Vikan - 02.04.1992, Page 79
við og virða fyrir okkur mat-
seðilinn en í raun má mæla
með öllu því sem þar er að
finna. Við bendum til dæmis á
forrétti eins og andaterrine
með glóaldini og kartöflurós
með eggjakremi og laxahrogn-
um - eða bakaðan hörpuskel-
fisk með rabarbarasósu.
Aðalréttirnir eru margir afar
girnilegir, hvort sem er kjöt
eða fiskur. Má til dæmis nefna
herramannsmat á borð við
glóðaða blálöngu og bakaðan
skötusel í gulstöngulsósu -
eða lambakamb með hálfmán-
um og fylltum kryddjurtum,
grísahnappa í sítrónu- og
vodkasósu og pönnusteiktar
lambalundir með rúsínum og
anispipar.
Eftirréttaseðillinn er ekki
síður girnilegar, svo fremi að
fólk hafi ekki þegar borðað
sem afmarkar svæðið betur og
undirstrikar sérstöðu þess.
Stjörnumerkin prýða loftið
eftir sem áður og gleðja augað
en þessi sérkennilega skreyt-
ing hefur alla tíð sett mikinn
svip á salarkynnin, ásamt súl-
unum sem ekkert hefur veriö
hróflað við.
AF NÓGU AÐ TAKA
Á MATSEÐLI
Matseðill Grillsins lætur ekki
mikið yfir sér við fyrstu yfirferð
en hann leynir samt verulega
á sér. Nokkrir réttanna hafa
verið þar í mörg ár, eins og
blönduðu sjávarréttirnir, „Saga
Gratin", sem hafa verið afar
vinsælir í nítján ár. Auk hinna
hefðbundnu rétta er á hverju
kvöldi boðið upp á sérstakan
matseðil sem gildir aðeins í
það skiptið. Þar er einnig tekið
fram hvaða matreiðslumenn
eru á vakt í eldhúsinu en það
hefur einnig verið endurnýjað
að verulegu leyti, meðal ann-
ars búið nýjum tækjum.
Við skulum aðeins staldra
ið „andlitslyftingu“ eins og matsalurinn. Bæði hefur innréttingin
ímið fyrir nýjum og smekklegum húsgögnum.
nægju sína. Hér skal aðeins
bent á tvo rétti sem hvorugur
ætti að valda vonbrigðum;
eins og gamaldags rjómaís
sem stráöur er cayennepipar
með perum sem soðnar hafa
verið í calvados og í annan
stað súkkulaðiborða með ex-
pressofrauði og angostúrakúl-
um.
Vínlistinn í Grillinu er með
því besta sem þekkist á ís-
lenskum veitingahúsum og er
þar rikulegt úrval bæöi af hvít-
vínum og rauðvínum. Þess
má geta að Jón Ármannsson,
vínbóndi í Bordeaux í Frakk-
landi, velur vínin, sem flest eru
af frönsku bergi brotin. Breidd-
in er mikil og benda má á að
unnt er að fá Bordeaux rauð-
vín af árgöngum ’81 (t.d. Chat-
eau Cheval Blanc kr. 33.420)
til ’88 (t.d. Chateau de Rions
kr. 3.740). í báðum þessum til-
vikum er um úrvals vín að
ræða þó verðmunurinn sé um-
talsverður og verður því eng-
inn svikinn af því ódýrara.
Þess má geta að Hótel Saga
annast innflutning á öllum
þeim vínum sem á listanum
eru.
Grillið býður upp á góða
þjónustu og svo mikið er víst
að þjónarnir unna sér ekki
mikillar hvildar þegar Stjörnu-
salurinn er þéttsetinn matar-
gestum eins og um helgar.
Þjónustan er lipur og fag-
mennskan fer ekki framhjá
þeim sem hennar nýtur.
Grillið á Hótel Sögu hefur
löngu'm verið með betri mat-
sölustöðum landsins og það
hefur heldur ekki verið talið
með þeim ódýrari. Engu að
sfður er unnt að fá þar dýrindis
þríréttaða máltíð fyrir um
3.300 krónur og það getur tal-
ist meðalverð sé miðað við
hinn heföbundna matseðil.
Lesendur eru hvattir til að
sækja heim sjöttu hæðina á
Sögu ef þeir ætla aö gera sér
glaðan dag í höfuöborginni -
snæða góðan mat í fallegu
umhverfi, njóta góörar þjón-
ustu og fá hið margrómaða út-
sýni i kaupbæti. □
7. TBL. 1992 VIKAN 79