Vikan - 05.12.1985, Side 60
fel Stjömuspá
Hrúturinn 21. mars 20. april
Þér finnst á hlut þinn
gengiö og vilt helst
flýja af hólmi. Þaö
þýöir ekkert, bíttu
heldur á jaxlinn. Þú
átt fleiri möguleika
og betri en þú heldur.
Láttu ekki ástina
trufla þig of mikið.
Nautið 21. apríl -21. mai
Þér mun þykja þetta
heldur erilsöm vika
en þrátt fyrir þaö
líöur hún þægilega.
Sumir í kringum þig
eru orðnir dálitiö
leiöir á aö bíöa eftir
því að þú gefir
ákveðiö svar viö
knýjandi spurningu.
Tviburarnir 22. mai - 21. júni
Reyndu aö halda þig
meira heima en þú
hefur gert upp á
síökastið. Þú átt von
á góöum heimsókn-
um og færö mjög
upplífgandi fréttir.
Beislaöu matarlyst-
ina áöur en í óefni er
komið.
Krabbinn 22. júni 23. júli
Vertu varkár ef þú
reiðist í vikunni og
geröu ekkert sem
orkaö gæti tvímælis.
Núna er hagstætt aö
fara að undirbúa
verkefni sem þú
hefur skotiö á frest.
Þú átt eftir aö hafa
af þeim ómælda
ánægju.
Ljónið 24. júlí - 23. ágúst
Búöu þig undir ýmis
óvænt útgjöld í þess-
ari viku og reyndu aö
sýna gætni í fjár-
málum, aurarnir end-
ast ekki til eilíföar.
Þú ættir aö gera
eitthvað nýstárlegt
og leyfa öörum aö
njóta þess meö þér.
Meyjan 24. ágúst 23. sept.
Leggöu kapp á aö
leiðrétta misskilning
sem upp kemur, ella
kann hann að hafa
örlagaríkar afleiöing-
ar. Þú getur haft allt
á hreinu ef þú gætir
þess aö ekkert fari á
milli mála.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Þaö veröur reynt aö
hlaöa á þig verk-
efnum en þú átt
ýmsu ólokiö og ættir
aö spyrna við fótum.
Reyndu heldur aö
sinna ástvinunum,
þaö veröur þér og
þeim til heilla.
Hreyfðu þig meira en
aö undanförnu.
Sporðdrekinn 24. okt. - 23. nóv.
Nýlegar breytingar
ætla aö reynast þér
þyngri í skauti en þú
haföir gert ráö fyrir.
Gerðu áætlun,
örugglega má eitt-
hvaö bíöa afþvísem
þú hefur á prjónun-
um. Gættu þín í um-
feröinni um helgina.
Bogmaðurinn 24. nóv. 21. des.
Ástamálin hafa veriö
í einhverjum ólestri
en þessi helgi verður
þér heilladrjúg í
þeim efnum. Taktu
ekki aö þér verkefni
sem þú hefur litla
þekkingu á, þaö
borgar sig engan
veginn.
Steingeitin 22. des. 20. |an.
Þetta veröur erilsöm
vika. Þér hættir til aö
vasast í of mörgu og
ef þú gefur ekki í kem-
ur þú litlu í verk.
Örvæntu samt ekki,
óvæntir atburöir
valda því aö líf þitt
tekur dálitiö óvænta
stefnu.
Vatnsberinn 21. jan. 19. fetr.
Eitthvert umrót
verður í huga þínum
og þú áttar þig ekki
nógu vel á aöstæðun-
um. Reyndu aö taka
tillit til annarra. Þaö
er ekki ástæöa til aö
hætta heimilisfriön-
um þótt þú sért tví-
stígandi.
Fiskarnir 20. febr. 20. mars
Eitthvaö sem þú
hefur kviöiö lengi
reynist harla léttvægt
þegar til kastanna
kemur. Vendu þig af
því aö gera úlfalda úr
mýflugu. Þú hefur
líka öörum og merki-
legri málum að
sinna.
60 Vikan 49. tbl,