Vikan - 20.02.1992, Síða 19
enginn þeim lof í lófa ættu þau aö fara eitthvað
annað og leika þær aftur.
AÐ NÆRA SIG Á NÝRRI REYNSLU
Stjörnuspekingar miðalda álitu að til væru
þrenns konar Bogmenn: sígauninn, fræðimað-
urinn og heimspekingurinn. Þeir eiga allir rétt á
sér og eru heilbrigðir hlutar stærri heildar. Bog-
maðurinn táknar hvötina til að vfkka sjóndeild-
arhringinn og brjótast úr viðjum vanans sem
halda okkur föngnum. Ein leið til að gera það
er að flýja hlekki þess samfélags sem við
fæddumst inn í - það er sfgauninn. Önnur er
sú að mennta okkur, teygja á greind okkar til
hins ýtrasta - leið fræðimannsins. Loks getum
við reynt að skilja alheimslögmálin og tilgang
lífsins. Það er vegur heimspekingsins.
Til að halda Bogmannsorkunni heilbrigðri
þarf stöðugt að næra hana á nýrri reynslu.
Ferðalög. Námskeið. Köfun. Undrun nærir
Bogmanninn á sama hátt og hvítuefni næra
líkamann. Það versta sem Bogmaður getur
gert sér er því að leyfa sér meðvitað að láta
sér leiðast.
LÆGÐIR HÆÐANNA VEGNA
Fólk með sól í Hrúti öðlast hugrekki með því
að laða sífellt að sér fleiri áskoranir. Eins og þú
hefur eflaust tekið eftir ertu streitusegull.
Hljómar hræðilega, ekki satt? Hafðu ekki
áhyggjur: þú átt valkosti. Til eru tvær tegundir
af streitu: sú sem okkur er illa við og sú sem
okkur er vel við. Sú sem okkur er vel við er yfir-
leitt kölluð eitthvað annað, á við glaðværð og
ævintýri - sem eru þínar forlagaleiðir. Viður-
kenndu það. Lifðu lífi fjárhættuspilara. Taktu
áhættuna á lægðunum hæðanna vegna.
Gerðu það, ella súrnar eldurinn innra með þér
og brýst fram sem spenna, þrasgirni og til-
gangslaus vandræði.
HVIKLYND TUNGLSTAÐA
Fólk með tungl í Hrúti hefur tilfinningar, þarfir
og þrár, líkt og allir aðrir. Það er ekkert auðvelt
að uppfylla þær og hjarta þitt þarf að læra erf-
iðar lexíur í hugrekki. Stundum þarftu að gera
þér grein fyrir því að það að særa einhvern
með nöktum sannleikanum getur verið miklu
mannúðlegra en að vera „blíður" eða að
„fórna sér“. Þú þarft á drama að halda í lífinu
til að líða vel. Þú gætir öðlast það með því að
sigla í roki. Eða með því að hjóla aðeins of
hratt. Eða með því að bjóða einhverjum sem
þú elskar birginn.
Fái Hrútstunglið þitt ekki þær eldskírnir sem
það þarfnast áttu til að verða skapvondur,
ráðríkur og kappgjarn um of. Það er samt ekki
þitt sanna eðli - aðeins áhætta sem fylgir
þessari hviklyndu tunglstöðu.
MEÐ ALLT AÐ VEÐI
Með Hrút rísandi áttu til að hræða fólk, þó svo
ásetningurinn sé allur annar! „Gríman“ þín er
hrein og bein, hranaleg og lætur allt flakka.
Það er aðeins fólk með sterka sjálfsmynd sem
á auðvelt með að umgangast þig - nema þú
skrúfir vísvitandi niður í þér. Þú gætir lært að
gera það við félags- eða viðskiptaaðstæður en
það er ekkert gaman að því og það stuðlar
ekki beinlínis að hamingju þinni eða geðheilsu.
Það sem hjálpar þér að halda andlegu jafn-
vægi er í rauninni að taka áhættu, leggja allt
að veði. Það getur falið í sér ævintýramennsku
eða íþróttastörf en líka að bjóða vini þínum
birginn vegna verulegs ágreiningsefnis. Þeir
sem eru sannir vinir þínir munu kunna því vel
í stað þess að líta á það sem ógnun við kunn-
ingsskapinn. Hvernig sem litið er á það stend-
ur eitt atriði upp úr: til að þér líði vel þarftu öðru
hvoru að fara fram á nöf.
SKÖPUNARGÁFA í VÖGGUGJÖF
Með sól í Ljóni fékkstu sköpunargáfuna í
vöggugjöf. Verkefni þitt er að tjá þá hlið per-
sónuleika þíns á öflugan og öruggan hátt - og
sjá til þess að það sem þú býður fram sé virt að
verðleikum. Hver eru bestu sannindi sem þú
veist? Hvað er heilagt og hreint í lífi þínu, þess
virði að lifa fyrir? Það er gáfa þín. Gerðu mikið
úr henni. Lærðu að koma henni á framfæri. Og
leiktu listir þínar! Listalífið mun laða þig að sér.
Það er líka vel hugsanlegt að þú túlkir sköpun-
argáfu þína í viðskiptum eða þjónustu við al-
menning.
Undir hinu litríka yfirborði persónuleika þíns
er óöryggi. Fáir sjá það. Það er hið andlega
vandamál sem þú komst í þetta líf til að leysa.
Þitt frelsi felst í því að fá heiminn til þess að
klappa fyrir þér. Gættu samt að því að jafnvel
þótt þú fáir nóbelsverðlaun hafa þau ekkert að
segja nema þú vinnir til þeirra fyrir það að tjá
þinn innri mann. Að öðrum kosti mun allt þitt
óöryggi og efi um innri mann liggja ósnert og
ólæknað.
EÐLISÁVÍSUN SKEMMTIKRAFTS
Með tungl í Ljóni hefur þú eðlisávisanir
skemmtikrafts. Til þess að þér líði vel þarftu á
því að halda að finnast þú metinn að verðleik-
um. Það er að segja, þér þarf að finnast fólk fá
ánægju og innblástur af því sem þú hefur að
bjóða. Þetta er svolítið furðuleg samsetning:
Tunglið er ólíkt Ljóninu í því að vera upp-
burðalítið að eðlisfari. Þú verður að næra
skemmtikraftinn í þér, sjá til þess að honum sé
ekki hafnað of auðveldlega. Hluti þeirrar vinnu
felst í að rækta sköpunarhæfileika þína, gera
eins mikið úr þeim og hægt er. Annar hluti
snýst um að læra að velja réttu áhorfendurna
því þér er örugglega fyrir bestu að pakka niður
og fara eitthvað annað ef þú gerir þitt besta og
allir geispa.
Fái Ljónstunglið þitt ekki það lófatak sem
það þarfnast fellurðu í þær gildrur sem tengj-
ast þessari afstöðu: verður hrokafullur, sjálfs-
elskur eða kröfuharður. Þú verður „skemmti-
krafturinn" sem ekkert hefur upp á að bjóða en
ætlast þrátt fyrir það til athygli allra.
SKAPANDI ÚTRÁS
Með Ljón rísandi geislarðu af sjálfstrausti.
Framkoma þín virðist tilkynna „Ég hef það
ágætt, þakka ykkur fyrir". Það á við þó þú sért
nýbúinn að ganga í bjarnagildru eða fá kyn-
sjúkdóm. Það er erfitt að komast í gegnum
Ljónsgrímuna; jafnvel þegar þú reynir að fletta
ofan af þér ímyndar fólk sér að þú hafir þúsund
sinnum meiri stjórn á þér en þú hefur.
Til að þér líði vel er mikilvægt að þú fáir ein-
hvers konar skaþandi útrás, hugsanlega á
listasviði eða við eitthvað óformlegra, á við að
segja sögur eða skrýtlur eða koma mynd á ein-
hver samtök. Hvað sem það er skaltu kasta
þér út í það af öllu hjarta og sjá til þess að ein-
hverjir kunni að meta það.
Trérista frá 17. öld sem sýnir dr. Faust, umkringd-
an hring stjörnumerkjanna, í samræðum við
sjálfan djöfulinn sem hann hefur náð að særa til
fundar við sig.
f LEIT AÐ TILGANGI
Með sólina í Bogmanni er frelsi dýrmætasta
örin í örvamælinum þínum. Þú þrífst á reynslu.
Hjarta þitt slær hraðar við það að sjá fjarlægan
sjóndeildarhring. Líf þitt er leit - að ævintýrum,
reynslu, endanlega að tilgangi. í lífi þínu er
sígaunalegur örlagaþáttur sem nýtur sín á
feröalögum eða við störf með fólki af ólíkum
uppruna. Fræðimaðurinn kemur fram í fróð-
leiksfýsn þinni, þrá eftir að brjóta af sér viðjar
hugarvanans. Óg þú varst heimspekingur frá
fæðingu - hefur frá fyrstu stundu velt fyrir þér
„Hví er ég hér?“
KJARKUR OG SAKLEYSI
Með tungl í Bogmanni er kjarkmikill, opinn,
saklaus eiginleiki í eðlisávísun þinni. Hér ertu í
þessum hrífandi, óútskýranlega alheimi. Þú
hefur svona margar mínútur til að kanna hann
t eins gott að drífa sig! Þér líður best þegar þú
ert virkur í leitinni að skilningi. Það geturðu ver-
ið með því að lesa eða horfa á fræðsluþætti í
sjónvarpi. Sömuleiðis með því að teygja á lík-
amlegum sjóndeildarhringjum. Þú gerir það
samt aldrei meðan þú ert flæktur í fyrirsjáanleg
vanaverk. Þér líður best þegar þú ert með fólki
sem kann að meta það þegar þú kemur því á
aðra skoðun - og fólki sem fært er um að
koma þér á aðra skoðun.
ÖFLUGUR ANDI SJÁLFSTÆÐIS
Með Bogmann rísandi sýnirðu heiminum
hresst og sjálfsöruggt andlit. Þú virðist vel vak-
andi og upptekinn af umhverfi þínu, fullur
spurninga og með næga orku til að leita uppi
svörin. Frá þér geislar hreinn, beinn og öflugur
andi sjálfstæðis. Til þess að vera í góðu jafn-
vægi þarftu á að halda tilfinningu fyrir óendan-
legum möguleikum í kringum þig. Þú verður
stirður í lund þegar skyldustörf binda þig við
vanaverk. Þannig kringumstæður kalla fram
það versta í þér: fálæti og hirðuleysi sem fær
fólk nálægt þér til að finnast það miður mikil-
vægt. Þegar þú ert sannfærður um að hug-
víkkandi uppákomur séu rétt handan við horn-
ið ertu í réttu sambandi við efnisheiminn.
Nærðu þig því með ferðalögum, ævintýrum og
þvi að vera opinn fyrir lífinu. □
Nafnalistar í greinunum um frumþættina fjóra eru unnir upp úr
bók Gunnlaugs Guðmundssonar, Stjömumerkin þín og
þekktra íslendinga.
4. TBL.1992 VIKAN 19