Vikan - 04.05.1991, Side 28
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON
HUGMYNDIR AÐ
PERSÓNULEGUM
K/ERLEIKSGJÖFUM
Hvað elskist þið heitt? Nú er
timi rómantíkurinnar runn-
inn upp aftur svo að það er
óhætt að láta draumana
rætast. Hvað segir þú tii
dæmis um að gefa ástinni
þinni eitthvað í líkingu við
það sem hér er minnst á
sem hugmyndakveikjur?
1 ■ Armbands- eða vasaúr
með skammstöfuðu nafni
hennar/hans, giftingardag-
setningu og tvö, þrjú ástarorð
með undirskrift þinni.
2. Fyrir hana: Innrammað
ástarljóð og mynd af þér í
umslagi sem brúðarmærin
færir henni að morgni brúð-
kaupsdagsins.
3. Fyrir hann: Snyrtitaska
með rakáhöldum, rakspíra og
skyrtuhnöppum ásamt mynd
af þér í fallegum ramma og
vasaklút vættum í ilmvatninu
þínu.
4b Sendu henni/honum ást-
arkveðju með fallegum, blóm-
skreyttum konfektkassa og
láttu í leiðinni spila lag, sem
hefur sérstakt minningargildi
fyrir ykkur, á uppáhalds út-
varpsstöðinni ykkar. Gakktu úr
skugga um að hjartnæm og
viðeigandi kveðja sé lesin
með.
5. Ef hún/hann þarf að vinna
lengi frameftir skaltu senda
henni/honum körfu fulla af
sælkerafæði og eitthvað
skemmtilegt með.
6. Komdu henni/honum á
óvart af og til með frumlegum
skilaboðum í mismunandi
umslögum, þar sem boðið er í
mat á fínu veitingahúsi með
hæfilegum fyrirvara, setning-
um eins of til dæmis: „Þín bíð-
ur ógleymanleg nótt“ eða eitt-
hvað þaðan af Ijúfara.
7• Stutt ástarbréf með nisti
sem mynd af þér hefur verið
sett í.
8. Kauptu, á laun, einhvern
minjagrip þar sem þið verðið í
brúðkaupsferðinni (og minnirá
staðinn) og gefðu henni/hon-
um ekki fyrr en að minnsta
kosti mánuöi eftir að þið komið
heim eða við eitthvert óvænt
tækifæri síðar.
9. Ein rós á hverjum degi
brúðkaupsferðarinnar ásamt
stuttum, kitlandi skilaboðum í
litlu umslagi.
10. Uppáhalds hljómplatan
eða myndbandið hennar/hans
ásamt fallegri blómaskreyt-
ingu til að njóta með henni/
honum eitt kvöld saman yfir
þægilegum veitingum að brúð-
kauþsferðinni lokinni.
ÁSTARSAGAN
OG ILMVÖTNIN
Var það tilviljun? Ef til vill, en eitt
er á hreinu: Lífið er fuilt af
óvæntum uppákomum sem gefa
okkur nýja lífssýn, sérstaklega
þegar ástin kemst í spilið.
Fyrirsætan Isabel og
ilmvatnshönnuðurinn Ulric de
Varens kynntust á tískusýningu.
Hvort það var ást við fyrstu sýn
vitum við ekki en líkt og í
ævintýrunum hafa þau verið
óaðskiljanleg síðan. Og saman
hafa þau skapað ilmvötn sem eru
ólík öllum öðrum.
<
Bæði
eru þau
lífsglaðar
manneskjur og ilm-
vötn eru sameigin-
legt áhugamál þeirra.
Því ákváðu þau að skapa sitt eigið ilmvatnsmerki: Ulric de
Varens. En á hvern hátt eru ilmvötnin þeirra frábrugðin
öðrum?
GÆÐAILMVÖTN Á GÓÐU VERÐI
Isabel og Ulric langaði ekki til þess að bæta enn einu dýru
merki á markaðinn. Þau langaði til að kynna fólki gæðailm-
vötn á góðu verði, ilmvötn sem væru ætluð hinu daglega lífi
okkar allra. Hönnun og rannsóknarvinna við ilmvötn Ulric de
Varens er sú sama og við dýrustu ilmvötnin. Það er hugað
að sérhverju smáatriði. En á endanum er það smekkvísi
Ulrics sem gefur þeim líf.
28 VIKAN 9.TBL.1991