Vikan - 02.04.1992, Side 54
TEXTI: ANDERS PALM / ÞÝÐING: HJS
HVER ER MAÐURINN?
Reyndu sjálfan þig sem
rannsóknarblaðamann
eða rannsóknarlögreglu-
mann. Með því að lesa
um lífshlaup viðkomandi
persónu og nota um leið
þekkingu þína og
hyggjuvit ættir þú með
tiltölulega léttum leik að
komast að því um hvaða
karl - eða konu - er að
ræða. Teikning af útlín-
um höfuðs viðkomandi
persónu fylgir með
æviágripinu.
„Hann er Breti, 173 sm á
hæö, í meðallagi grannur, út-
skeifur, fölur yfirlitum, meö
rauðbrúnt hár og þunnt yfirvar-
arskegg, nefmæltur og smá-
mæltur, þaö er aö segja á erfitt
með aö bera fram bókstafinn
s.“
Sá maöur sem hér er lýst
var eftirlýstur. Þaö haföi meira
aö segja verið lagt fé til höfuös
honum, ef einhver kynni að
klófesta hann dauöan eða lif-
andi.
Hann var á flótta - honum
haföi tekist án mikilla erfiöis-
muna að flýja úr fangabúðun-
um. Þaö reyndist hins vegar
nær ómögulegt aö komast úr
landi því þaö voru 500 kíló-
metrar aö næstu landamær-
um. Þar aö auki var hann alls-
laus, hafði hvorki mat til ferö-
arinnar eða vopn, hvaö þá
áttavita og landakort. Þess
vegna afréö hann aö fylgja
járnbrautarteinunum. Til allrar
hamingju sá hann vöruflutn-
ingalest koma öslandi í áttina
til sín. Þrátt fyrir mikinn hraöa
hennar tókst hinum eftirlýsta
aö ná taki á einum vagnanna
og klifra um borö.
í morgungrámanum varö
hann aö yfirgefa lestina. Hann
sætti færis og stökk. Hann
foröaði sér því næst frá tein-
unum og í skjól úti í auðninni
þar sem enginn sæi til hans.
Hitabeltissólin ætlaði hann lif-
andi að steikja. Fljótlega fékk
hann félagsskap þar sem
hann sat í hitanum og hugsaði
sinn gang - hungraður gamm-
ur sveimaöi í kringum hann og
beiö þess aö væta góm.
Þegar skyggöi hélt hann
flóttanum áfram en engar
komu lestírnar og viö allar brýr
voru hermenn á verði. Hann
varö aö velja þann kost aö
leggja lykkju á leiö sína og
■ Hvarvetna náði hann
tilsettum árangri og varð
brátt mjög þekktur, meðal
annars fyrir bækur sínar
sem fengu mjög góða
dóma. Hann hlaut nóbeis-
verðlaunin í bókmenntum
1951. Hann var ekki farsæll
sem fjármálaráðherra en
annað ráðherraembætti átti
betur við hann.
freista þess aö komast í gegn-
um þéttan skóginn. Aö því
kom fljótlega aö hann gat ekki
meir, hann komst ekki lengra
hjálparlaust. Hann grillti í Ijós
frá mannabyggðum ekki langt
frá. Hann afréö aö ganga aö
einu Ijósanna, þaö var hvort
eö er engu að tapa úr því sem
komið var. Hann sá brátt aö
Ijósið kom frá skotgryfju sem
þéttsetin var samlöndum
hans, breskum hermönnum
gráum fyrir járnum. Af hreinni
tilviljun haföi hann hitt fyrir
breskan herflokk, þann eina á
geysistóru svæöi, þann eina
sem ekki haföi þegar haldiö á
brott. Gestinum villuráfandi
var komiö niöur í gryfjuna þar
sem hann fékk félagsskap
þúsunda rotta.
Nokkrum vikum síöar tókst
löndum hans aö smygla hon-
um upp í járnbrautarvagn -
þar var hann vafinn inn í bóm-
ullarballa. Dögum saman sil-
aöist lestin áfram í átt til landa-
mæranna. Aö lokum nam hún
staðar á meðan landamæra-
verðir rannsökuöu hana hátt
og lágt. Hann hélt niöri í sér
andanum og hélt að þetta tæki
aldrei enda. Honum varö því
mikill léttir þegar hún hélt af
staö yfir landamærin. Honum
var borgið.
Sá sem hafði verið eftirlýst-
ur á meðal framandi þjóöar
varö hetja í heimalandi sinu
þegar hann kom heim eftir
þennan erfiða og tvísýna
flótta. Hann varorðinn frægur.
Það var ekki fyrr en átta
árum síðar að hann hitti tilvon-
andi eiginkonu sína, þá var
hann þrjátíu og þriggja ára
gamall. Þau hittust á stað þar
sem hvorugt þeirra ætlaöi eig-
inlega aö vera. Henni haföi
verið boöið þangað á síöustu
stundu í forföllum gests sem
haföi skyndilega þurft að af-
boöa s:g. Þau lentu af tilviljun
hliö viö hliö viö borðhaldið.
Hann varö strax hrifinn af hinni
tuttugu og tveggja ára gömlu
mær, Clementine Hozier, og
reyndi allt til þess að falla
henni í geö á meðan þau sátu
til borðs. Um þessar mundir
hafði hann nýlokið viö aö
skrifa bók sem haföi fengið
lofsamlega dóma. Haföi hún
kannski lesið hana? Nei, þaö
haföi hún ekki. Hann lofaði að
senda henni bókina - en hann
gleymdi þessu loforði sínu.
Slikt varö auðvitað ekki til
þess aö auka álit hennar á
honum.
Hann lagöi sig sannarlega
fram um aö bæta fyrir þetta
brot sitt og þaö varö til þess aö
auka áhuga Clementine á
honum. Loks bauð hann henni
í heimsókn til vinar síns sem
bjó í stórri og fallegri höll.
Þau fengu sér göngu um
fallega hallargarðinn en fljót-
lega fór aö rigna. Þau hlupu í
skjól. Þar baö hann hennar og
hún tók bónoröi hans. Þeim
kom saman um aö halda trú-
lofuninni leyndri um sinn eöa
þangað til Clementine heföi til-
kynnt móður sinni um ráða-
haginn. Hann gat samt ekki
leynt gleöi sinni, hann gat vart
hamiö sig fyrir kæti. Hann var
sannfærður um aö hann væri
hamingjusamasti maöur í
heimi. Brúðkaupið var haldið
aöeins þremur vikum síðar,
þann 12. september 1908, aö
viöstöddu miklu fjölmenni.
Hjónabandið var afar farsælt
og hjónin eignuðust fimm
börn.
Sá sem um ræðir var mjög
lánsamur i störfum sínum.
Hvarvetna náöi hann tilsettum
árangri og varö brátt mjög
þekktur. Hann hélt meðal ann-
ars áfram að skrifa bækur og
þær fengu ávallt jafngóöa
dóma og voru prentaðar í
stóru upplagi víða um heim.
Litlu munaöi að hann færist í
flugslysi en hann bjargaðist á
undraverðan hátt. Hann var
fjármálaráðherra en honum
tókst illa í því embætti að ráða
við og leysa hinn margvíslega
vanda sem við var aö glíma.
Aftur á móti varö hann mjög
farsæll sem forsætisráðherra.
Hann var einnig þekktur
sem málari. Eitt verka hans
seldist til dæmis fyrir rúmlega
200.000 kr. á uppboöi hjá
Christies í London árið 1949.
Kaupandinn fullyrti aö hann
heföi verið reiöubúinn til aö
greiða tífalda þá upphæö fyrir
verkið.
Hann lést þann 24. janúar
1965.
Hver var hann?
SJÁ SVAR Á BLS. 66
LAUSN SÍÐUSTU GÁTU
+ + + + + + V E + + + + + + + + + +
+ + + + + H É R + E R + A N A F N A
+ + + + + A L T A N + H R 1 S L A N
+ + + + + N A U T N I N + S K I N N
+ + + + + D R + L + N 1 S T I N G I
+ + + + + S + K O K + P L A N K I +
+ + + + + A L L T + R I O + N A + S
+ Þ Ö N G L A E + V I N S I + R 0 N
M A N 1 A + G I N I Ð + s A L + T A
I Ð U N N + A P A L L + + M A 1 S T
+ + G A G N + + F L A S K A G + K A
+ E + + L A G A N + + L A + A V E +
+ R Æ S I L E G I L L + L K + A R G
+ + S Ó M I N N + A A + F R ó N + Ö
+ M I Ð I N + A N G U R + E L D U R
F A R I R + G R E I N A + p í A N Ó
+ N + + + E L + I Ð + Ð + P K + U 'T’
+ N A F N L A U S + H A F A U N N T
4- L í M U G U S T U R + A + R A + U
+ E D + G U M s I + A M L A + L Ú R
+ G A R G R + + + A Ð A L L + E G +
+ T + Ó A + S ó L + A G A L E G A R
+ + A Ð + S K J A T L A S T + A N A
+ + U A + Ó R ó R + L A rp A R + D M
B A R N A L A N + Ú T G Á F A S A M
H L A U P A R s D A G U R 1 + K Æ T I
54 VIKAN 7. TBL. 1992