Vikan - 20.02.1992, Qupperneq 14
VIÐTAL: VALGERÐUR JONSDOTTIR
ÓÞÆGILEGT AÐ SJÁ
ANDLITIÐ Á VEGGJUM
ÚT UM ALLA BORG
- SEGIR SÓLVEIG ÁRNADÓTTIR í VIKUVIÐTALI
Það telst enn til tíðinda er ný íslensk kvikmynd kem-
ur fram á kvikmyndatjaldinu, þó íslensk kvikmynda-
gerð hafi nú slitið barnsskónum. Að undanförnu hafa
veggspjöld skotið upp kollinum um borgina til aug-
lýsingar á nýjustu íslensku kvikmyndinni, Inguló
undir leikstjórn Ásdísar Thoroddsen. Það er Sólveig
Arnarsdóttir í hlutverki Inguló sem auglýsir myndina
og ef vel er að gáð má sjá í Ingvar Sigurðsson sem
leikur annað aðalhlutverk myndarinnar. Vikan mælti
sér mót við þessa ungu leikara sem eru að stíga sín
fyrstu skref í kvikmyndaleik. Sólveig segir það afar
óþægilegt að sjá andlit sitt á veggspjöldum um alla
borgina enda sé hún helst hætt að fara mikið út fyrir
hússins dyr, nema hún komist ekki hjá því. Við hitt-
umst á kaffihúsi og Sólveig mætirfyrst. Ingvar kemur
skömmu síðar, nýorðinn faðir í annað sinn og að því
er virðist enn dálítið undrandi á þeim tímamótum.
A Til-
finningar
Inguló
eru
svolítið
á reiki.
Hún átti
nótt með
útgerðar-
manninum
sínum að
vestan
á hóteli
í Reykjavík.
Þau eru fyrst spurð að
því hvort þetta sé fyrsti
kvikmyndaleikur þeirra
en Ingvar hefur að undanförnu
getið sér goft orð sem leikari í
leikhúsunum, lék meðal ann-
ars Pétur Gaut, leikur Vilja í
Jelenu og Tibalt í Rómeó og
Júlíu. Sólveig á einnig að baki
nokkur hlutverk í leikhúsinu
þrátt fyrir ungan aldur en hefur
auk þess leikið í útvarpi, sjón-
varpi og í Óperunni en hún er
svo að segja alin upp í leikhúsi
þar sem hún er dóttir hjónanna
Arnars Jónssonar og Þórhildar
Þorleifsdóttur.
Sólveig: Þetta er ekki fyrsta
hlutverk mitt í kvikmynd því ég
lék dóttur Stellu í myndinni
Stella í orlofi.
Ingvar: Ég lék í myndinni
SLL 25 sem Óskar Jónasson
stóð að.
Blm.: Og um hvað fjallar svo
kvikmyndin Ingaló?
Ingvar: Þetta er saga um
stelpu sem býr í sjávarþorpi.
Hún er frek og óþekk og geng-
ur ekki alveg upp i kerfinu ...
Sólveig: ... hún er bara
dálítið baldin.
Ingvar: Einhver sagði að
þetta væri pólitísk ástar-
saga...
Sólveig: Já, er það? Jæja,
það má vel vera.
Blm.: Leikið þið elskendur í
myndinni?
Ingvar: Já, ég leik Skúla og
það vill svo óheppilega til að
hann verður ástfanginn, þó
það sé ekki það sem hann hef-
ur óskað sér...
Blm.: Hann verður sem sagt
ástfanginn gegn vilja sínum?
Ingvar: Já, hann ætlar sér
ekkert með þessa stúlku nema
að vera með henni eina nótt
en málin þróast á annan veg.
Blm.: Og allt endar vel?
Sólveig: Það er óræður
endir.
Blm.: Er þetta íslenska
KVIKMYNDIN sem allir hafa
beðið eftir?
Sólveig: Ef vel tekst til gæti
hún lýst lífi í litlu sjávarplássi á
raunsæjan hátt.
Ingvar: Það er þó svolítið
fært í stílinn.
Blm: Smávegis skáldskapur
í þessu. En hver finnst ykkur
munurinn á því að leika á sviði
og fyrir kvikmyndatökuvélar?
Sólveig: Ég hef ekki næga
reynslu til að ég geti úttalað
mig um þaö en þetta krefst
annarrar tækni.
Ingvar: Oftast gerir það það.
Það er öðruvísi að leika fyrir
myndavélar í stað áhorfenda
þvi maður fær engin viðbrögð.
Sólveig: Kvikmyndaleikur
krefst einnig allt annarrar
undirbúningsvinnu.
Ingvar: Þegar leikið er á
sviði hefur maður skýrari
1 4 VIKAN 4. 7BL 1992