Vikan - 23.03.1989, Side 37
Alda: — Svo komu líka aftur inn margir
þeir sem höfðu starfað í Leikfélaginu áður
og margir þeirra hafa starfað mikið með
okkur.
— Hefur svona ferð áhrif á leiklistar-
áhugann?
Alda: - Þegar svona vel tekst til þá hlýt-
ur það að vera hvetjandi.
Björk: — Maður hlýtur að keppa að
svona löguðu aftur því þetta var alveg
ævintýri.
Alda: — Það voru þarna Ieikhópar sem
voru víðförlir og höfðu leikið víða bæði í
sínu heimalandi og svo erlendis. Það virð-
ist mörgum vera það markmið að fara og
leika sem víðast. Margir vildu bjóða okkur
að koma til sín og sýna, til dæmis til
Japans. En það eru engin tök á að taka slík-
um boðum. Bæði er það of kostnaðarsamt
og svo er fólk í vinnu eða í skólum.
- Það er augljóst að þama hefur
náðst frábær árangur hjá Leikfélagi
Hafnarfjarðar. En hvað er ykkur
minnisstæðast úr ferðinni?
Björk: — Það er svo margt úr þessari ferð
að það er erfítt að nefha eitthvað sérstakt.
Indland er alveg einstakt og svo ólíkt öllu
sem maður hefur áður kynnst. Það er þá
kannski ein setning sem mér verður vafa-
laust alltaf minnisstæð, því þegar maður
bað um eitthvað til dæmis á veitingahúsi
þá var oftast svarað: — No problem. Það
var alveg sama hvert vandamálið var þá
fékk maður alltaf sama svarið. En svo gerð-
ist yfírleitt ekkert svo maður spurði aftur
en fékk enn á ný: — No problem. Þetta gat
gengið enn og aftur en svo kom svarið
loks að því miður væri þetta ekki til eða
ekki hægt. Þetta er kannski dæmigert. En
kurteisir voru Indverjarnir.
Alda: - Ég segi nú eins og Björk að það
er svo margt sem kemur upp í hugann að
það er erfitt að gera upp á milli. Það má
segja að skilningarvitin hafí öll verið of-
hlaðin á meðan á öllu þessu stóð. Maður
var stanslaust allan tímann upptekinn af
því að vera að upplifa eitthvað nýtt. Gest-
risnin verður eftirminnileg.
- Og nú þegar þið eruð komin heim
á ný verður þá þráðurinn tekinn upp
á ný í leiklistinni?
Alda: - Já, við munum halda áfram að
sýna ,AHt í misgripum" á laugardags- og
sunnudagskvöldum í Bæjarbíói.
- Örfstutt að lokum.
Alda: — Þessi ferð var farin með mjög
stuttum fyrirvara og þó að hluti af kostn-
aði úti hafi verið greiddur fyrir okkur þá
hefði okkur verið þetta gjörsamlega óvið-
ráðanlegt ef við hefðum ekki verið styrkt
til fararinnar. Við höfðum aðeins mánaðar
fýrirvara til undirbúnings. Bara fargjöldin
sem við þurftum að greiða voru yfir
milljón.
Björk: — Þá kom Hafnarfjarðarbær til
skjalanna með rausnarlega fjárveitingu
upp á 500 þúsund.
Alda: - Margir af þátttakendum eru
skólafólk sem annars hefði ekki getað farið
en þetta viljum við þakka. Þeir brugðust
mjög fljótt og vel við um fjárveitingu. □
Fyrirfermingar-
stúlkumar
Pósthússtræti 13, sími 22477.
ŒB AUGtySINGAÞJONUSTAN t SÍA
„Sjarmerandi"
satínnáttföt, jakki,
buxur og sloppur.
Sérstaklega
vandað satín,
mjúkt og létt.
Fallegir litir,
mildir eða iíf-
legir að vild.
6. TBL1989 VIKAN 35