörgum skelk í bringu, menn
framtíðarinnar sneru baki við
fortíðinni án þess að ráða við
nútíðina.
Og auðvitað leyndust ormar
líka í þessari loftkenndu paradís
þess óþekkta og yfir heiminn
flæddu alls kyns efni til að
breyta skynjun og hugsun og
víkka hugann eins og mari-
juana, LSD og meskalin auk
vímugjafa ríkjandi kynslóðar,
áfengis. Vímuefni gerðu menn
enn ruglaðri í ríminu en ella og
margur tapaði áttum i þessum
darraðardansi á landamærum
efnisheims og annars. Slíkir
tímar hlutu að ala af sér
tónlistarmenn sem voru engum
öðrum líkir; tónlistarmenn sem
létu sér ekki nægja að syngja
um ást og blóm eða fyrsta
kossinn heldur reyndu að koma
þessum sérkennilega tíðaranda
í orð og tóna; tónlistarmenn sem
ekki stóðu á senunni eins og
klipptir út úr ameríska draumn-
um, fallegir á að líta og
þægilegir fyrir at
lýstu frati á kerfiö sem oi pa.
32 Vikan 49. tbl.