Vikan - 20.02.1992, Blaðsíða 33
Armstrong. „Við komum til íslands til að gera
okkar besta og lögðum okkur öll í þetta. Þegar
maður sér áhortendur meta þetta gefa þeir allt
til baka til okkar. Þannig voru áhorfendur á
Hótel íslandi.
Við fundum að þeir þekktu okkur vel. Þetta
voru eins og gamlir vinir. Við upplifum þetta
þannig að fólkið hér sé eins og gamall og góð-
ur vinur sem maður hefur ekki sóð í langan
tíma. Þegar við hittumst á tónleikunum fékk
maður glampa í augun og langaði til að faðma
fólkið. Fólkið hérna svaraði á sama hátt með
sínum viðtökum."
Þegar Elmer var spurður hvort áhorfendur
hefðu fagnað sérstaklega ákveðnum lögum
færðist breitt bros yfir andlit hans.
Elmer Armstrong á góðri stundu þegar slappað
var af að loknum seinni tónleikunum.
„I rauninni var öllum lögunum fagnað vel en
líklega líkaði fólki best við Only You, The
Great Pretender og Remember When. Ekki
má heldur gleyma Smoke Gets in Your Eyes.
Strax og fólkið heyrði byrjunina: „Kan, kan,
kan, kan . ..“ og svo þegar Chico söng áfram:
„Theyeyeyey ...“ þá veinaði fólkið. Það elskar
þetta. Svona lagað gefur okkur mikið, þetta er
stórkostleg tilfinning."
LARRY BRÆDDI HJARTA
AÐDÁANDA
Á fyrri tónleikum Platters, föstudagskvöldið 8.
febrúar, voru mættar saman þrettán konur í
hópi, ættaðar úr sjávarbæ. Þetta voru þrjár
systur á sextugs- og sjötugsaldri með dætur
sínar. Allar eru aðdáendur Platters, sérstak-
lega þær eldri sem muna sögu söngflokksins
allt frá bernskusporum hans á sjötta áratugn-
um.
Stöllurnar hittu meðlimi Platters þegar þeir
höfðu lokið sínu 90 mínútna prógrammi. Bass-
inn og sjarmörinn Larry Tate gaf sig þá á tal við
eina af mömmunum. Þegar hann ræddi um
tónleikana minntist konan á lagið sem henni er
Ijúfast, Smoke Gets in Your Eyes.
l.tbl. 1992 4. árg. Verð kr. 450
FULLNÆGING
BRJÓSTIN
OG KYNLÍFIÐ
B&B HEIMSÆKIR
ROMEO OG JÚLÍU
BREYTILEG
KYNLIFSHEGDUN
HVERNIG MÓTAST
KYNLÍFSSKODANIR?
GETULEYSI
KVENNA
ÞRÓAÐRI
IQCNMÖK
Þegar Larry heyrði þettatók hann sig til, hall-
aði sér að konunni og söng fyrir hana lagið
hennar - Smoke Gets in Your Eyes - beint í
eyrað á henni. Bara fyrir hana. Á meðan
horfðu dætur konunnar á með aðdáun og
sennilega örlaði dálítið á öfund.
Meðlimir Platters sögðust hafa haft sér-
staklega gaman af þessu atviki. Þeir buðu kon-
unni aftur á tónleikana á laugardagskvöldið.
Lagið hennar var þá kynnt með sérstakri
kveðju til hennar.
VIUA TAKA UPP TÓNLEIKA-
PLÖTU HÉR í MARS
„Við erum i samningaviðræðum núna um að
koma aftur til íslands," sagði Nat Pulicci, um-
boðsmaður Platters.
„Við hlökkum mikið til að koma.
Það yrði þá um miðjan mars. Ef
samningar takast verðum við hér
meira og minna við upptökur á plötu
í nokkrar vikur. Þá getum við skoðað
þetta fallega land. Okkur skilst að
það taki um tvo daga að ferðast í
kringum landið.
Við vorum boðin hingað af Ólafi
Laufdal sem hafði samband við einn
umboðsmanna okkar í New York.
Ferðin hingaö var sett á með
skömmum fyrirvara og hún var ekki í
tengslum við aðra tónleika í Evrópu.
Við þurftum meira aö segja að fresta
verkefnum. Ætlunin var að kanna
viðtökur áhorfenda á íslandi, hvort
þeir hefðu nægilega mikinn áhuga
þannig að hægt yrði að taka upp efni
á plötu á tónleikum hér. Nú höfum
við séð að fólkið er stórkostlegt og
viðtökurnar líka og höfum lýst áhuga
okkar á að koma aftur. Við erum
sterklega að íhuga að gera þetta. Ef
við komum aftur verðum við hér frá
13. mars til 4. apríl.“
k i
HÆFILEIKAR ERU 20%
- HIH ERU VIÐSKIPTI
Fjórmenningarnir búa allir í Kali-
forníu. Elmer býr í Santa Monica,
Chico í Chino en Larry og söngkon-
an Lynn búa bæði í Los Angeles.
Lynn tók við hlutverki aðalsöngkon-
unnar Francescu sem komst ekki til íslands.
Elmer hefur samið texta við mörg lög. Hann
vildi koma þeim skilaboðum til ungra íslenskra
listamanna að þeir eigi að reyna að læra eins
mikið um fag sitt og mögulegt er. „Þetta er ekki
bara að fara upp á svið og syngja. Það eru
mikil viðskipti þarna fyrir utan sviðið sem gerir
manni mögulegt að gera gott „show“. Hæfi-
leikarnir eru ekki nema 25 prósent af þessu
öllu. Hitt eru viðskipti.
Hins vegar má aldrei gleyma því að maður
er í þessu vegna þess að maður elskar tónlist.
Hana verður stöðugt að rækta. Þeir sem hrasa
hugsa: Fallegar konur, rokk og ról, gott líf og
eiturlyf. Ég hef séð marga af samferðamönn-
um mínum í tónlistinni deyja, lenda í fangelsi
eða ráfa um strætin vegna þess að eiturlyf
tóku betri hlutann af þeim. Sumir þeirra höfðu
miklu meiri hæfileika en ég. Þeim sem hefur
alltaf að markmiði að tónlistin sé aðaltriðið mis-
tekst sjaldan,1' sagði Elmer Armstrong. □
Á SÖLU
STADU
ÁSKRIFTARSÍMI
813122
4. TBL.1992 VIKAN 33