Vikan - 04.05.1991, Síða 13
brag,“ segir hann. „Þetta er í
takt við annað í þjóðfélaginu
en mér finnst oft að inntak at-
hafnarinnar vilji gleymast f öll-
um skrautumbúðunum. Stund-
um er eins og aðalatriðið sé að
festa augnablikið á filmu, ann-
aðhvort af myndbandi eða
Ijósmyndavél, þannig að
augnablikið sjálft glatast í
látunum. Kirkjubrúðkaup er
helgiathöfn með mjög tákn-
rænu formi því að trúin tjáir sig
með ákveðnum táknum. Altar-
ið í kirkjunni, þar sem hjóna-
vígsla fer fram, er tákn návist-
ar Guðs. Athöfnin er eins og
leikræn dramatísk tjáning ef
svo má að orði komast. Fyrir
vígsluna stendur brúðguminn
með brúðina sér á vinstri hönd
en þegar þau ganga út leiðir
hann hana sér við hægri hönd.
Fyrir athöfnina leiðir faðirinn
brúðina sér á hægri hönd. Það
er vegna þess að hægri hönd-
in táknar eignina og þegar þau
eru gift er konan „hægri hönd
mannsins" og eiginkona hans.
Þetta er arfur frá gömlum hug-
myndum og felst í sjálfu orð-
inu; gifting. Það er ekki prest-
urinn sem giftir, heldur giftast
hjónin hvort öðru. Og það er
faðirinn sem „gefur" dóttur
sína. Hún yfirgefur föðurhúsin
og fer inn á nýtt heimili."
- Þú vékst að því i athöfn-
inni að maður og kona væru
eitt.
„Já. Þannig skilgreinir Krist-
ur hjónabandið. Þau eru eitt og
hvort öðru ætluð til að skapa
sameiginlega framtíð. Og ef
við höldum áfram með táknin
þá getum við tekið hringinn
sem er bæði tákn tryggðar og
eilífðar. í gamla daga var það
aðeins konan sem fékk hring
við brúðkaupið. Hann var þá
innsiglishringur og táknaði
yfirráð konunnar yfir heimilinu
og búrinu. Orðið brúðkaup
tengist líka gömlum tíma.
Áður en gengið var til giftingar
var gert út um kaupin. Þá
lögðu heimili brúðar og brúð-
guma fram fjármuni til aö
tryggja nýja heimilinu
grundvöll. Þá var heiman-
mundurinn hugsaður sem eins
konar stofnframlag. Núna er
ungum brúðhjónum hins vegar
hent út á Guð og gaddinn og
verðtrygginguna."
- Hvað felst í hjónavígsl-
unni eins og hún gerist nú á
dögum?
„Athöfnin í kirkjunni er ofin
saman úr tveim þáttum og
hvorugan má vanta. Annars
vegar er hún veraldleg, eins
og þinglýsing á sáttmála, þar
sem þessi stofnun er löggilt og
söfnuðurinn er til vitnis. Þetta
felur það í sér að þjóðfélagið
tekur vissa ábyrgð á fyrirtæk-
inu og það eru ákveðin réttindi
og skyldur sem fylgja því. Hins
vegar er þetta trúarlega.
Drottinn, skaparinn, er upphaf
ástarinnar og það er hann sem
glæðir hana og styrkir. Öll
gæfa er frá honum. Þetta
tvennt, það veraldlega og það
andlega, þarf að haldast í
hendur. Við erum ekki englar
en við erum heldur ekki bara
jarðneskar verur. Við lifum
ekki bara á brauði einu
saman. Við þurfum líka nær-
ingu fyrir sálir okkar; trú von og
kærleika."
Hótel Holiday Inn hefur allt sem til þarf svo gjöra megi góða veislu.
Brúðhjónin geta valið um glæsilegt hlaðborö með heitum og köldum réttum,
virðulegt kaffihlaðborð eða spennandi pinnahlaðborð.
Veislusalir hótelsins taka allt að 130 manns i sæti eða 300 manns í standandi hanastél.
Kóróna hótelsins er Háteigur, þar sem gestir njóta hins rómaða útsýnis
til Esjunnar og yfir sundin blá.
Hótelsvítan fylgir með í veislukaupunum og þegar brúðhjónin draga sig i hlé
bíður þeirra glaðningur frá hótelinu á svítunni.
Að sjálfsögðu er morgunverður framreiddur þegar ungu hjónin óska þess.
Allar upplýsingar eru veittar í síma 689000.
S)VVW
Sigtún 38 - 105 Reykjavík - Sími (91) 689000
9. TBL. 1991 VIKAN 13