Vikan - 20.02.1992, Page 32
PLATTERS VILJA TAKA UPP TÓNLEIKAPLÖTU Á ÍSLANDI:
Söngkonan Lynn Brown með „gömlu mönnunum" úr Platters, þeim Chico Lomar og Elmer Armstrong. Söngvararnir voru afar hrifnir af viðtökum islensku
áhorfendanna og kváðust vilja taka upp tónleikaplötu á Islandi í mars og apríl.
ÍSLENDINGAR EINS
OG GAMLIR VINIR
„íslensku áhorfendurnir eru mjög hlýlegir og taka okkur opnum örmum. Þó að hægt sé að
segja að bandarískir áhorfendur hafi verið í hálfgerðu ástarsambandi við okkur í 35 ár
taka íslenskir áhorfendur okkur enn betur,“ segir Elmer Armstrong sem hefur verið i Platt-
ers söngflokknum í tæpa þrjá áratugi. Vikan ræddi á dögunum við meðlimi þessa þekkta
söngflokks sem glatt hefur hjörtu íslendinga sem annarra í hátt í fjóra áratugi, til dæmis
með lögunum Only You, Smoke Gets in Your Eyes og Good Night Sweetheart.
Nat Pulicci og Chico Lomar skoða myndir sem
teknar voru af þeim á fyrri tónleikunum. Þeir
sögðust ætla að geyma vel myndirnar sem
teknar voru af þeim í góðu yfirlæti með mæðgun-
um úr íslenska sjávarbænum.
Platters héldu tvenna tónleika á Hótel
fslandi 8. og 9. febrúar. Viðtökur ís-
lenskra áhorfenda voru það líflegar
og góöar að Platters eiga nú í við-
ræðum við íslenska aðila um upptök-
ur á tónleikaplötu hér á landi. Ef samningar
takast munu þeir dvelja hér meira og minna í
rúmar þrjár vikur. Söngflokkinn skipa þeir
Elmer Armstrong og Chico Lomar, sem hafa
verið í flokknum í um þrjá áratugi, bassinn
Larry Tate og söngkonan Lynn Brown.
FÓLKIÐ VEINAÐI ÞEGAR . ..
„Alltaf þegar við komum til Evrópu tekur fólk
okkur eins og við séum efstir á vinsældalista
þá stundina - eins og Michael Jackson,
George Mikael eða Elton John. Þannig var
þetta hér á Hótel íslandi," segir Elmer
Nat Pulicci umboðsmaður með bassanum Larry
Tate sem bræddi hjarta íslenskrar konu þegar
hann söng sérstaklega fyrir hana lagið Smoke
Gets in Your Eyes að loknum tónleikunum.
32 VIKAN 4. TBL. 1992