Vikan - 04.05.1991, Blaðsíða 48
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN
GJAFIR G/€FU-
PLÁNETUNNAR
VENUSAR
Venus er dóttir tunglsins
og er táknræn fyrir þau
mörgu form sem koma
frá hinni miklu móöur. í
stjörnuspeki stjórnar Venus
tveimur merkjum, ööru karl-
kyns (Vog) og hinu kvenkyns
(Nauti). Venus er kölluð gæfu-
plánetan þvf hún getur fært
þeim sem hafa hana vel stað-
setta ( korti sínu margar gjafir.
Hún er einnig verndargyöjan
og eitt hinna helgu dýra henn-
ar er dúfan. Venusarfólk er
yfirleitt afar aölaöandi og á
ekki í neinum vandræöum
meö samskipti almennt og
sérstaklega ekki meö sam-
skipti við gagnstæöa kynið.
Venus gefur yndisþokka og
viöfelldni og helsti titill hennar í
Aþenu til forna var Afródíta
Pandemos sem merkir
„Venus, af fólkinu".
Venus getur þó einnig gert
einstaklinginn daðurgjarnan
og lauslátan ef hún er of sterk
í kortinu og menn og konur,
sem eru undir of sterkum Ven-
usaráhrifum, geta orðiö hel-
tekin af þránni eftir líkamlegri
nautn.
Verk Venusar er aö blása
manninum í brjóst þránni eftir
andlegum og efnislegum vexti.
Hún er einnig verndari fagurra
lista og ýtir undir að ein-
staklingurinn tengi ímyndunar-
afl sitt viö raunveruleikann og
framkalli þannig málverk,
höggmyndir og tónlist.
RAUNSÆ
LÍFSHEIMSPEKI
Nautið er annað merkiö í
stjörnuhringnum, stöðug jörö.
Ef líkja má Hrútsmerkinu viö
frumbyggja í leit að landi til aö
byggja heim sinn á, þá nemur
Nautiö landiö sem Hrúturinn
uppgötvar, ræktar það og not-
ar auðlindir þess svo séð sé
fyrir lífsnauðsynjunum.
Nautið er fullt af lífsorku
vorsins en sér mikilvægi þess
að sóa ekki ögn af kraftinum
sem gefur því líf. Einstaklingar
í Nautsmerkinu eru því íhalds-
samir og tjá sig af gætni og
þeim finnst reynsla ekki hafa
neina merkingu nema hún
uppfylli einhvern tilgang. Þessi
afstaða getur þó rænt Nautiö
ímyndunaraflinu og mörg Naut
trúa engu sem þau ekki sjá
með eigin augum og snerta
með eigin höndum. Þaö er af
þessari ástæðu að Nautið gef-
ur trúmálum og flókinni heim-
speki lítinn gaum. Það er
sjaldan sem Nautið hefur
áhuga á að rannsaka háleitar
gjÞaÓ tekur langan
tíma að vinna ásl
persónu í
Nautsmerkinu en
þegar því takmarki er
náð er Nautið alHum-
vefjandi I trúfestu
sinni og mun leggja
sinn mikla styrk til á
ýmsum erfiðum
stundum.ff
hugsanir sem gætu gefið því
fleiri einstaklingseinkenni. Ef
hluturinn eða málefnið er ekki
raunverulegt f efnislegum
skilningi getur Nautið ekki not-
að það né náð þvf.
Trú eða lífsheimspeki
Nautsins verður að vera raun-
hæf. Vitanlega eru mörg frávik
frá þessari reglu því þegartal-
að er um mannlegar verur
verður ávallt að aðgæta hvaða
þróunarstigi viðkomandi sál
hefur náð.
Nautið gerir sér grein fyrir
því að það tekur langan tíma
fyrir sæðið að verða að risa-
furu. Það hefur ekki trú á að
ýta á eftir málum og tekur sér
tíma áður en það mótar af-
stöðu sína. Fólk þarf líka að
læra að ýta aldrei á eftir vinum
sfnum í Nautsmerkinu, þar
sem þetta er ákveðnasta og
þrjóskasta merkið. Ef sam-
skipti við fólk i Nautsmerkinu
eiga að takast vel verður að
beita fortölum en aldrei valdi.
Jafnvel þó Nautið viti að það
sé rangt að halda í einhverja
vissa skoðun (sem er ólíklegt
því flest Naut halda að þau
hafi ávallt rétt fyrir sér) vill
Nautið fremur halda í sínar
röngu skoðanir en að halda að
einhver hafi þröngvað skoðun-
um sínum upp á það.
Skilin milli þrjósku, ákveðni
og trygglyndis eru ekki sérlega
skörp og í Nautinu birtast allir
þessir eiginleikar. Margir álfta
Nautin hörð og fjarræn en það
er langt frá því að vera sann-
leikanum samkvæmt. Nautin
eru í raun viðkvæmar tilfinn-
ingaverur þó þau eigi til að tor-
tryggja þá sem þau þekkja
ekki vel.
Þaö tekur langan tíma að
vinna ást persónu í Nauts-
merkinu en þegar því takmarki
er náð er Nautið alltumvefjandi
í trúfestu sinni og mun leggja
sinn mikla styrk til á ýmsum
erfiðum stundum. Nautið er
sonur eða dóttir Venusar og er
þess vegna rómantískt. Hafi
það gefið einhverjum hjarta
sitt mun það aldrei langa til að
sleppa.
Sem stöðug jörð á Nautið til
aö finna til óöryggis. Nautið
verður að finna að sá sem það
elskar sé jafnhrifinn af því.
Það mun ávallt krefjast sann-
ana á trygglyndi og hollustu
viðkomandi og vitur elskhugi
eða ástkona mun haga sér
samkvæmt því. Nautið þarfn-
ast stöðugrar og opinskárrar
tjáningar Ifkamlegrar blíðu.
Þetta fer út í öfgar hjá sumum
Nautum og þau eru þekkt að
því að vera afar munúðarfull
og hafa krefjandi kynhvöt.
Nautskonan dýrkar góð ilm-
vötn og mjúkan fatnað. Hún er
afar viðkvæm og finnst jafnvel
að eitthvað sé að sér ef elsk-
hugi hennar gleymir að hrósa
útliti hennar eða kyssa hana f
kveðjuskyni.
Karlmenn í Nautsmerkinu
eru afar metnaðargjarnir en
bíða rétta tækifærisins rólegir
og þjóta þá til að nota sér það.
Nautskonan kærir sig ekki sér-
staklega mikið um að láta
segja sér fyrir verkum þó hún
laðist oft að hugmyndinni um
karlmannlegan og afgerandi
mann. Þær vilja frekar standa
á bremsunni eða segja
manninum hvert hann á að
fara, láta hann um aksturinn
en ráða sjálfar hraðanum.
Tunglið, stjórnandi Krabb-
ans, er upphafið í Nauti.
Nautin eru því afar fjölskyldu-
sinnuð og frjósamasta merkið
fyrir utan Krabbann. Nauts-
maðurinn sér til þess að fjöl-
skyldu hans skorti engar
nauðsynjar og leggur til lúx-
usvöru þegar hann hefur efni á
því.
Nautið lendir ekki í neinum
erfiðleikum með að finna sér
starf sem sér því og fjölskyldu
þess fyrir góðu lífsviðurværi.
Vandinn gæti hins vegar verið
sá aö sjá ekki muninn á þörf-
um og græðgi. Nautinu gengur
vel í öllum störfum sem tengj-
ast fasteignum og fjármálum.
Það er þvf einnig eðlislægt að
meðhöndla mat svo Naut
verður gjarnan frábær kokkur
eða bóndi. Öll Naut hafa ein-
hvers konar listræna hæfi-
leika.
Nautið stjórnar hálsinum og
margir frægir söngvarar eru í
Nautsmerkinu. Meðal þeirra
betur þekktu eru Bing Crosby,
Cher, Donovan, Ella Fitzger-
ald og Barbra Streisand. Með-
al tónskálda í Nautsmerkinu
má nefna Brahms, Prokofiev
og Tchaikovsky. Öll Naut ættu
að rannsaka sköpunarhæfi-
leika sína, grafa þá upp úr
jörðinni og koma með þá fram
f sólskinið svo þeir fái vaxið.
Nautið hefur máttinn til að
leggja til rætur svo sæði og
lífskraftur Hrútsins vaxi og
verði að sterkum stofni. Út frá
honum eru það sfðan greinar
Tvíburans sem vaxa langt út f
ríki Iffsreynslunnar.
i
48 VIKAN 9. TBL. 1991