Vikan


Vikan - 20.02.1992, Síða 52

Vikan - 20.02.1992, Síða 52
INNS/f ISNEISTAR PIRRINGUR trúlegustu atvik eöa aðstæður geta valdið okkur innri spennu. Hún kveikir sfðan vísi að pirr- ingi sem tekur kannski á sig hinar ýmsu myndir sem hafa mismiklar afleiðingar á athafn- ir okkar og innri líðan. Við erum sem betur fer flest í jafnvægi hið innra, að minnsta kosti meginhluta sól- arhringsins. Hitt er svo ann- að mál að við getum fundið til mikils ertings af tiltölulega litlu tilefni. Ef við erum til dæmis búin að ákveða að slappa reglulega vel af og komum heim eftir erfiðan vinnudag og allt heimilið er á hvolfi verðum við flest pirruð og teljum okkur í fullum rétti. Við gerum at- hugasemdir við aðra heimilis- fasta og höfum flest á hornum okkar. Ef sjaldan eða aldrei er tal- að um það sem miður fer í heimilishaldi geta áður sagðar aðstæður kallað á upptalningu á alls kyns vanrækslusyndum liðinna mánaða, öllum til ar- mæðu. Heppilegra er vegna þessara möguleika á vand- ræðapirringi að venja sig á að kljást við flest sem upp kemur milli fólks jafnharðan og atvikin eða atburðirnir gerast. Þannig spörum við til bestri fram- kvæmda þá umframorku sem ónýtist við ergelsi. Séum við haldin fullkomn- unaráráttu einhvers konar er ansi hætt við of tíðum geð- sveifluköstum pirrings. Þau eru því miður oftast ósann- gjörn og erfið þeim sem fyrir verða og eru ekki með neina sý nilega fullkomnunarhneigð og finnst því ómaklega að sér vegið. Ekkert er athugavert við sveiflur þær, sálrænar eða til- finningalegar, sem flokka má Pirringur prýðir ekki manngildi fólks en stilling styrkir stöðugleika og stað- festu. sem ergelsi og teljast byggjast á skilningi okkar og hugmynd- um um hvað telst röng athöfn eða framkoma sem við verð- um að ósekju fyrir. Þannig pirr- ingur er í langflestum tilvikum réttlætanlegur. Ef við aftur á móti venjum okkur á að pirrast nánast út af öllu sem hentar ekki okkar ágætu persónu verðum við að teljast misskilja hollustu heilbrigðis ertings sem getur jafnvel haft eitthvað gott í för með sér ef hann er andsvar okkar við röngu atferli þeirra sem við pirrumst út í. Ekki er þó mælt með ótæpileg- um vanatengdum pirringi sem ekki þjónar neinum sýnilegum tilgangi öðrum en slæmum vana. Ef við erum þannig inn- stillt að gera ekki vísvitandi mikið úr litlum og óverulegum yfirsjónum annarra eigum við mikla möguleika á aö halda ágætasta jafnvægi hið innra við ótrúlegustu aðstæður. Til eru dæmi um fólk sem er mjög oft pirrað og lætur skaps- muni sína óhikað hlaupa með sig í gönur, öðrum og nálæg- um til leiðinda. Þannig ein- staklingar ættu að íhuga gildi jafnvægis og sparnaðar í pirr- ingsmálum og hugsa sig tvisv- ar um áður en ósæmilegar geðsveiflur fá að lita allt um- hverfi þeirra og athafnir. Pirr- ingur prýðir ekki manngildi fólks en stilling styrkir stöðug- leika og staðfestu einstakl- inga, auk þess að göfga atferli fólks. Hún verður því að teljast betri kostur í mannlegum sam- skiptum en pirringur. Og hana nú. 52 VIKAN 4. TBL 1992

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.