Vikan - 02.04.1992, Blaðsíða 14
TEXH OG MYNDIR: KARL PÉTUR JÓNSSON
SONGKEPPNI FRAMHALDSSKOLANNA '92
Sviðsmyndin var hin glæsilegasta á allan hátt.
SIGURVEGARINN
AIHAFNASAMUR
Fimmtudagskvöldiö 19.
mars hélt Félag fram-
haldsskólanema glæsi-
lega söngkeppni svo sem
undanfarið hefur verið árlegur
viðburður í menningarflóru
Reykjavíkur. Keppnin var haldin
á Hótel Islandi og var húsfyllir af
kátum og reifum framhaldsskóla-
nemum sem óspart hvöttu sitt
fólk. Keppnin hefur aldrei verið
jafnfjölmenn, tuttugu og þrír
keppendur frá tuttugu og tveim-
ur skólum.
Óhætt er að segja að þessi
keppni sé einhvers konar hæfi-
leikasía þar sem allir
framhaldsskólanemar geta sýnt
það sem þeir hafa að bjóða, þar
sem undankepþni fer fram I öll-
um skólum og þar geta allir tek-
ið þátt og sungið af hjartans lyst.
Þegar svo komið er á Hótel Is-
land stígur rjóminn af bestu
söngvurum framhaldsskólanna
á stokk, með æði misjöfnum
árangri þó.
14 VIKAN 7. TBL. 1992
Sigurvegarinn, Margrét Sigurð-
ardéttir, syngur hér sigurlagið,
Leitina að látúnsbarkanum, með
miklum tilþrifum. Lesendum er
bent á að veita skónum athygli!
Bakraddasöngkonur Margrétar
eru þær Linda Ásgeirsdottir,
Drífa Björk Atladóttir og Krist-
björg Karí Sólmundardóttir.
Formaður dómnefndar, Jón-
atan Garöarsson, sagði í ávarpi
sínu til samkomugesta að aldrei
hefði verið jafnmjótt á mununum
sem nú. Engu að síður var sig-
urvegari krýndur. Hún heitir
Margrét Sigurðardóttir og kemur
úr Menntaskólanum í Reykja-
vík. Hún er átján ára og stundar
nám í fimmta bekk skólans,
reyndar er bekkurinn hennar
einn þeirra sem nema hin fornu
fræði í fjósi Menntaskólans! Vik-
an spjallaði við sigurvegarann
rétt eftir að úrslitin höfðu verið
kynnt.
- Vikan óskar þér til ham-
ingju með sigurinn. Það er hefð
fyrir því að spyrja tónlistarfólk
hvort það hafi verið mikil tónlist
á æskuheimili þess.
„Já, reyndar var ég byrjuö að
syngja áður en ég byrjaði að
tala. Pabbi er tónlistarmaður,
Sigurður Björgvinsson, þannig
að það var mikil tónlist á
æskuheimili rnlnu."