Vikan - 05.12.1985, Side 57
ólasveinn á
pálmaströnd
Damon Runyon
Það er á heitu síödegi í borginni West
Palm Beach að náungi aö nafni Hlunkur
Zimpf stendur á götuhorni og er ekki
sérlega djúpt hugsi. Skugginn af hon-
um er svo stór að tvö lítil blökkubörn
hafa sest í forsæluna á gangstéttar-
brúninni við fætur hans. Hlunkur þessi
vegur nefnilega þrjú hundruð pund og
þar sem hann er ekki nema fimm fet og
sex þumlungar á hæð er hann satt að
segja töluverður belgur og er af honum
skuggi ekki lítill.
Samt er hann frekar illa haldinn um
þessar mundir og fimmtán til tuttugu
pundum léttari en venjulega og hann
hefur ekki neytt matar í tvo daga. Litlu
blökkubörnin sætu varla svona nærri
honum ef þau vissu hversu svangur
hann er. Ef satt skal segja er Hlunkur
svo svangur að maginn i honum er far-
inn að halda að kokið sé komið i fri, og
það sem verra er, hann á ekki grænan
eyri i vasanum til að létta af sér þessari
raun.
Hlunkur þessi er veöreiðaharkari aö
atvinnu og hann er á leið til Miami að
taka þátt í vetrarleikunum í Tropical
Park og Hialeah. Hann hafði farið frá
New York með rétt nægjanlegt fé til að
komast í rútu til West Palm Beach en
ekkert þar umfram fyrir mat og drykk á
leiðinni. Á hinn bóginn harmar hann
það ekki að þurfa aö stíga af áætlunar-
bílnum í West Palm Beach því máttur
hans þverr nú óðum fyrir hungurs sakir
og hann gerir þvi skóna að þarna takist
honum að verða sér úti um mat.
I viðbót við allt annað var fólkið i
bílnum farið aö tala um að heimta af
honum aukagjald því tilfelliö er að
Hlunkur er svo bústinn á bæði borð að
menn héldu því fram að undir hann
væru lögð þrjú sæti. Samferöamenn
hans voru kvartsárir og ferðin því að
engu leyti skemmtireisa fyrir Hlunk.
Nú, jæja. Sem Hlunkur stendur
barna á horninu rennir stór, rauður
kaggi upp að gangstéttarbrúninni and-
spænis honum. Honum ekur laglegur
°9 sólbrúnn ungur maöur i sportlegri
skyrtu en viö hlið hans situr horuð
dama og horaða daman bendir Hlunki
aö koma til sín.
I fyrstu veitir Hlunkur henni enga
athygli. Hann vill ekki hafa forsæluna af
hlökkubörnunum litlu því jafnbrjóst-
góöur maður og Hlunkur, þegar börn
eru annars vegar, hefur aldrei veriö
uPpi. Ef satt skal segja er Hlunkur eigi
litiö kvalinn þarna í hitanum af þeirri
ástæðu einni að hann er of brjóstgóður
til að færa sig.
Horaöa daman í kagganum heldur
'áfram aö banda til hans og kallar aö lok-
um háum rómi: — Hæ, þú, svo Hlunk-
ur labbar aö endingu út á götuna að
bilnum og heldur helst að hún vilji
spyrja hann til vegar þótt Hlunkur þekki
ekkert til á þessum stað. Hann sér að
þetta er ekki ólagleg dama þó ekki sé
hún ung. Gult háriö hefur hún bundiö
aftur með dragfinum klút, hún er i blárri
peysu, bláum buxum og á úlnliöunum
ber hún mörg armbönd og hringa á
fingrum.
Hlunkur sér að hér fer fólk sem
hlýtur aö vera vel í efnum. Hann sér
einnig aö augu hennar eru blá og
hörkuleg og allt hennar fas hiö frekju-
legasta því þegar hann gengur í átt að
bilnum, ásamt blökkubörnunum, sem
fylgja skugganum af honum, mælir hún
til hans eftirfarandi með rödd sem virð-
ist raspa hálskirtlana á uppleiöinni.
— Heyrðu mig, segir hún. — Ertu
atvinnulaus?
Nú er Hlunkur þessi ávallt mjög
kurteis við allar kvenpersónur, jafnvel
þó hann sjái að þær séu algjörar tæfur,
svo hann bugtar sig og segir. — Já. —
Ekki svo að skilja að ég vilji vera með
skæting, frú, en hvereraðspyrja?
— Ég, segir horaöa daman, ég er frú
Manvaring Mimm.
— Ég heiti Elmore Zimpf, segir
Hlunkur þó svo hingaö til hafi hann
aldrei nefnt nafn sitt á almannafæri af
ótta viöaðfinnslur.
— Skiptir engu hver þú ert, segir frú
Mimm. — Viltu vinna eða ertu í fríi?
Auðvitað vill Hlunkur ekki vinnu.
Vinna er það sem hann hefur allt lif sitt
veriö að reyna að forðast. Aukinheldur
eru mannasiðir frú Mimm honum ekki
að skapi og hann er i þann veginn aö
draga sig til baka þegar honum kemur í
hug hversu svangur hann er. Þvi spyr
hann hana hvers konar starf hún hafi í
huga og hún segir viö hann si sona.
— Ég vil að þú verðir jólasveinninn
minn, segir hún. Ég held hina árlegu
jólaveislu heima hjá mér á Palm Beach
annað kvöld og um leiö og ég sá þig
sagði ég við greifann hérna að þú værir
einmitt hinn ákjósanlegasti jólasveinn
fyrir mig. Jólasveinabúningurinn minn
er einmitt mátulegur á þig, segir hún.
— Viö verðum alltaf að troða hann út
með púöum fyrir yfirþjóninn minn,
hann Sparks, og þaö lítur aldrei nógu
eölilega út.
Við þetta rifjast upp fyrir Hlunki að
jólin standa reyndar fyrir dyrum og þá
kemur honum auövitað i hug veitinga-
hús Mindys á Broadway og hvernig
kalkúninn er framreiddur þar; með
hjúp, trönuberjasósu, stöppuðum
kartöflum og hreðkum.
Við slíka þanka dæsir hann þung-
lega og gleymir eitt augnablik stund og
stað. Hann er rifinn upp úr þessum
hugsunum viö það að ökuþórinn ungi
mælir eftirfarandi:
— Þetta feita fífl er dautt fyrir ofan
axlir, Margrét. Þú ættir að finna þér
annan.
— Nei, segir hún. — Ég verð að fá
þennan. Ó, Gregorio, hann yrði alveg
frábær jólasveinn. Sjáöu til, segir hún
við Hlunk, ég borga þér fimmtiu doll-
ara.
Við það að heyra unga manninn kalla
sig feitt fífl er þönkum Hlunks snarlega
snúið aftur til West Palm Beach. Hann
gefur unga manninum náinn gaum og
veitir því nú eftirtekt að hann er með
lítið yfirskegg og eitthvað er við hann
ákaflega kunnuglegt.
A hinn bóginn getur Hlunkur ekki
komiö honum fyrir sig svo hann ályktar
að það sé bara manngeröin sem veldur
þessum kunnugleika því að auövitað
eru þúsundir laglegra, sólbrúnna ungra
manna með yfirskegg á þeytingi um
Flórída á þessum tíma árs. En honum
likar stórlega miður viö þennan tiltekna
unga mann fyrir að kalla hann feitt fffl.
Ef satt skal segja er Hlunkur
móögaöur. Þótt honum sé sama um að
vera kallaöur feitur eöa jafnvel fífl er
honum ekki sama sé hann kallaöur
hvort tveggja í einu því það hljómar svo
óviröulega. Hann er einmitt að íhuga
hvort það kunni ekki að vera góð hug-
mynd að gefa þessum unga manni einn
á lúöurinn þegar hann heyrir frú Mimm
nefna fimmtiu dollara.
Hann tekur því aftur upp þráðinn
til að ganga úr skugga um aö hann
megi trúa sinum eigin eyrum — að hún
sé tilbúin að borga honum fimmtiu kall
og þar af tvo tikalla fyrirfram til þess að
hann þurfi ekki að fara fótgangandi yfir
Worth-vatn að heimilisfangi því sem
hún fær honum. Tilskiliö er að hann
haldi strax af stað og gengur Hlunkur
að þessum skilmálum.
Hann hóar blökkubörnunum út úr
skugganum af sér, hvoru með sinn
fimm senta peninginn til að þau telji þá
þegar að hann sé jólasveinninn.
Þannig atvikast þaö að Hlunkur
Zimpf tekur hús á Bleikuvötnum en svo
heitir landareign frú Manvaring Mimm á
Palm Beach. Landareign þessi er á
stærö við Central Park og snýr fram til
sjávar. Þar er fjöldi pálmatrjáa, gos-
brunna, myndastyttna og einnig sund-
laug. Húsið minnir Hlunk á Rockefeller-
miðstöðina og þar er slík gnægð þjóna
að nægja myndi til að stofna heilt
verkalýðsfélag.
Hlunkur gerir vart við sig hjá
Sparks yfirþjóni og I Ijós kemur að
Sparks þessi verður næsta kátur er
hann heyrir að Hlunkur eigi að vera jóla-
sveinn því tilfelliö er að Sparks hefur
alla tið talið það vanviröu við hástéttar-
þjón að spila sig jólasvein með púða-
tróð í buxunum.
Þar að auki kemur í Ijós að Sparks er
mikill veöreiðaunnandi og þegar hann
kemst að þvi aö Hlunkur er vel heima I
bikkjubransanum veröur hann altillegur
og lætur honum í té gnótt upplýsinga
og hneykslissagna um hvem og einn I
heldri manna hópum Palm Beach og
nærsveita.
Hann útskýrir fyrir Hlunki aö
Bleikuvötn séu ein stærsta landareignin
á þessum slóöum og að frú Mimm viti
ekki aura sinna tal. Peningana fær hún
frá pabba sínum sem gerði það gott í
olíuviöskiptum á árum áður. Hún giftir
sig þegar hún er á þeim buxunum — nú
þegar þrisvar sinnum — og nú er hún á
þeim einu sinni enn. Reyndar segir
Sparks Hlunki frá því aö nú hafi hún í
hyggju að giftast ungum manni,
Johnny Relf að nafni, sem eigi nóga
seðla — eða muni eiga þá þegar for-
eldrar hans verði svo vinsamlegir að
burtkallast héöan.
Sparks segir að persónulega sé
hann ekki hlynntur þessum ráöahag þar
sem dulitils aldursmunar gæti á hlutað-
eigandi. Hann segir aö Johnny sé
aöeins hálfþrítugur og I ofanálag ekki
skynugur eftir aldri en frú Mimm hafi
þegar lifaö tvær andlitslyftingar sem
hann viti um. En hann segir að hún sé
49. tbl. Vlkan 57