Vikan - 23.03.1989, Page 42
SNYRTING
NÁTTÚRULEGAR SNYRTIVÖRUR:
Húðnæringin sem virkar
jofnt innan frá og utan
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
^ ^ il að halda húðinni í sem bestu
I formi þá þarf að hugsa jafnvel um
I það sem látið er ofan í sig eins og
JL. það sem borið er á húðina. í júlí í
fyrra sögðum við hér í Vikunni lítillega ffá
hjálparmeðali fyrir húðina sem var nýlega
komið á markaðinn á Islandi. Þetta var
Super Glandin húðnæring, sem er bæði
krem og hylki til að taka inn. Síðan höíúm
við heyrt um marga sem þetta hafa prófað,
auk þess sannreynt virkni þess sjálf, og
fínnst okkur ástæða til að segja aðeins nán-
ar ffá Super Glandin og hvað það virðist
geta gert.
Super Glandin eru náttúrulegar snyrti-
vörur framleiddar í Svíþjóð, en í þeim eru
fjölómettaðar fitusýrur (gammalínólsýrur-
GLA) unnar úr baunajurt sem nefnist
„hjólkróna," sem virðast hafa mjög góð
áhrif á margt varðandi heilsuna og þá ekki
síst útlitið, því þær virðast minnka
hrukkur, hindra að nýjar myndist og
hressa húðina. Líkaminn framleiðir GLA
en með aldrinum framleiðir hann minna,
auk þess sem mataræði og ýmsir þætti í
umhverfinu rýra framleiðslugetu hans.
GLA er til staðar í móðurmjólkinni, en auk
þess er það einnig í dökkum vínberjum.
Kvöldvorrósarolía hefúr verið mjög vinsæl
hér á landi og margir telja hana hjálpa sér,
í henni er einnig GLA. Munur á milli henn-
ar og Super Glandin er sá að í því er magn-
ið þrefalt meira.
Slær fljótt á tíðaverki
GLA virðist slá á tíðaverki og það höfum
við sannreynt hér á Vikunni, því einn dag-
inn var ein stúlkan svo slæm að hún hélt
hún þyrffi að fara heim. Önnur sem átti
Super Glandin hylki og hafði heyrt hversu
vel það hafði hjálpað einni 12 ára sem var
að byrja og hafði mikla verki, bauð starfs-
systur sinni eitt til að prófa. Um 5 mínút-
um síðar kom hún og sagði að þetta væri
hreint undarlegt, því allir verkir \'æru
horfnir. f tímaritinu „Hálso revyn" frá
október 1988 er sagt frá ungri konu, Su-
sanne Kronstedt, sem er með psoriasis og
hvemig tókst að halda útbrotunum niðri
með Super Glandin kreminu.
Mildar áhrif psoriasis
Hún segir að hún hafi byrjað á að nudda
kreminu á útbrotin kvölds og morgna. Það
fyrsta sem hún tók eftir var að kláðinn
minnkaði um leið og hún bar kremið á sig.
Mánuði síðar var húðin í mun betra ásig-
komulagi, því hún var ekki eins þanin eða
þurr og hún hafði verið. Útbrotin voru þó
ekki horfin, en voru minni. Kremið hafði
einnig góð áhrif á andlitshúð hennar, sem
henni fannst vera mun þurrari eftir að hún
fór að vinna við tölvu allan daginn. Eftir
eins árs notkun voru blettirnir orðnir
smáir og fáir, en jafnframt því að nota
kremið þá hugsar Susanne mjög vel um
það sem hún lætur ofan í sig -sem er aðal-
lega grænmeti og ávextir, en næstum ekk-
ert kjöt — hún færir húðinni aukinn raka
með því að drekka mikið vatn og nýtir
einnig vel góð áhrif sólarjóssins og salt vatns
á húðina. Þannig tekst henni að halda sjúk-
dómnum niðri, þó hann sé alltaf til staðar.
Hjálpar þeim sem eru með
exem
í febrúarhefti Hemmets í ár segir ffá
annarri konu, Ingrid Axelson, sem hefur
þjáðst af exemi og kláða allt sitt líf. Hún
hefúr í gegnum tíðina prófað allt mögulegt
til að reyna að ráða bót á meininu; áburði,
breytingu á mataræði og forðast umhverfi
sem virtist hafa slæm áhrif, en allt kom fýr-
ir ekki. Stundum var húð hennar svo þurr
og viðkvæm að hún sprakk við minnstu
hreyfingu og henni fannst eins og húðin væri
alltaf brunnin. Þegar Lennart Nilson læknir
sagðist geta hjálpað henni með nýju kremi
þá greip hún það hálmstrá fegins hendi.
Læknirinn ráðlagði henni að taka inn Sup-
er Glandin hylkin og nota kremið. í fýrstu
tók Ingrid ekki eftir neinu batamerki, að-
eins að hún bólgnaði upp. Eftir um tvær
vikur hjaðnaði bólgan og húðin fór að
mýkjast. Síðan hefúr hún haldið áfram að
taka inn hylkin og borið á sig kremið og
segist nú geta verið í stutterma kjól án
þess að þurfa að skammast stn fyrir húð-
ina.
Læknir rannsakar
virkni Super Glandin
1 4. tbl Femina í ár var viðtal við Lennart
Nilson lækni sem unnið hefúr að rann-
sóknum á virkni Super Glandin. Það voru
400 konur sem töldu að daglegt umhverfi
þeirra hefði þau áhrif að á húðina komu
útbrot eða hún þornaði óeðlilega. Læknir-
inn segist Iíta á húðina sem stærsta lífíæri
líkamans, sem hafi það ekki mjög gott í því
umhverfi sem flestir hrærast í daglega —
sem er innandyra þar sem loftið er yfirleitt
allt of þurrt og rafmagnað. Hann segir að
nú þegar við höfúm fjarlægst náttúruna þá
sé kominn tími til að leita til hennar eftir
hjálparmeðulum.
Lennast Nilson nefnir að þegar hylkin
séu tekin inn þá hjálpi GLA konum sem
finna fýrir spennu í brjóstunum, skap-
sveiflum og öðru vegna fýrirtíðaspennu.
Einnig að húðkremið örvi blóðrásina og
hafi þannig góð áhrif á starfsemi húðfrum-
anna. Húðin hafi fengið meira mótstöðuafl
gegn áhrifum útfjólublárra geisla og hafi
haldið betur rakanum og náttúrulegu fitu-
innihaldi sínu. Þegar hylkin eru tekin inn
þá hjálpi gammalínólsýrurnar líkaman-
um að framleiða prostaglandín, sem er
nauðsynlegt fýrir frumuvefina. Húðkrem-
ið getur ekki unnið á húðútbrotum, s.s. ek-
semi og psoriasis, en það getur mildað
þessa húðsjúkdóma. □
40 VIKAN 6. TBL. 1989